Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 6
KYNNING
GODDI:
Vantar ekki góðan, heitan pott
eða sánaklefa á goðorðið þitt?
Smá- og heildsölufyrirtækið Goddi hefur þróast töluvert í áranna rás frá því það
var stofnað fyrir ríflega hálfri öld.
Tímarnir breytast og mennirnir
með og í dag býður Goddi upp á
vandað og fjölbreytt vöruúrval af
rafmagnspottum, sánaklefum, gisti-
og sánatunnum, sánavörum og
mörgu fleira.
Goddi: Lítið goðorð
Fyrirtækið Goddi ehf. var stofnað
sem umboðs- og heildsala árið
1967 af Haraldi Lýðssyni. Nafn
fyrirtækisins er fengið úr Laxdælu,
en þar er sagt frá Þórði godda sem
bjó á Goddastöðum í Laxárdal.
Orðið merkir (lítill) goðorðsmaður.
Í dag stýrir sonur eigandans,
Friðgeir Haraldsson, fyrirtækinu.
„Upphaflega seldi Goddi aðallega
húsgögn, áklæði, leður og leðurlíki en
með tímanum hafa orðið breytingar
í verslun og tækni. Enn þann dag í
dag eru helstu vöruflokkar Godda
áklæði, leður og leðurlíki. Þá bjóðum
við upp á gott úrval af þessum
vörum á lager en einnig getum
við sérpantað nær hvað sem er
fyrir viðskiptavini okkar. Þess utan
höfum við einnig verið að flytja inn
og selja báta- og fólksbílakerrur og
bjálkahús,“ segir Friðgeir Haraldsson,
eigandi Godda.Vöruúrvalið er
stórglæsilegt og má skoða betur á
vefsíðu fyrirtækisins, goddi.is.
Infrarauð sána fyrir heilsuna
Talsverð aukning hefur orðið í sölu
á infra-rauðum sánaklefum, en
klefarnir eru þekktir fyrir að hafa
víðfeðm, jákvæð áhrif á líkama og
heilsu þeirra sem nota þá reglulega.
Infrarauðu geislarnir hreinsa
húðina, geta stuðlað að lækkuðum
blóðþrýstingi, brenna hitaeiningum,
slá á verki í líkamanum og veita
almenna vellíðan.
Það er fátt betra en að skella
sér í funheita sánu á köldum
vetrarkvöldum. Goddi býður upp á
úrval af sauna- og gistitunnum sem
hafa vakið athygli, enda sérlega
vönduð og falleg smíð. Tunnurnar
fást í ýmsum stærðum og er
mögulegt að hita þær ýmist með
raf- eða viðarkyntum ofnum.
Heit böð eru eitt af því sem
hefur svo sannarlega haldið lífi í
landanum í gegnum langa, kalda og
dimma vetur. Goddi er með úrval af
hitaveituskeljum í heita potta. Einnig
ýmsar gerðir svo sem kringlóttar,
ferkantaðar og áttkantaðar á
frábæru verði, eða frá 150.000 kr.
Bjálkahús úr norskri furu
Við getum einnig útvegað
bjálkasumar- eða heilsárshús,
garðskála og fleira í nokkrum
bjálkaþykktum. Húsin eru frá Astel
Garden, einu elsta og vandaðasta
framleiðslufyrirtæki timburhúsa
á Balkanskaganum. Húsin eru
mestmegnis framleidd úr norskri
furu og er hægt að fá í ýmiss konar
útfærslu, t.d. með eða án gólfs eftir
því hvort húsið fer á steypta plötu
eða annað. Skoðaðu möguleikana á
heimasíðunni goddi.is.
Goddi býður að auki upp á
níðsterk og vönduð lok á potta. Lokin
fást í fjórum stærðum og tveimur
litum, brúnum og gráum. Þau eru tólf
sentímetrar að þykkt með styrkingu
og kosta 58.500 kr.
Stærðirnar eru:
200×200 sm.
208×208 sm.
213×213 sm.
220×220 sm.
Goddi ehf. Auðbrekku 19, 200
Kópavogur.
Allar nánari upplýsingar má nálgast
á vefsíðunni goddi.is
Vanti frekari upplýsingar má senda
fyrirspurn á netfangið goddi@goddi.
is eða hring ja í okkur í síma 544-
5550 og 822-4150
Saunatunna
330 með palli