Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Síða 23
Sérblað
21. febrúar 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
SPENNANDI BAÐHERBERGISLAUSNIR FRÁ INNRÉTTINGAR OG TÆKI:
Vertu með Adele í speglinum
og mosagróinn vegg!
Starfsemi sérvöruverslunarinnar Innréttingar og tæki hófst árið 1945 undir nafninu Jensen,
Bjarnason & Co. og var þá aðallega
umboðs- og heildsöluverslun. Árið
1993 var verslun Innréttingar og
tæki opnuð og var þá hafin sala á
innréttingum og hreinlætistækjum.
„Amma og afi, Pétur Vilhelm Jensen
og Svava Jensen, hófu starfsemina
fyrir 75 árum og hefur fyrirtækið alltaf
verið í eigu Jensenfjölskyldunnar,“
segir Íris Jensen sem tók við keflinu
2014 ásamt eiginmanni sínum, Grétari
Þór Grétarssyni. „Frá 1993 höfum við
sérhæft okkur í sérvörum, smáhlutum,
innréttingum og hreinlætistækjum
frá Spáni og Ítalíu fyrir baðherbergið
og í dag er það sérstaða okkar.
Við seljum mikið til einstaklinga og
iðnaðarmanna sem og fyrirtækja og
stofnana, enda er vöruúrvalið afar
breitt og erum við með umboð fyrir
ýmis spennandi merki.“
Undanfarin ár hafa dúkkað upp
skemmtilegar nýjungar í hönnun
baðherbergja og er verslunin
Innréttingar og tæki ávallt með
puttann á púlsinum þegar
kemur að spennandi og fallegum
baðherbergislausnum.
Náttúran inni á baðherbergi
Frá ítalska merkinu Benetti Home
kemur virkilega töfrandi nýjung
fyrir baðherbergi, hvort sem er
á stofnunum, í fyrirtækjum eða
í heimahúsum. „Ég er að tala
um láréttan mosagarð á vegg.
Mosagarðurinn kemur í nokkrum
útgáfum, til dæmis með laufum
og hins vegar eins og dæmigerður
íslenskur mosi. Þessi lausn hefur
verið vinsæl í Skandinavíu og má t.d.
sjá í Leifsstöð. Þá má hvort heldur
sem er þekja heilan vegg eða setja
mosann inn í ramma og hengja upp
eins og listaverk. Mosinn er tilvalinn
til þess að mýkja harðar línur í rými
eins og baðherbergjum auk þess
sem hann hefur dempandi áhrif á
hljóð og bergmál. Það besta er að
um er að ræða lífrænt efni sem þarf
nær enga umsjón. Þetta vex ekki
og þarf því ekki að klippa til. Ekki er
æskilegt að hafa mosann í beinu
sólarljósi eða inni í sturtuklefanum.
Eina sem þarf að gera er að úða
hann einstaka sinnum með sérstöku
efni þegar maður finnur að hann
er að þorna. Þetta er einföld og
náttúruleg leið til þess að lífga upp á
rými án mikillar fyrirhafnar.“
Tæknilegt klósett
Tæknin hefur rutt sér til rúms á
öllum stöðum heimilisins og er
baðherbergið engin undantekning.
„Ein af nýjungunum okkar er smart
klósett frá Spáni. Salernin eru með
innbyggðri þurrku, skoli og ljósi sem
og upphitaðri klósettsetu. Einnig
erum við með speglalausnir með
Bluetooth-hátalara. Þá er hægt að
hlusta á tónlist, fréttir, sögur eða
jafnvel frumskógarhljóð á meðan þú
slappar af í baði eða í sturtu.“
Íslendingar elska liti
„Við höfum verið að sjá miklar
breytingar hvað varðar litaval í
hreinlætis- og blöndunartækjum.
Þó svo hvíta postulínið og krómið
haldi sér, þá er fólk orðið óhræddara
við að velja aðra liti. Vinsældir
svarta litarins í blöndunartækjum
fara sívaxandi ásamt möttum
gylltum lit. Einnig erum við að sjá
mikla aukningu í skemmtilegum
litum á hreinlætistækjum eins og
baðkörum, vöskum og salernum.
Bleikum, bláum og grænum er spáð
miklum vinsældum á þessu ári.“
Innréttingar og tæki selur smekklega
handklæðaofna sem sóma sér líkt
og listaverk inni á baðherberginu,
ásamt því að halda handklæðinu
hlýju og notalegu á meðan þú
ert í sturtu eða baði. „Ofnarnir
koma í ýmsum stærðum, gerðum,
formum og litum, en sá svarti hefur
verið að koma sterkur inn. Það er
þó minna um að fólk sé að fá sér
handklæðaofna úr krómi.“
Vinsælustu sturtubotnarnir
„Íslendingar eru líka alveg vitlausir
í þunnu sturtubotnana okkar frá
spænska merkinu Gala. Um er að
ræða sterkbyggða og endingargóða
sturtubotna úr granít/stonex/
resinefni. Botnarnir koma í 15 litum
og eru sérstaklega gerðir fyrir opnar
sturtur sem hægt er að ganga inn í.
Sturtubotnarnir koma tilbúnir í einu
stykki með innbyggðum halla sem
auðveldar alla uppsetningu til muna.
Þá er engin þörf fyrir fúgu sem
einfaldar öll þrif til muna. Flísarnar
eru bornar stamri gelkvoðu sem
gerir botninn að stöðugu undirlagi
fyrir fólk að ganga á og athafna sig í
sturtunni.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
jensenbjarnason.is
Ármúli 31, 108 Reykjavík
Sími: 588-7332
Póstfang: i-t@i-t.is
Opið alla virka daga frá 9–18 og
laugardaga 11–14.