Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 24
Sérblað 21. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
Veggfóður sem hæfir
sænskri konungsfjölskyldu
Einar Beinteins ehf. býður upp á gagnlega þjónustu fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir svo sem í
teppa- og dúkalögn, strigastrekkingu
og flotspörtlun. Fyrirtækið sérhæfir
sig einnig í innflutningi, sölu og
uppsetningu á veggfóðri. „Duro,
Marburg, Engblad & Co, Cole &
Son, Mr. Perswall, Boråstapeter
og Mineheart eru flottustu
veggfóðursframleiðendurnir í dag.
Í gegnum þessa framleiðendur
getum við boðið upp á frábært
úrval af fyrsta flokks veggfóðri fyrir
heimili, fyrirtæki, hótel og stofnanir
á breiðu verðbili. Við sérpöntum
fyrir viðskiptavini okkar og getum
útvegast nánast hvað sem er,“ segir
Einar Beinteins, dúklagninga- og
veggfóðrarameistari og eigandi
fyrirtækisins.
Einar Beinteins ehf. byggir
á þriggja kynslóða reynslu í
veggfóðrun og dúkalögn. „Afi var
í þessu á sínum tíma og pabbi líka
og lærði ég gífurlega mikið af þeim
feðgum. Því má segja að reynsla mín
spanni um það bil 75 ár í dúkalögn
og veggfóðrun,“ segir Einar. „Mín
reynsla er sú að veggfóður er alltaf
móðins. Þau fást í óendanlegum
litum, áferðum, samsetningum og
gerðum. Hvort sem þú vilt einfalt
og einlitt veggfóður með smá áferð,
litríkt og upphleypt veggfóður eða
heila veggmynd. Þetta er í raun
einfaldasta og oftar en ekki ein
ódýrasta leiðin til þess að fríkka upp
á herbergi eða rými.“
Veggfóður sem hæfir drottningum!
Duro veggfóðrið er sænsk
hágæðavara enda hafa þeir
framleitt veggfóður fyrir sænsku
konungshirðina síðan 1946.
Klassísk mynstur, smekklegir litir og
nýmóðins áhrif. Duro býður upp á
spennandi valkosti fyrir kröfuharða
heimiliseigendur. Veggfóðrin eru
umhverfisvæn, afar létt en sterkbyggð
og þola þvott.
Brautryðjendur í
veggfóðurshönnun
Marburg veggfóðrin eru hönnuð
og framleidd í Þýskalandi. Einstök
hönnun fyrirtækisins hefur vakið
athygli um allan heim. „Marburg
er brautryðjandi þegar kemur að
hönnun veggfóðurs en þeir framleiða
allt frá einföldu, klassísku og einlitu
eða smámynstruðu veggfóðri upp
í sjálflýsandi veggfóður og jafnvel
veggfóður með gljásteinum. Það
voru þeir hjá Marburg sem fundu
upp hið svokallaða textíl-veggfóður
árið 1965. Marburg býður upp á
frábærar veggfóðurslausnir fyrir
hótel, skrifstofur og heimili á enn
betra verði.“
Sænska fyrirtækið Engblad &
Co var fyrst til þess að hanna og
framleiða veggfóður í Skandinavíu.
Stílvitund og nýsköpun einkenna
veggfóðrin frá þessum framsækna
veggfóðursframleiðanda.
Mineheart veggfóðrin fela í sér allt
það sem er töff, nýmóðins og frumlegt
en byggja á sama tíma á klassískri
hönnunarsögu. Útkoman er satt að
segja stórkostleg.
Gullfalleg mynstur og frábær
barnaherbergislína
Veggfóðrin frá Boråstapeter
eru ævintýralega falleg og
henta í hvaða herbergi sem
er í húsinu. Allt frá einföldum
geómetrískum mynstrum til flókinna
náttúrumynstra. Boråstapeter
framleiðir þar að auki dásamlega
falleg veggfóður inn í barnaherbergi
með frumskógardýrum, flugvélum,
hvölum og fleiri skemmtilegum
myndum og mynstrum.
Hannaðu þitt eigið veggfóður
Mr. Perswall framleiðir sérprentuð
veggfóður en býður einnig upp á
gífurlegt magn af skemmtilegri og
nýstárlegri hönnun. Veggfóðrinu
frá Mr. Perswall halda engin bönd
nema ímyndunaraflið. Sérprentuðu
veggfóðrin eru sérhönnuð til þess að
passa nákvæmlega á þann vegg sem
þú ert með í huga.
Nýtt og gamalt
Frá árinu 1875 hefur enski
veggfóðursframleiðandinn Cole &
Son hannað og framleitt hágæða
veggfóður fyrir kröfuharða
viðskiptavini. Nýstárleg hönnun byggir
á klassískum mynstrum átjándu,
nítjándu og tuttugustu aldarinnar og
útkoman er vægast sagt heillandi.
Nánari upplýsingar má nálgast á
veggfodur.is
Dalvegur 16 D, 201
Kópavogskaupstaður.
Sími: 892-4588
Tölvupóstur: einar@eb.is
Facebook: Veggfoður.is