Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 28
Sérblað 21. febrúar 2020KYNNINGARBLAÐ
HEGAS:
Nýr sýningarsalur
efst á Smiðjuveginum
Á Smiðjuvegi 1 í Kópavogi er heildverslunin HEGAS ehf. til húsa, en þar hefur
sýningarsalur verslunarinnar verið
endurnýjaður.
HEGAS hefur verið til húsa við
Smiðjuveginn frá stofnun árið
1988 og sérhæft sig í lausnum fyrir
innréttingar, innihurðir og tengdar
vörur, þ.m.t. vélar og hráefni til
innréttingasmíðar.
Við leggjum áherslu á að
viðskiptavinurinn geti komið
og fengið vöruna afhenta á
staðnum, þess vegna er allur lager
fyrirtækisins í sama húsnæði.
Áherslurbreytingar í innréttingum.
Jón Kristinn Snorrason
verslunarstjóri segir að innréttingar
hafi breyst mikið í gegnum tíðina.
Núna er t.d. mikið lagt upp úr
umgengni í neðri skápa, lýsingu
og sorpflokkun. „Við erum með
ýmsar lausnir í þeim efnum,“ segir
Jón Kristinn. Það er mikilvægt að
staðna ekki og þess vegna fylgjast
starfsmenn HEGAS vel með
breytingum og vöruþróun. „Það
hafa orðið miklar breytingar í efnum
fyrir innréttingar, eins og ýmiss
konar yfirborðsefnum, nýjungum
í skúffubúnaði, nýjum litum og
auknu úrvali í LED-lýsingu, okkur
fannst mikilvægt og nauðsynlegt
að endurnýja sýningarsal okkar
og aðstöðu til að geta sýnt þessar
nýjungar sem best,“ bætir Jón
við. „Einnig höfum við endurnýjað
heimasíðuna okkar, en þar er margt
að sjá.“
Sjón er sögu ríkari
„Þó svo að sýningarsalurinn sé
nýlega endurnýjaður höfum við
breytt honum mikið síðan með
ýmsum nýjungum,“ segir Jón
Kristinn. „En sjón er sögu ríkari og við
viljum endilega bjóða alla velkomna
að koma og skoða úrvalið hjá okkur.
Þeir sem geta ekki gert sér ferð til
okkar geta nýtt sér nýju heimasíðuna
okkar, www.hegas.is.“ bætir Jón við
að lokum.