Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 31
FÓKUS 3121. febrúar 2020
Geggjað að vera með kollinn í lagi
Samfélagsmiðlastjarnan Eva Ruza Milj-
evic telur sig heppna að hafa aldrei tekið
fyrsta sopann.
„Ég leiði hugann mjög oft að þeirri
staðreynd, hvað ég er ánægð með þessa
ákvörðun mína. Það var engin sérstök
ástæða fyrir því að ég ákvað að drekka
ekki, nema kannski sú að ég vildi ekki
missa stjórn á aðstæðum eða sjálfri mér.
Svo fór mér með tímanum að finnast það
mjög töff að geta sagst aldrei hafa drukk-
ið. Ég tók þátt í öllu félagslífi í mennta-
skóla og grunnskóla, mátti ekki missa af
neinu. Var í skemmtinefndum og tylli-
daganefndum, skemmti mér um helg-
ar með vinkonum mínum, og gerði það
allt saman edrú. Fyrst þegar margir voru
að byrja að fikta við að drekka, þá fann
ég að sjálfsögðu fyrir pressu eins og allir hinir. En sú pressa kom aldrei frá
mínum nánustu vinkonum. Þær sýndu mér mikinn skilning og þrýstu aldrei
á mig, og er ég alltaf þakklát fyrir það. Hins vegar finnst mér í dag þegar fólk
heyrir að ég drekki ekki, þá geri það alltaf ráð fyrir því að ég sé óvirk. Sem mér
finnst alltaf smá skrítið en að mínu mati er drykkjulaus lífsstíll að aukast og
sem betur fer finnst mér sífellt fleiri velja sér þann lífsstíl, hvort sem það er
frá upphafi eins og ég, eða eftir að liðið er á. Mér finnst líka fleiri flottar fyrir-
myndir vera komnar í sviðsljósið og ég vona að ungir krakkar í dag horfi upp
til þeirra, því það er svo geggjað að vera með kollinn í lagi. Ég hef alltaf verið
mjög opin með þessa ákvörðun mína og vonaði innst inni að hún myndi skila
sér alla leið í eitthvert ungt hjarta. Þess vegna þykir mér extra vænt um þegar
ég heyri af einhverjum sem vill ekki drekka – út af mér. Mér þykir ótrúlega
vænt um það.“
Jákvæðar fyrirmyndir eru besta
forvörnin
Athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir
tók aldrei fyrsta sopann og segist því ekki
geta gert sér í hugarlund hvernig bjór eða
annað áfengi sé á bragðið.
„Það var aldrei nein djúpstæð ástæða
sem bjó að baki – en minn stærsti ótti var að
missa stjórn á sjálfri mér og vera ekki full-
komlega meðvituð um hvað ég gerði. Ég sá
fólk allt í kringum mig, bæði vini og kunn-
ingja, oft á mega bömmer eftir djamm – og
alltaf fannst mér áfengisneysla bara hafa
slæmar afleiðingar. Ég vildi ekki koma ná-
lægt þessu og vil ekki enn. Eftir að ég eignað-
ist börn þá varð ég enn ákveðnari í þessari ákvörðun, því ég vil ekki ala börnin
mín upp í kringum áfengi – þótt það sé í hófi. Ég held að öll börn finni einhvern
tímann fyrir óöryggi við það að sjá foreldra sína undir áhrifum. Ég þekki ekk-
ert annað en áfengislausan lífsstíl og hef alltaf getað skemmt mér án áfengis.
Þegar ég var unglingur fann ég oft fyrir pressu frá öðrum – og listinn er orðinn
mjög langur af fólki sem hefur beðið um að fá að vera viðstatt þegar ég smakka
áfengi í fyrsta sinn. Það mun þó aldrei gerast – og núna finnst mér fólk bera
mikla virðingu fyrir þessari ákvörðun og ég fæ frekar hrós en nokkuð annað.
Það er auðvitað ekki algengt að hafa aldrei smakkað áfengi, þannig að fólk verð-
ur stundum hissa – en viðmótið er almennt mjög jákvætt. Mér finnst frábært að
geta verið fyrirmynd á þessu sviði því það eru margar heilbrigðar fyrirmyndir
sem hafa stigið fram og ég held að unga fólkið sé mjög meðvitað um að það er
hægt að lifa mjög góðu og skemmtilegu lífi án áfengis. Ég er allavega mjög stolt
af þessari ákvörðun minni og er þakklát fyrir að hafa staðið með sjálfri mér sem
unglingur. Ég er alveg viss um að ég hef sparað mér svo mikla vanlíðan – svo ég
tali ekki um peningasparnað, því ekki er ódýrt að drekka. Ég er mjög meðvituð
um þau áhrif sem ég get haft og mér finnst mikilvægt að tala reglulega um þessa
hluti, því jákvæðar fyrirmyndir eru besta forvörnin.“
Reykja
víkur
dóttirin
Þórdís Björk
Þorfinns
dóttir segir það
hjálpa henni mikið að sleppa áfengi enda virki
það eins og eitur á fólk sem þjáist af kvíða, auk
þess sem áhrif þess á röddina séu afar slæm.
Ríkjandi lífsstíll í
mínum vinahópi
Nökkvi Fjalar Orra-
son frumkvöðull hefur
aldrei smakkað áfengi
en þá ákvörðun tók
hann út frá þeirri hugs-
un að vera alltaf til
staðar.
„Ég vil alltaf að fólk
í kringum mig geti
stólað á að ég geti komið þegar það þarf á mér
að halda 24/7. Ég veit ekki hvort að drykkjulaus
lífsstíll sé að aukast en þessi lífsstíll er alla vega
mjög ríkjandi í mínum vinahóp. Það eru færri
sem drekka en ekki. Í öllu sem ég geri legg ég
upp með að vera fyrirmynd fyrir fólk í kringum
mig og þá sem verða á vegi mínum, svo óneit-
anlega var þessi ákvörðun tekin í þeirri trú að ég
geti verið betri fyrirmynd fyrir aðra.“
Betra líf án Bakkusar
n Sífellt fleiri velja sér vímuefnalausan lífsstíl n Viðmótið almennt mjög jákvætt
Sífellt fleiri velja sér vímuefnalausan lífsstíl. DV tók saman
nokkur dæmi um þekkta einstaklinga sem eru sammála
um að lífið sé skemmtilegra án Bakkusar.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir segir
það sitt mesta gæfuspor að hætta að drekka
áfengi en ákvörðunina tók hún eftir mikla
sjálfskoðun í leiklistarskólanum.
Arnmundur Ernst Backman hætti
að drekka eftir útskrift frá leiklistarskól-
anum og segir það hafa verið nauðsyn-
legt skref enda hafi hann stefnt á hættu-
lega braut.
Hjónin María Rut Kristinsdóttir og
Ingileif Friðriksdóttir hættu báðar að
drekka í kjölfar þess að Ingileif greindist með
flogaveiki á síðasta ári. Hún segist hafa verið
örlítið þvinguð til að færa líf sitt yfir á annað
tempó þrátt fyrir að hafa aldrei verið mikill
djammari. Þær séu þó alsælar með lífið enda
sé það hreinlega skemmtilegra án áfengis.
Páll Óskar Hjálmtýsson segir Coke
Zero það sterkasta sem hann drekki en
hann hefur aldrei snert áfengi né önnur
fíkniefni.
Hildur Guðna
dóttir – haft
var eftir móður
hennar, Ingveldi
Ólafsdóttur, í
fréttum RÚV
að Hildur væri
skynsöm stúlka
sem drykki ekki
áfengi.
Stefán Máni Sigþórsson setti tapp-
ann í flöskuna fyrir allnokkrum árum og
segist í kjölfarið hafa lært að takast á við
einmanaleikann en um leið fundið ham-
ingjuna í lífinu.
Ellý Ármannsdóttir mælir svo
sannarlega ekki með því að hugurinn sé
deyfður með áfengi en hún hugsar vel um
líkama og heilsu sem hún segir hafa tekið
stakkaskiptum til hins betra eftir að hún
sagði skilið við Bakkus.