Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Qupperneq 33
PRESSAN 3321. febrúar 2020
Samkvæmt kenningunni var brot
ist inn og hafi Madeleine annað
hvort verið myrt eða numin á
brott vegna þess að hún vaknaði
og sá hvað innbrotsþjófarnir voru
að gera. Orðrómur er uppi um að
Lundúnalögreglan Scotland Yard
hafi ekki útilokað að þetta hafi
gerst. Það er þó rétt að hafa í huga
að ef innbrotsþjófur eða þjóf
ar hefðu fyllst örvæntingu þegar
barn vaknaði hefðu þeir líklegast
skilið eftir sig slóð sönnunargagna
því þeir hefðu þá þurft að bregð
ast hratt við.
Scotland Yard yfirheyrði
fjóra menn, sem bjuggu í Praia
da Luz, árið 2014 en þeir voru
taldir geta tengst málinu.
Bakgrunnur þeirra, símagögn
og staðsetning þeirra þegar
Madeleine hvarf benti til að
þeir hefðu getað tengst innbroti
sem fór úrskeiðis. Lögreglan
tilkynnti síðan að engar sann
anir hefðu fundist fyrir tengsl
um þessara manna við hvarf
Madeleine.
Þrátt fyrir að breska lög
reglan telji ekki útilokað að inn
brot hafi farið úrskeiðis þá telur
fyrrverandi formaður samtaka
portúgalskra lögreglumanna
þessa kenningu fáránlega.
„Þessi innbrotskenning er
fárán leg. Ekki einu sinni veski
hvarf, ekki sjónvarpstæki, ekkert
hvarf. Barn hvarf,“ sagði hann í
samtali við breska fréttaskýringa
þáttinn Panorama.
Rænt eða myrt af barnaníðingi
Árið 2009 bárust fregnir af því að lög
reglan teldi ekki útilokað að Made
leine hefði verið rænt eða hún myrt
af barnaníðingi eða barnaníðing
um. Fram kom að mikill fjöldi barn
aníðinga hafi verið á Algarve þegar
hún hvarf tveimur árum áður.
„Það eru 38 þekktir kynferðis
brotamenn í Algarve. Svæðið er
eins og segull fyrir barnaníðinga.
Á síðustu fjórum árum hafa verið
sjö kynferðisbrot gegn börnum
ferðamanna í Algarve. Þeir nota
allir sömu aðferðir og voru not
aðar við hvarf Madeleine – það er
brotist inn í sumarleyfisíbúðir og
brotið gegn börnum. Fimm áttu
sér stað áður en Madeleine hvarf
og tvö eftir það. Eitt átti sér stað
mánuði eftir að hún hvarf,“ sagði
heimildarmaður við fjölmiðla.
Því var velt upp hvort virkur
barnaníðingur gæti hafa verið
að verki og að hann gerst sekur
um grófari hluti en áður. Í þetta
skipti hefði viðkomandi ekki
látið nægja að brjóta gegn barni
í sumar leyfisíbúð heldur numið
það á brott og jafnvel drepið það.
Rænt af þrælasölum eða
barnaníðshring
Margar útgáfur hafa komið
fram af þessari kenningu. Með
al annars að belgískur barna
níðshringur hafi „pantað“ unga
stúlku hjá glæpahópi sem sá síð
an um að ræna Madeleine. Því
hefur jafnvel verið haldið fram að
búið hafi verið að taka myndir af
Madeleine úr laumi og senda til
belgíska barnaníðingshringsins
sem hafi staðfest að hún uppfyllti
kröfur þeirra og í framhaldinu
gefið grænt ljós á að henni yrði
rænt.
Samkvæmt annarri kenningu
á Madeleine að hafa verið flutt
beint niður að höfninni í Lagos og
þaðan hafi verið siglt með hana
til Marokkó. Fréttir hafa borist af
því að stúlka, sem líktist Made
leine, hafi sést í Marokkó á þeim
tíma sem hún hvarf. Foreldrar
hennar fóru til Marokkó fljótlega
eftir hvarf hennar til að biðla til
fólks um upplýsingar. Marokkó
ber einnig á góma í kenningum
um að Madeleine hafi verið seld í
þrældóm í ríkjum við Sahara.
Madeleine vaknaði, fór út og
lenti í slysi
Kenningum hefur verið varpað
fram þess efnis að Made leine hafi
vaknað, séð að foreldrar hennar
voru ekki í íbúðinni og þá yfir
gefið hana, lent í slysi og lát
ist. Fram hefur komið að margar
slysa gildrur voru nærri sumar
leyfisíbúð fjölskyldunnar. Ef hún
hefði villst í myrkrinu og tekið
ranga beygju, innan við 200 metra
frá íbúðinni, hefði hún lent inni á
vinnusvæði þar sem unnið var að
vegagerð. Þar var verið að grafa
fyrir lögnum. Getur hugsast að
hún hafi dottið þar ofan í, dáið
eða misst meðvitund? Að ekki hafi
verið tekið eftir henni þegar vatni
var hleypt á lagnakerfið morgun
inn eftir? Bæði verkfræðingurinn
og verkstjórinn, sem stýrðu verk
inu, segja að vinnusvæðið hafi
verið girt af og að bæði þeir og
lögreglan hefðu kannað það.
Önnur útgáfa af slysasögunni
gengur út á að ölvaður ökumað
ur hafi ekið á Madeleine, fyllst
örvæntingu og falið lík hennar.
Staðkunnugur hefði búið yfir
upplýsingum um hvar væri hægt
að fela lík án þess að það fyndist
áratugum saman. n
Madeleine McCann Mynd hangir
nálægt staðnum sem hún hvarf.
Gerry og Kate Foreldrar Madeleine
hafa aldrei hætt að leita.
Mikil umfjöllun Í fyrra kom út
heimildamynd á Netflix um hvarf
Madeleine.
Madeleine í dag
Kate og Gerry halda á
tölvugerðri mynd af
Madeleine eins og hún
gæti litið út í dag.
MYND: GETTY IMAGES
MYND: GETTY IMAGES
MYND: GETTY IMAGES