Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Page 34
34 21. febrúar 2020
SAKAMÁL
LÍFIÐ ER ENGINN LEIKUR – ÞAÐ ER DAUÐANS ALVARA
n Brynn dreymdi um frægð og frama n Vegferðin á toppinn reyndist torsótt n Sat eftir þegar eiginmaður hennar baðaði sig í sviðsljósinu
B
rynn Hartman fæddist í apríl 1958
og hét í raun Vicki Jo. Hún var dóttir
Donalds Genes Omdahl, verk-
fræðings og eiganda smávöruversl-
unar í Thief River Falls í Minnesota. Móðir
Brynn var Constance Faye og Brynn átti
þrjú systkin; bróður og tvær systur. Þetta
fólk kemur ekki frekar við sögu hér.
Brynn ólst upp í fjölskyldu sem lét lítið
að sér kveða og var Brynn miðlungsnem-
andi, en hún átti sína drauma eins og
gengur og gerist. Því ákvað hún að hætta í
skóla og þann 20. maí, 1977, giftist hún tal-
símaverði, Douglas Torfin, sem einnig bjó í
Thief River Falls.
Blint stefnumót og upprennandi leikari
Brynn vildi þó fá meira út úr lífinu og skildi
við Douglas og sá sér að einhverju leyti far-
borða með fyrirsætustörfum í Minneapolis.
Frægð og frami létu lítt á sér kræla og því
flutti Brynn til Hollywood þar sem hún leit-
aði hófanna í kvikmyndaleik. Þangað kom-
in kastaði hún nafni sínu, Vicki Jo, fyrir
róða og tók upp nafnið Brindon sem síðar
vék fyrir Brynn.
Það var síðan árið 1986 sem Brynn hitti
upprennandi leikara að nafni Philip Ed-
ward Hartman á blindu stefnumóti. Sjálf
var Brynn þegar þarna var komið sögu
enn að baksa í fyrirsætustörfum, en Phil
var sjálfsöryggið uppmálað enda á hrað-
ferð upp metorðastigann í Hollywood sem
skemmtikraftur og leikari.
Gamlir draumar láta á sér kræla
Brynn og Phil gengu í hjónaband árið
1987, hann í þriðja skipti en hún sitt ann-
að. Hjónakornin komu sér fyrir í lítilli íbúð
á Manhattan, tíminn leið og þau eignuðust
tvö börn, son árið 1989 og dóttur árið 1992.
Tilvera Brynn snerist að mestu um
uppeldi barnanna en innra með henni
blossuðu upp gamlir draumar um frama
á sviði leiklistar og allt sem honum fylgdi.
Brynn fór í leiklistartíma og lét „bæta“
útlit sitt með lýtaaðgerðum. Allt kom fyrir
ekki og Brynn uppskar eingöngu örhlut-
verk og einstaka tækifæri til að bregða fyr-
ir í sjónvarpsþáttum, og þá yfirleitt fyrir til-
stilli eiginmanns síns.
Vaxandi öfundsýki
Phil treysti sess sinn í harðri samkeppni
í Hollywood og að sama skapi jókst öf-
undsýki Brynn út í eiginmann sinn, enda
mistókst henni endurtekið að gera sig gild-
andi í þeim geira.
Víkur nú sögunni til 28. maí, 1998,
en þá reis stjarna Phils hærra en nokkru
sinni fyrr, en stjarna Brynn var enn lágt á
himni. Að nóttu þess dags, á milli klukk-
an tvö og þrjú, ók Brynn heim til vinar síns,
Rons Douglas. Hún sagði Ron að hún hefði
banað eiginmanni sínum, en Ron lagði
ekki trúnað á orð hennar.
Allt í steik
Klukkan 6.30 óku þau heim til Brynn og
rann þá upp fyrir Ron að Brynn hafði
engu logið því hún hafði skotið Phil þrem-
ur skotum í höfuðið. Ron Douglas hringdi
umsvifalaust í lögregluna sem byrjaði á því
að koma börnum þeirra hjóna út af heimil-
inu og taka morðvopnið í sína vörslu.
Áður en lögreglan gat náð tali af Brynn
fór hún inn í svefnherbergi þeirra hjóna,
greip þar til annarrar skammbyssu og
svipti sig lífi með einu skoti, beint í annað
augað.
Eins og oft vill verða þegar fólk fer yfir
móðuna miklu þá kom í ljós að ekki hafði
verið allt sem sýndist í hjónabandi Phils og
Brynn. Lögfræðingur Phils sagði í grein á
CNN að Brynn hefði átt til að taka ógnarleg
reiðiköst og í öðrum miðli að áfengisneysla
Brynn hefði verið uppspretta margra rifr-
ilda hjá þeim.
Kókaín og skilnaður
Til að bæta gráu ofan á svart þá var Brynn
háð kókaíni og punkturinn yfir i-ið var yfir-
vofandi skilnaður hjónanna. Brynn og Phil
voru óhamingjusöm og sökuðu hvort ann-
að um að standa í vegi fyrir skilnaði.
Að sögn hafði Brynn, kvöldið áður en
hún myrti Phil og svipti sig síðan lífi, inn-
byrt allt í senn, á veitingastað í Hollywood,
kókaín, áfengi og Zoloft.
Reyndar hafði Brynn haldið sig fjarri
öllum vímugjöfum í 10 ár, en því bindindi
hafði lokið um fimm mánuðum fyrr þegar
ónafngreindur skemmtikraftur bauð henni
kókaín og kom henni aftur á bragðið.
Lífið er ekki leikur – það er dauðans
alvara. n
„Frægð og frami létu lítt á sér kræla
og því flutti Brynn til Hollywood þar
sem hún leitaði hófanna í kvikmyndaleik
Hartman-hjónin Velgengni
Phils gerði Brynn öfundsjúka.