Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2020, Síða 44
44 FÓKUS 21. febrúar 2020
É
g vil bara að fólk viti af
þessu, svo það geti verið vel
upplýst og farið varlega,“
segir ung íslensk kona sem
komst í kynni við mann í gegnum
Tinder-forritið og hitti hann síðar
á stefnumóti. Stuttu seinna komst
hún að því að maðurinn hefði
hlotið þriggja ára fangelsisdóm
fyrir að taka þátt í að hópnauðga
konu.
Konan kynntist mannin-
um í gegnum forritið í seinasta
mánuði. Þau spjölluðu saman
um tíma áður en þau ákváðu að
hittast í eigin persónu og fara út
að borða.
„Mér fannst hann skemmtileg-
ur og fínn gaur en samt eitthvað
pínulítið „off“ við hann áður en
við hittumst. Meira „off“ við hann
á deitinu, og sú tilfinning fyrir
honum varð bara sterkari með
hverjum degi eftir deitið,“ segir
konan en hún segir manninn
hafa verið ákafan í að hitta hana
aftur eftir þetta.
Hún ákvað hins vegar að fylgja
innsæinu og leita á náðir Google
til að finna upplýsingar um
manninn. „Þar sem ég er mjög
lífsreynd kona að þá þekki ég ansi
margt. Ég veit eitt og annað og er
góð í að lesa fólk, og er næm fyrir
fólki í þokkabót.“
Grunur konunnar reyndist
réttur. Maðurinn sem hún kynnt-
ist á Tinder heitir Ingi Björn Inga-
son. Hann og félagi hans Jakob
Viðar Grétarsson voru dæmdir í
þriggja ára fangelsi árið 2016, fyrir
að hafa nauðgað konu á heimili
Inga. Konuna höfðu þeir hitt fyrr
um kvöldið á skemmtistaðnum
Spot en fyrir dómi sagðist konan
hafa verið mjög ölvuð og ekki
munað hvernig hún endað heima
hjá Inga. Félagarnir tveir þving-
uðu konuna inni í svefnherbergi
Inga þar sem þeir brutu á henni
kynferðislega og skildu hana
eftir með marbletti á upphand-
leggjum, hægri framhandlegg og
hægri sköflungi.
Braut gegn 12 stúlkum
Undanfarin misseri hafa ís-
lenskar konur reglulega birt
færslur á samfélagsmiðlum og
sagst hafa rekist á eða átt sam-
ræður við dæmda ofbeldis- og
kynferðisglæpamenn á forritinu.
Í sumum tilfellum hafa samræð-
ur á forritinu leitt til stefnumóts.
Erol Topal, 48 ára karlmaður,
var skráður á Tinder á seinasta
ári. Aðeins ári áður hafi Erol
hlotið fimm ára fangelsi fyrir að
nauðga tveimur konum, þeirri
fyrri árið 2015 og þeirri seinni
árið 2016. Þeirri fyrri nauðgaði
Erol eftir að hafa elt hana heim
að nóttu til. Seinni nauðgunin
átti sér stað á heimili Erols og var
einkar hrottaleg og stóð lengi yfir,
Erol hafði deilt leigu bíl með kon-
unni úr miðbæn um. Hann beitti
hana of beldi meðal ann ars með
því að slá hana og kýla ít rekað
í and lit og lík ama. Í samtölum
við lögreglu staðfestu ná grann ar
hans að þeir hefðu heyrt ösk ur og
hróp í rúm an klukku tíma áður en
þeir kölluðu til lög reglu, en þeir
töldu í fyrstu að hljóðin kæmu
frá bíó mynd. Sjálfur hélt Erol því
fram fyrir dómi að konan hefði
sjálf veitt sér þá áverka sem fund-
ust á henni.
Árið 2013 var Eyþór Kolbeinn
Kristbjörnsson sakfelldur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir kyn-
ferðisbrot gagnvart tólf ungum
stúlkum. Eyþór tældi stúlkur til
sín undir því yfirskini að hann
væri „áhugaljósmyndari“ sem
vildi mynda þær. Hann var einnig
kærður fyrir þrjár nauðganir
en aðeins sakfelldur fyrir eina.
Nauðgunin sem hann var sak-
felldur fyrir beindist gegn 16 ára
stúlku, en yngstu fórnarlömb
Eyþórs voru tólf og þrettán ára
þegar hann braut gegn þeim.
Hann var dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi. Málið var tölu-
vert til umræðu á sínum tíma og
hlaut Eyþór Kolbeinn fljótlega
uppnefnið „Eyþór áhugaljós-
myndari.“ Hann afplánaði dóm
sinn í fangelsinu að Sogni.
Undanfarin misseri hafa DV
borist nokkrar ábendingar um
að Eyþór sé virkur á Tinder-for-
ritinu og sé sífellt að stofna nýj-
an aðgang. Oftast notast hann við
nafnið Thor.
„Mun líklega adda þér á Snap“
Í ágúst 2016 nauðgaði 19 ára
piltur, Elvar Sigmundsson, tveim-
ur unglingsstúlkum í sömu vik-
unni. Brotin voru hrottaleg en
brotaþolar voru báðir 15 ára.
Þeirri fyrri nauðgaði hann mánu-
daginn 25. júlí og þeirri síðari
helgina eftir, aðfaranótt sunnu-
dagsins 31. júlí. Fyrri nauðgun-
in átt sér stað á heimili Elvars,
hjá foreldrum hans í Reykjanes-
bæ. Stúlkan sem varð fyrir því
broti lýsti því fyrir dómi svo að
hún hefði talið að hún myndi
deyja þar og þá. Elvar beitti hana
grófu ofbeldi auk þess að nauðga
henni. Hann tók hana meðal
annars kverkataki, sló hana ítrek-
að í andlitið og steig á háls henn-
ar þar sem hún lá á gólfinu.
Í desember þetta sama ár var
Elvar dæmdur í fimm og hálfs ára
fangelsi fyrir brotin. Í júlí 2017,
aðeins sjö mánuðum seinna var
hann hins vegar kominn á Vernd,
eftir að hafa verið á Sogni, og bú-
inn að stofna aðgang á Tinder. DV
greindi frá málinu á sínum tíma.
Fram kom að Elvar hefði byrj-
að á Tinder um svipað leyti og
hann var á leið á Vernd en á Sogni
er öll notkun samskiptamiðla
bönnuð.
„Ljóst er að hann var virkur
á stefnumótaforritinu því hann
„super-lækaði“ nýverið unga
stúlku líkt og sjá má á meðfylgj-
andi mynd. Það þýðir með öðr-
um orðum að hann lýsti yfir
eindregnum áhuga á frekari
kynnum. Á Tinder lýsir hann
sér svo: „Lele mun mest líkleg-
ast adda þér á snap ef ég sé það
cause why the fuck not? Fun
having friends“.
Samfangi Elvars sem DV
ræddi við sagðist óttast veru-
lega að hann myndi nauðga
aftur þar sem hann hefði
sagt „þetta vera eðlilega
framkomu við druslur“.
Skráði sig á Tinder áður en
hann lauk afplánun
Árið 2017 hlaut Hrafn-
kell Óli Hrafnkelsson tíu ára
fangelsis dóm fyrir hrottalegt
ofbeldi gegn konu á þrítugs-
aldri. Í nóvember 2018 greindi
DV frá því að finna mætti að-
gang á Tinder undir hans
nafni og mynd. Hrafnkell var
dæmdur fyrir tilraun til mann-
dráps, frelsissviptingu, nauðg-
un og sérstaklega hættulega lík-
amsárás gegn konunni.
Samkvæmt dómnum kom
Hrafnkell óboðinn til konunn-
ar ásamt félaga sínum eftir að
hafa skemmt sér í miðbænum.
Konan leyfði þeim að gista á
sófa í stofunni. Fyrr en varði var
hann kominn inn í svefnherbergi
hennar og fór að káfa á henni.
Þegar hún hafnaði honum hófst
nærri þriggja tíma martröð. „Vitn-
ið kvaðst þó hafa náð að losa sig
og hlaupa fram á gang og opna
útidyrahurðina, en vegalengd-
in sé svo stutt að ákærði hefði
strax náð vitninu og snúið það
niður með hálstaki fyrir utan úti-
dyrahurðina. Vitnið kvaðst hafa
reynt eins og það gat að sparka
og klípa í punginn á ákærða og
losna,“ segir meðal annars í dómi.
Samkvæmt dómi stóð þetta
yfir lengi og fannst konunni eins
og hún væri að deyja. Það eina
sem hún mundi af þessu hefði
verið að hún hefði hætt að geta
hreyft sig og hristist í fótunum.
Fram kom í frétt DV að það væri
að vísu ekki útilokað að einhver
DÆMDIR NAUÐGARAR Á TINDER
n Fjölmörg dæmi eru um að dæmdir kynferðis- og ofbeldisglæpamenn séu skráðir á forritið n „Ómögulegt að skima alla“
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is