Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 14
14 27. mars 2020FRÉTTIR
Öll þrif fyrir fyrirtæki,
stofnanir og heimili
Daglegar eða reglulegar ræstingar.
Frostagötu 4c, 603 Akureyri Símar: 461 5232 / 892 Netfang: thrif@thrif.is Veffang: www.thrif.is
Vaktsími
allan sólarhringinn
Það er alltaf hægt að hafa samband við okkur ef
óvænt verkefni koma upp.
Vaktsíminn er 8652425
Hafðu samband
og fáðu tilboð í verkið
Ertu að fara á djammið? Kannski ættirðu að skilja símann eftir heima
F
arsímar í dag, þeir nýjustu og flottustu, geta kost-
að á þriðja hundrað þúsund krónur. Um mikil verð-
mæti er því að ræða. Farsíminn er einnig aukahlutur
sem fáir leggja frá sér sjálfviljugir og margir sem hafa
símann innan seilingar, allt frá því að þeir fara á fætur og
þar til þeir fara að sofa. Þar sem um mikil verðmæti er að
ræða, sem fólk er oftast með í fórum sínum á almannafæri
og mannamótum, er að sama skapi nokkuð mikið um að
símum sé stolið.
Fyrir fingralanga er miðbærinn sérstaklega vinsæll
vettvangur til afbrota, þar er fólk oft annars hugar sök-
um hávaða, mannmergðar og um helgar eru margir með
skerta athygli vegna áfengisneyslu. Það er því líklega ekki
að furða að margir Íslendingar hafi lent í því að verðmæt-
um eigum, einkum farsímum, hafi verið stolið af þeim í
miðbænum.
Síminn sendur úr landi
Samkvæmt heimildum DV er talið að gert sé kerfisbundið
út á þjófnað af þessu tagi. Hann sé stundaður til að kom-
ast yfir síma og senda þá úr landi. Samkvæmt heimildum
DV lentu tvær stúlkur í því með skömmu millibili að sím-
um þeirra var stolið á skemmtistaðnum B5. Annar þeirra
fannst með aðstoð staðsetningarforrits, en hinn reyndist
kominn úr landi aðeins nokkrum dögum síðar.
Staðurinn B5 virðist vera sérstaklega vinsæll staður fyrir
fingralanga og hefur verið um árabil. Fyrir nokkrum árum
var greint frá því í fjölmiðlum að 12 einstaklingar lentu í
því þar, sama kvöldið, að símum þeirra var stolið og sam-
kvæmt heimildum blaðamanns er enn mikið um að rán-
dýrir símar hverfi þaðan.
Inni á kvennahópnum Beautytips á Facebook er al-
gengt að sjá konur lýsa eftir símum sínum sem óprúttn-
ir aðilar hafa tekið ófrjálsri hendi. Í óformlegri fyrirspurn
blaðamanns inni í hópnum lýstu margar því yfir að þær
hefðu orðið fórnarlömb þjófa þegar þær skemmtu sér í
miðbænum. Var símum þeirra jafnvel stolið úr lokuðum
veskjum eða renndum vösum og þótt margar greindu frá
slíkum þjófnaði á sömu skemmtistöðunum virtust brotin
eiga sér stað víðs vegar um bæinn.
Tilkynnt brot
DV spurði lögreglu um tíðni tilkynntra brota þar sem grun-
ur léki á þjófnaði á veitinga- og skemmtistöðum. Í svari lög-
reglu segir: „Meðfylgjandi tafla sýnir fjölda tilvika á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem tilkynnt er um þjófnað á gsm síma
eða öðrum munum á veitinga- og/eða skemmtistöðum. Í
einhverjum tilvikum getur verið að um sé að ræða þjófnað
frá staðnum en í flestum tilvikum er um að ræða þjófnað
frá einstaklingum sem eru að heimsækja staðina. Ekki er
hægt að veita upplýsingar eftir stöðum.“
Raunverulegur fjöldi brota gæti þó verið minni þar
sem í einhverjum tilvikum gætu þolendur þjófnaðar talið
að þeir hefðu hreinlega týnt eigum sínum, fremur en að
þeim hafi verið stolið. Enda viljum við flest trúa á hið góða
í samfélaginu.
Í skýrslu Ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarf-
semi á Íslandi, sem kom út í maí í fyrra, kemur fram að
farandbrotahópar erlendra aðila hafi ítrekað komið til
landsins á síðustu árum gagngert í þeim tilgangi að leggja
stund á innbrot og þjófnað. Nokkrir af þeim aðilum sem
DV ræddi við vegna málsins könnuðust við að þjófnaður
á símum þeirra hefði verið rekinn til erlendra aðila og að
þeir hefðu fengið þær upplýsingar frá lögreglu að líklega
væri um skipulögð brot að ræða.
Gætum eigna okkar
Það er því full ástæða til að gæta vel eigna sinna í miðbæn-
um. Vasaþjófar eru margir leiknir í því að komast ofan í
vasa og töskur, en oft gerist þess ekki þörf þar sem yfir-
hafnir og töskur eru oft skildar eftir eftirlitslausar á með-
an eigendur skemmta sér. Förum varlega og pössum upp
á eigur okkar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu deildi fyrir nokkrum
árum þessum góðu ráðum til að hafa í huga á djamminu.
„Gott er að geyma síma á öruggum stað, sérstaklega þegar
verið er að heimsækja veitingastaði eða skemmtistaði en
geyma síma ekki á borðum, í opnum töskum eða í opnum
vösum yfirhafna.
Að sama skapi eru ýmis forrit í boði, annaðhvort frá
framleiðendum eða öðrum aðilum, sem geta til dæmis
sýnt hvar tæki er, tekið mynd af þeim sem reynir að opna
tækið og slær inn rangt lykilorð og margt fleira. Við hvetj-
um fólk að sama skapi til að vera með síma sína læsta
með lykilorði.“ n
Ár Fjöldi brota
2016 206
2017 214
2018 147
2019 155
Kerfisbundinn þjófnaður á krám
MYND: EYÞÓR ÁRNASON