Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 16
16 27. mars 2020FRÉTTIR FÖST Í ÓTTAPRÍSUND Hvernig upplifa kvíða- og OCD-sjúklingar hræðsluna og umræðuna um COVID-19? T il að vera eins hreinskilinn og ég get þá hefur þessi COVID-farald- ur gjörsamlega snúið öllu á hvolf hjá mér,“ segir 32 ára íslenskur karl- maður sem greindur er með heilsukvíða. Á tímum COVID-19 faraldursins forð- ast Íslendingar snertingu í lengstu lög og sprittbrúsar, hlífðarhanskar og andlits- grímur eru staðalbúnaður. Kórónuveiran ægilega heldur öllum í heljargreipum. En fyrir suma er þessi hræðsla ekki ný af nál- inni. Heilsukvíði hrjáir um fimm prósent fólks og tvö til þrjú prósent fólks eru haldin áráttu- og þráhyggjuröskun, sem í mörg- um tilfellum felur í sér gífurlegan ótta við sýkla. Hvernig leggst COVID-19 faraldurinn á þá sem eru alla jafna helteknir af áleitn- um hugsunum, ótta og kvíða sem snýr að heilsunni? „Núna er ástandið þannig að allir í kringum mann eru hræddir við að smitast af þess- um sjúkdómi. Þessi hræðsla er eitthvað sem ég hef upplifað nánast daglega í mörg ár. Ég er vön þessari tilfinningu,“ segir Þuríður Elín Sig urðardótt ir, leikkona og uppi- standari, eða Ebba Sig eins og hún kall ar sig. Hún var greind með ofsakvíða og heilsu- kvíða sem unglingur. Ebba rifjar upp þegar hún var sannfærð um að hún væri að fá hjartaáfall, þó að hún hafi aldrei verið hjartveik eða greind með hjartagalla. „Þá hafði ég heyrt af einhverjum manni sem fékk hjartasjúkdóm mjög ungur og ég var bara sannfærð um að ég væri með undirliggjandi hjartasjúkdóm. Ég fékk í alvöru einkenni hjartaáfalls: verk fyrir brjóstið og doða í hendina. Ég fór í hjartalínurit hjá heimilislækni en auðvitað fannst ekkert að. Heilinn er bara svo sniðugur í að blekkja mann. Um daginn fékk ég millirifjagift og var sannfærð að ég væri með samfallið lunga. Ég hringdi í panikki í mömmu sem fullvissaði mig um að ég gæti nú varla verið að halda uppi samræðum við hana ef lungun í mér væru búin að falla saman! Það er auðvitað ömurlegt að búa stöðugt við þann ótta að eitthvað sé að manni. Rosalega oft, bara ef ég sé eitthvað í sjónvarpinu til dæmis, þá sannfæri ég sjálfa mig um að ég sé með hinn eða þennan sjúkdóm. Ef fólk segir mér frá einhverjum sem það þekkir, sem er með einhvern ákveðinn sjúkdóm, þá hugsa ég strax: Ég gæti örugglega verið með þetta. Þetta hefur auðvitað hamlandi áhrif á mann að mörgu leyti. Ég er rosalega hrædd við marga hluti.“ Á tímabili var Ebba stöðugt á netinu að lesa sér til um hina og þessa sjúkdóma. „Ég byrjaði síðan í hugrænni atferlismeðferð og sálfræðingurinn hreinlega bannaði mér að vera alltaf að gúgla sjúkdóma.“ Auk hugrænu atferlismeðferðarinnar tekur Ebba inn kvíðalyf og hittir reglulega geðlækni. Þannig heldur hún sjúkdómnum niðri. „En í raun losna ég aldrei við þenn- an stöðuga ótta.“ Hún segir sína nánustu skilja líðan hennar. Fólk sem þekkir hana lítið á stundum til að gera lítið úr sjúkdómnum; líta á það sem óþarfa „paranoju“ eða jafn- vel athyglissýki. „Ég hef auðvitað lent í því að það sé hlegið að mér og kannski sagt við mig: „Þú heldur alltaf að það sé allt að þér!“ Það er nú ekki eins og ég sé að gera þetta gamni mínu. Þetta er í alvörunni hræðsla sem heltekur mann alveg. Þetta er ofboðslega sterk hræðslutilfinning. Hugsanirnar fara á versta stað.“ Hún tekur undir með því að ástandið þessa dagana, hræðsla fólks við að smitast af COVID-19, muni hugsanlega auðvelda fólki að setja sig í spor þeirra sem alla daga eru helteknir af hræðslu. „Þessi stöðugi ótti sem ég er alltaf með er vissulega búinn að aukast, ég spritta mig og þvæ hendur „non stop.“ Mér finnst erfitt að fara út og ég held niðri í mér andanum þegar einhver er nálægt mér. Ég er samt með meiri áhyggjur af fólkinu í kringum mig sem er í áhættuhópi.“ „Ég er mun stressaðri en vanalega og ekki bara um að ég smitist af þessu heldur er ég líka mjög hræddur við að smita aðra. Ég vinn með öldruðu fötluðu fólki sem má alls ekki smitast og ég er skíthræddur við að til dæmis snerta vitlausan stað í matvöru- búð og að sótthreinsandi sprittið virki ekki, sem verði til þess að ég komi í vinnuna og smiti einhvern sem gæti þá ekki lifað veikindin af. Svona hlutir halda mér gjörsam- lega í gíslingu þessa dagana. Ég veit alveg að þetta er órökrétt. Ég fer hanskaklæddur í búðina, passa hvað ég snerti og sótthreinsa meira að segja hanskana áður en ég fer aftur úr þeim en engu að síður er tilfinningin eins og að ganga á línu yfir virkt eldfjall,“ segir maðurinn sem rætt var við í byrjun, en hann kýs að koma ekki fram undir nafni. „Ég á erfitt með að vera innan um fólk sem er veikt án þess að ég finni strax fyrir sömu einkennum. Þetta hefur oft orðið til þess ég verð mikið „veikur“ án þess að vera í raun veikur. Þá nær hausinn minn samt að framkalla einkennin og í ofanálag verð ég mjög kvíðinn yfir því að ég skuli vera veikur og á sama tíma að þetta sé bara ímyndun. Sem er virkilega íþyngjandi og óþægilegt ástand. Heilsukvíði hefur ekki áhrif á mig dagsdaglega, en á tímum eins og þessum þá eru áhrifin frekar mikil.“ Hann segist hafa náð góðum bata á tímabili en eftir að COVID-19 komst í hámæli fór hann að finna aftur fyrir kvíðaköstum. „Þetta er orðið það slæmt, að síðan þetta byrjaði hef ég varla farið út úr húsi nema þegar ég virkilega þarf þess. Í fyrsta lagi þá varð þetta til þess að ég fór að finna aftur fyrir þessari gífurlegu vanlíðan sem fylgir kvíðaköstum. Ætli besta leiðin til að útskýra þetta sé ekki að manni líður eins og allur líkaminn titri og sé tíu sinnum þyngri, en á sama tíma ertu í viðvarandi „ótta“-ástandi en getur hvergi flúið. Sem er hreinlega ömurlegt.“ Hann telur að fordómar gagnvart kvíða séu frekar áberandi í samfélaginu. „Fólk sem þekkir þetta ekki af eigin reynslu er alltaf mjög fljótt að kalla kvíða aumingjaskap eða jafnvel leti. Þetta er að mínu mati er algerlega sprottið upp úr fá- fræði. Einhvern tímann heyrði ég nú frá geðlækni að alvarlegustu geðsjúkdómarn- ir væru þunglyndi og kvíði þar sem þeir hafa mestu áhrifin á samfélagið. Ef ég brýt á mér ökklann og get ekki gengið vegna þess, þá kallar enginn mig aumingja en ef einstaklingur er heltekinn af kvíða, heilsukvíða eða öðrum birtingarmyndum og get- ur hreinlega ekki „funkerað“ í aðstæðum vegna einkenna, þá er oftar en ekki annað hljóð í fólki. Þetta veldur því að margir hreinlega tala ekki um kvíðann sinn og leita sér þess vegna aldrei hjálpar og ástandið versnar og versnar. Þetta verður vítahringur sem ég get vottað að virkilega erfitt er að komast út úr. Að hlaða fordómum og skömm ofan á einstakling út af veikindum er út í hött og hvaða rökhugsandi manneskja sem er ætti að geta skilið það.“ Fer varla út úr húsi Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Heldur niðri í sér andanum nálægt fólki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.