Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 18
18 27. mars 2020 Tímavélin Gamla auglýsinginVikan. 31.03. 1983 MI NOTE 10: Mi Note 10 pakkar fimm myndavélum sem hver og ein hefur sitt fram á að færa - meðal annars 108MP myndflögu. Ekki nóg með það heldur kemur síminn með risa stórri 5.260mAh rafhlöðu sem endist auðveldlega í 2 daga í mikilli notkun. Hvort sem þú ert atvinnu ljósmyndari eða að stíga inn í fullorðins árin, þá viltu ekki láta þetta tryllitæki framhjá þér fara! Þegar vídeóspólan kom til Íslands n Bylting í afþreyingu n Kvikmyndahúsaeigendum fannst hagsmunum sínum ógnað n Vídeógláp var talið skaðlegt börnum og ungmennum Í upphafi níunda áratugarins var aðeins ein sjónvarpsstöð á Ís­ landi og á fimmtudagskvöld­ um voru engar útsendingar. Ís­ lendingar þurftu oft að bíða lengi eftir því að nýjustu Hollywood­ myndirnar kæmu í sýningu í kvikmyndahúsum. Það breyttist allt með tilkomu myndbands­ spólunnar. Framboð á afþreying­ arefni jókst gífurlega og nokkrum árum síðar voru myndbandaleig­ ur á nánast hverju götuhorni. Auglýsingar um fyrstu mynd­ bandstækin hvöttu fólk til að taka upp sjónvarpsdagskrá RÚV og horfa svo á myndefnið á fimmtu­ dagskvöldum. Það voru þó ekki allir sáttir við myndabandavæð­ inguna. Kvikmyndahúsaeigend­ um fannst hagsmunum sínum ógnað og vídeógláp var talið skað­ legt börnum og ungmennum. Á upphafsárum myndbanda­ væðingarinnar var hægt að kaupa eða leigja myndbönd eða ganga í svokallaða myndbandaklúbba. Videobankinn við Laugaveg var opnaður í maí 1980 og var ein fyrsta myndbandaleigan hér á landi ásamt Videospólunni sem rekin var á á horni Bræðraborgar­ stígs og Holtsgötu. Á næstu miss­ erum spruttu myndbandaleigur upp eins og gorkúlur úti um allt land. „Það má slá því föstu að myndbandaæðið er nú hafið fyrir alvöru hér á landi sem annarsstaðar. Þess má víða sjá merki, þó fyrst og fremst á þeim fjölda myndbandaleiga sem komið hafa fram í dagsljósið á undanförnum mánuðum. Horfið úr forstofuherbergjum og kjallarakytrum í vistlegt húsnæði, sumar hverjar við dýrustu verslunargötur borgarinnar. Myndsegulbandstæki eru óspart auglýst og seljast eins og heitar lummur að oss er tjáð. Blöð um video (myndbönd, myndsegulbönd) frá nágrannaþjóðunum hafa nú unnið sér veglegan sess í hillum bókabúðanna og til dæmis um uppgang þessa nýjasta eftirlætis neysluþjóðfélagsins má benda á að nokkur gamalgróin kvikmyndarit hafa séð sitt óvænna og bætt videoinu í blaðhausinn.“ Þannig hljómaði frétt Morgunblaðsins í október árið 1981. „Ástæðurnar fyrir ásókninni í „vídeóið“ eru margvíslegar. Þar kemur til tíska, forvitni, þrýstingur frá börnum og óánægja með íslenska sjónvarpið. RÚV er ætlað að þjóna breiðum hóp á einni rás með takmörkuðum sýningartíma. Stór hluti þjóðarinnar virðist hæstánægður með frammistöðu sjónvarpsins og fimmtudags- og sumarlokun mælist vel fyrir. En aðrir vilja meira og þá fyrst og fremst léttmeti til afþreyingar. Og þar koma myndsegulböndin til skjalanna,“ ritaði Hjálmtýr Heiðdal í pistli í Morgunblaðinu í ágúst 1981. Ekki áttu allir myndbandstæki til að byrja með og það var ekki fyrr undir lok níunda áratugarins að finna mátti myndbandstæki á nánast hverju heimili í landinu. Í mars 1981 heimsótti blaðamaður myndbandaleigu við Skólavörðustíg og ræddi við einn af fastagestum leigunnar. Í greininni segir: „Ég fékk mér myndsegulband á föstudaginn í síðustu viku, og ætli ég hafi ekki séð um 20 mynd- ir frá þeim tima,“ sagði Páll P. Pálsson þar sem hann var stadd- ur í Kvikmyndmarkaðnum á Skólavörðustíg, til þess að leigja sér eina spóluna í viðbót. „Það er staðreynd að síðan ég keypti tækið á föstu- daginn, hef ég ekki farið í bíó,“ sagði Páll P. Pálsson og var ekkert óánægður með leiguverðið, þar sem hann gæti með þessu val- ið það sem hann sjálfur vildi sjá“. „Það vita það líka all- ir að eins konar videoæði hefur gripið um sig meðal almennings. Það að fá sér video er hreinlega komið í tísku. Þannig keppast allir við að kaupa sér myndbönd og spólur þessar vikur og mánuði, sem það situr öllum stundum yfir í heimahús- um,“ sagði reiður kvikmynda­ húsaeigandi í samtali við Helgar­ blaðið í september 1982. Aðsókn í kvikmyndahús hafði þá minnk­ að töluvert. Seinna meir áttu þó kvikmyndahúsin eftir að reka sín­ ar eigin myndbandaleigur. „Videovæðingin ógnar börnum þjóðarinnar“ Á þessum tíma var nær ekkert eft­ irlit með myndbandamarkaðn­ um á Íslandi. Eigendur mynd­ bandaleiga vissu ekki hvað var leyfilegt og hvað ekki og hluti þeirra mynda sem boðið var upp þótti fara yfir öll velsæmismörk. „Eins og gefur að skilja voru þetta afskaplega frumstæð fyr- irtæki og allt öðruvísi upp- byggð en núna. Menn nánast hrúguðu upp í hillur hjá sér öll- um þeim spólum sem þeir gátu komist yfir, og fólk leigði nærri því hvað sem var. Á þeim tíma biðu menn jafnvel bara eftir næstu spólu, sem kom inn, og horfðu á hana burtséð frá því hvað á henni var,“ sagði Ásge­ ir Þormóðsson, formaður SÍM, í samtali við Morgunblaðið árið 1990. Og margir óttuðust áhrif vídeóvæðingarinnar á ungdóm landsins. Myndbandstækið var á mörgum heimilum notað sem barnapía. Í október 1982 sendi Fóstrufélag Íslands frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Vídeóvæðing ógnar börnum þjóðarinnar. Sá tími, sem börn notuðu til heilbrigðra leikja fer nú í sjónvarpsgláp og getur gengið svo langt að þau njóti vart nægilegrar hvíldar. Ógnvænlegast er þó að efnið sem boðið er upp á er misjafn að gæðum og sjaldan við hæfi barna. Börn eru óvarðasti neytendahópurinn í okkar samfélagi og heimilin eru misvel í stakk búin til að stýra sjónvarpsnotkuninni. Fóstrur hvetja foreldra til að vernda börnin sín og gera þá kröfu til ráðamanna þjóðarinnar að hagsmunir barna sitji í fyrirrúmi fremur en gróðasjónarmið fárra manna.“ Í pistli sem birtist í Tímanum í júlí 1982 ritaði Ingibjörg Haraldsdóttir: „Hér á landi hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir á áhrifum vídeógláps á börn og unglinga. Slíkar rannsóknir hafa hinsvegar verið gerðar í nágrannalöndum okkar, og niðurstöður þeirra ættu að nægja okkur sem víti til varnaðar. Þær eru allar á eina lund: ofnotkun sjónvarps og myndbanda hefur sljóvgandi áhrif, gerir börnin óvirk og þurrkar út skilin milli veruleika og óraunveruleika. Þeir sem stöðugt horfa á ofbeldisefni í þessum miðlum fara að líta á ofbeldi sem sjálfsagða lausn. Sú kenning að börn og unglingar fái útrás fyrir „meðfædda árásarhneigð“ með því að horfa á ofbeldi á skermi eða tjaldi hefur verið vegin og léttvæg fundin. Ofbeldi kallar á ofbeldi.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.