Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 21
FÓKUS 2127. mars 2020 ný andlit. Vinnur samfélagið að því í sam- einingu að framleiða nýtt og ferskt efni fyr- ir samfélagsmiðilinn. Flestir af meðlimum Hype House búa í samnefndu glæsihýsi í Los Angeles, þar á meðal Charli og systir hennar Dixie. Þær ferðast hins vegar mikið og reyna að skipta tíma sínum jafnt á milli Los Angeles og foreldrahúsa í Connecticut. Það er ýmislegt sem gengur á í Hype House og þar kynntist Charli til að mynda Tik Tok-stjörnunni Chase Hudson, sem gengur ávallt undir sviðsnafninu Lil- Huddy. Amor hitti þau með örvum sín- um og byrjuðu þau saman í lok desember á síðasta ári. Þau leyfðu fylgjendum sín- um að engjast um af forvitni og opinber- uðu sambandið ekki strax. Chase er einn af kjarnameðlimum Hype House og hafa þau Charli birt sæg af dansmyndböndum af sér saman. Nú er hins vegar óljóst hvort þau séu enn ástfangin því Charli hefur gef- ið í skyn á Twitter að sambandinu sé lokið. Danshæfileikar Charli hafa ekki aðeins náð að lyfta stjörnu hennar hátt á himin- inn heldur hefur öll fjölskyldan grætt á Tik Tok-frægðinni. Þann 15. janúar síðast- liðinn skrifaði öll fjölskyldan undir samn- ing hjá umboðsskrifstofunni United Talent Agency (UTA). Fjölskyldufaðirinn Marc er kominn með sína eigin Tik Tok-síðu og er nú með um tvær milljónir fylgjenda. Syst- ir Charli, Dixie, hefur einnig fetað í fótspor litlu systur og er með 8,5 milljónir fylgj- enda á Tik Tok. Umboðsskrifstofan mun í framtíðinni vinna með fjölskyldunni að alls kyns verkefnum tengdum stafrænu efni, hlaðvörpum, bókum og sjónvarpi, svo fátt eitt sé nefnt. Charli hefur nú þegar leik- ið í stórri auglýsingu fyrir Sabra Hummus og var auglýsingin sýnd fyrir úrslitaleik Of- urskálarinnar í byrjun febrúar í fyrra. Það er því ljóst að D‘Amelio-fjölskyldan stefnir á heimsyfirráð, öllum foreldrum til mikill- ar gleði, eða þannig. n Tik Tok í hnotskurn n 500 milljónir notenda á heimsvísu n 90% notenda nota miðilinn daglega n Níundi vinsælasti samfélagsmiðillinn n Fjöldi niðurhals; tæplega 2 milljarðar n 41% notenda eru á aldrinum 16 til 24 ára n Meðalnotandi eyðir 52 mínútum á Tik Tok á dag n Horft er á yfir milljarð myndbanda á degi hverjum Fræg fjölskylda Charli ásamt systur sinni og foreldrum. Eru ballið búið? Chase og Charli. Ótrúleg velgengni Skjáskot úr auglýsingu sem Charli lék í fyrir Sabra Hummur. Ung á uppleið Charli verður sextán ára í maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.