Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Side 36
36 FÓKUS 27. mars 2020 10 kostulegustu Facebook-hóparnir Þú getur kynnst nýjum, spennandi og skrýtnum samfélögum án þess að fara út fyrir hússins dyr Á stærsta samskiptamiðli heims leynist óneitanlega margt skemmtilegt. Facebook-hópar, opnir sem lokaðir, eru þar eins og lítil samfélög, uppfull af fjöl- breytilegu fólki og alls konar skoðunum. Það er óhætt að fullyrða að allir geti fundið sér eitthvað við hæfi, hvort sem viðkomandi hefur eitthvað að selja, þarf létta á sér, þrasa eða einfaldlega leita að nýjum tæki- færum til þess að fiska eftir upplýsingum eða finna fólk með sameiginleg áhugasvið. Galdurinn er vissulega að vita hvar á að leita. Hópur um hópa Ertu með valkvíða og veist ekkert hverju skal „adda.“ Eins og nafn hópsins gefur til kynna er hér breiður samtíningur á hópum á Facebook, ásamt því sem er „inn“ núna. Maður finnur ekki betri byrjunarreit. Samtök um bíllausan lífsstíl Samtök um bíllausan lífsstíl eru hópur fólks sem á það sameiginlega áhugamál að vinna að því að gera bíl- lausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er. Gísli Marteinn Baldursson hefur verið leið- togi hópsins. Kannski er kominn tími á að segja skilið við bílinn eða blása rykið af reiðhjólinu, sérstaklega í ljósi þess að farið er að birta aðeins til. Heimur batnandi fer „Hérna á ekki heima nein svartsýni eða bábilja, né það sem má kalla óttastjórnun,“ segir í lýsingu stjórnenda hópsins Heimur batnandi fer. Kjarnamarkmið þessa hóps er að benda á það góða og jákvæða sem er allt í kringum okkur, enda er af nægu að taka. Birtar eru upplífgandi fréttir og skilaboð sem vinna gegn þeim hremmingum sem aðrir miðlar eiga til að einblína á og ekki síður falskar fréttir eða villandi tölfræðiupplýs- ingar um þá hrörnandi veröld sem við búum í. Er glas- ið þitt hálffullt? Þá er um að gera að líta við með bros á vör og neikvæðnina í aftursætinu. Pabbahúmor í Cher-flokki Ef svokallaðir pabbabrandarar eru að þínu skapi, þá þarftu ekki að leita lengra. Chertrúarsöfnuðurinn er gjörsamlega morandi í orðagríni og trommusláttar- bröndurum þar sem hver notandi á fætur öðrum keppist við að finna húmorinn í Cher. Mögulega getur þessi hópur verið of mikið fyrir suma, en sum innslög- in eru hugmyndarík og skemmtilega myndskreytt. Það eitt og Cher gerir hópinn þess virði að fá meðmæli á þessum alvarlegu tímum. Hraðamælinga Tips Það er frekar óvinsælt sport að vera stöðvaður af lög- reglunni. Í hópnum Hraðamælinga Tips er að finna samansafn af miskunnsömum samverjum sem fylgj- ast grannt með hvar lögreglan mælir hraða á götum og lætur aðra vita. Þarna er einnig bent á hæga umferð, vegaframkvæmdir eða aðrar seinkanir. Hvernig upp- lýsingarnar sem finnast í þessum hópi eru notaðar er alfarið á ábyrgð hvers og eins, en eflaust hafa ófáir sloppið við hraðasektir vegna hópsins. Svo getur hver og einn velt fyrir sér hvort það sé gott eða slæmt. Áhugafólk um skegg Á tímum COVID-19 hafa skegg og mottur gjarnan þurft að fjúka í þágu samfélagsöryggis. Markmið grúppunnar Áhugafólk um skegg gengur sérstaklega út á að deila fróðleik og skemmtun í tengslum við andlits- hár. Og vissulega eru myndir með! Hrós dagsins Það er ekkert sem gleður meira, gefur meiri orku og gerir fólk ánægðara en hrós sem er sett fram af ein- lægni, eins og segir í lýsingu hópsins Hrós dagsins. Í þessum hópi þykir ekki töff að vera neikvæður og mætti gera ýmislegt verra en að sjá samlanda sína deila alls konar jákvæðum fréttum og gullhömrum, og tilheyrandi umræður í því samhengi. Bylt fylki Þessi hópur stækkar ört, sem er engin furða því hann er stórskemmtilegur. Þarna er á ferðinn hópur áhuga- fólks um kvikmyndir og orðagrín. Tilgangur hópsins er að viðhalda þeirri hefð, sem því miður er að hverfa af sjónarsviðinu, að íslenska heiti erlendra mynda og þá með húmorinn að vopni. Heiti hópsins er tilvísun í svipað orðagrín. Á árum áður var heiti stórmyndarinn- ar The Matrix þýtt sem Fylki á íslensku. Þriðja myndin í þríleiknum hét The Matrix Revolutions og þaðan er nafnið komið: Bylt Fylki. Segja má að hið heilaga gral slíkra þýðinga sé þegar sakamálaþættirnir „Law & Order: Criminal intent“ var þýtt sem „Lög og regla: Glæpamaður í tjaldi“ í sjónvarpsdagskrá einni um árið. Sá brandari fór víða á samfélagsmiðlum. Bachelor Beibs Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að Íslendingar eru óðir í raunveruleikaþáttinn The Bachelor. Í hópnum Bachelor Beibs er stöðugt rætt um nýjustu þættina, pörin og slúðrið í kringum þau. Einnig er deilt alls kon- ar glensi í formi svokallaðra jarma (e. memes). Afar hressandi hópur fyrir hressa aðdáendur, en nú eru yfir sjö þúsund manns í hópnum. Það sem enginn viðurkennir Ef Hrós dagsins er of glaðlynt fyrir þig þá er eflaust kominn tími til að taka neikvæða pólinn. Þar kemur sterkur inn hópurinn Það sem enginn viðurkennir, en þar skiptast Facebook-notendur á að birta alls konar umdeildar skoðanir. Hópurinn er sjálfsagt í barnalegri kantinum en umræðurnar sem skapast oft eru betri en margt afþreyingarefni. Hátt í 22 þúsund Íslendingar til- heyra umræddum hópi. Tölvuleikir – Spjall fyrir alla Tölvuleikjasamfélagið á Íslandi er stórt en heldur dreift og oft skipað yngri kynslóðinni. Þessi tiltekni Face- book-hópur er vinalegur vettvangur þar sem rætt er um alls kyns leiki, gamla og nýja, og tengd málefni án fordóma, eineltis eða almennra leiðinda. Svoleiðis á það að vera.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.