Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Síða 36
36 FÓKUS 27. mars 2020
10 kostulegustu Facebook-hóparnir
Þú getur kynnst nýjum, spennandi og skrýtnum samfélögum án þess að fara út fyrir hússins dyr
Á
stærsta samskiptamiðli heims leynist óneitanlega
margt skemmtilegt. Facebook-hópar, opnir sem
lokaðir, eru þar eins og lítil samfélög, uppfull af fjöl-
breytilegu fólki og alls konar skoðunum.
Það er óhætt að fullyrða að allir geti fundið sér eitthvað
við hæfi, hvort sem viðkomandi hefur eitthvað að selja,
þarf létta á sér, þrasa eða einfaldlega leita að nýjum tæki-
færum til þess að fiska eftir upplýsingum eða finna fólk
með sameiginleg áhugasvið. Galdurinn er vissulega að
vita hvar á að leita.
Hópur um hópa
Ertu með valkvíða og veist ekkert hverju skal „adda.“
Eins og nafn hópsins gefur til kynna er hér breiður
samtíningur á hópum á Facebook, ásamt því sem er
„inn“ núna. Maður finnur ekki betri byrjunarreit.
Samtök um bíllausan lífsstíl
Samtök um bíllausan lífsstíl eru hópur fólks sem á það
sameiginlega áhugamál að vinna að því að gera bíl-
lausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti
en nú er. Gísli Marteinn Baldursson hefur verið leið-
togi hópsins. Kannski er kominn tími á að segja skilið
við bílinn eða blása rykið af reiðhjólinu, sérstaklega í
ljósi þess að farið er að birta aðeins til.
Heimur batnandi fer
„Hérna á ekki heima nein svartsýni eða bábilja, né það
sem má kalla óttastjórnun,“ segir í lýsingu stjórnenda
hópsins Heimur batnandi fer. Kjarnamarkmið þessa
hóps er að benda á það góða og jákvæða sem er allt
í kringum okkur, enda er af nægu að taka. Birtar eru
upplífgandi fréttir og skilaboð sem vinna gegn þeim
hremmingum sem aðrir miðlar eiga til að einblína á
og ekki síður falskar fréttir eða villandi tölfræðiupplýs-
ingar um þá hrörnandi veröld sem við búum í. Er glas-
ið þitt hálffullt? Þá er um að gera að líta við með bros á
vör og neikvæðnina í aftursætinu.
Pabbahúmor í Cher-flokki
Ef svokallaðir pabbabrandarar eru að þínu skapi, þá
þarftu ekki að leita lengra. Chertrúarsöfnuðurinn er
gjörsamlega morandi í orðagríni og trommusláttar-
bröndurum þar sem hver notandi á fætur öðrum
keppist við að finna húmorinn í Cher. Mögulega getur
þessi hópur verið of mikið fyrir suma, en sum innslög-
in eru hugmyndarík og skemmtilega myndskreytt. Það
eitt og Cher gerir hópinn þess virði að fá meðmæli á
þessum alvarlegu tímum.
Hraðamælinga Tips
Það er frekar óvinsælt sport að vera stöðvaður af lög-
reglunni. Í hópnum Hraðamælinga Tips er að finna
samansafn af miskunnsömum samverjum sem fylgj-
ast grannt með hvar lögreglan mælir hraða á götum og
lætur aðra vita. Þarna er einnig bent á hæga umferð,
vegaframkvæmdir eða aðrar seinkanir. Hvernig upp-
lýsingarnar sem finnast í þessum hópi eru notaðar
er alfarið á ábyrgð hvers og eins, en eflaust hafa ófáir
sloppið við hraðasektir vegna hópsins. Svo getur hver
og einn velt fyrir sér hvort það sé gott eða slæmt.
Áhugafólk um skegg
Á tímum COVID-19 hafa skegg og mottur gjarnan
þurft að fjúka í þágu samfélagsöryggis. Markmið
grúppunnar Áhugafólk um skegg gengur sérstaklega út
á að deila fróðleik og skemmtun í tengslum við andlits-
hár. Og vissulega eru myndir með!
Hrós dagsins
Það er ekkert sem gleður meira, gefur meiri orku og
gerir fólk ánægðara en hrós sem er sett fram af ein-
lægni, eins og segir í lýsingu hópsins Hrós dagsins.
Í þessum hópi þykir ekki töff að vera neikvæður og
mætti gera ýmislegt verra en að sjá samlanda sína
deila alls konar jákvæðum fréttum og gullhömrum, og
tilheyrandi umræður í því samhengi.
Bylt fylki
Þessi hópur stækkar ört, sem er engin furða því hann
er stórskemmtilegur. Þarna er á ferðinn hópur áhuga-
fólks um kvikmyndir og orðagrín. Tilgangur hópsins
er að viðhalda þeirri hefð, sem því miður er að hverfa
af sjónarsviðinu, að íslenska heiti erlendra mynda og
þá með húmorinn að vopni. Heiti hópsins er tilvísun í
svipað orðagrín. Á árum áður var heiti stórmyndarinn-
ar The Matrix þýtt sem Fylki á íslensku. Þriðja myndin
í þríleiknum hét The Matrix Revolutions og þaðan
er nafnið komið: Bylt Fylki. Segja má að hið heilaga
gral slíkra þýðinga sé þegar sakamálaþættirnir „Law
& Order: Criminal intent“ var þýtt sem „Lög og regla:
Glæpamaður í tjaldi“ í sjónvarpsdagskrá einni um árið.
Sá brandari fór víða á samfélagsmiðlum.
Bachelor Beibs
Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að Íslendingar eru
óðir í raunveruleikaþáttinn The Bachelor. Í hópnum
Bachelor Beibs er stöðugt rætt um nýjustu þættina,
pörin og slúðrið í kringum þau. Einnig er deilt alls kon-
ar glensi í formi svokallaðra jarma (e. memes). Afar
hressandi hópur fyrir hressa aðdáendur, en nú eru yfir
sjö þúsund manns í hópnum.
Það sem enginn viðurkennir
Ef Hrós dagsins er of glaðlynt fyrir þig þá er eflaust
kominn tími til að taka neikvæða pólinn. Þar kemur
sterkur inn hópurinn Það sem enginn viðurkennir, en
þar skiptast Facebook-notendur á að birta alls konar
umdeildar skoðanir. Hópurinn er sjálfsagt í barnalegri
kantinum en umræðurnar sem skapast oft eru betri en
margt afþreyingarefni. Hátt í 22 þúsund Íslendingar til-
heyra umræddum hópi.
Tölvuleikir – Spjall fyrir alla
Tölvuleikjasamfélagið á Íslandi er stórt en heldur dreift
og oft skipað yngri kynslóðinni. Þessi tiltekni Face-
book-hópur er vinalegur vettvangur þar sem rætt er
um alls kyns leiki, gamla og nýja, og tengd málefni án
fordóma, eineltis eða almennra leiðinda. Svoleiðis á
það að vera.