Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2020, Blaðsíða 18
18 27. mars 2020
Tímavélin Gamla auglýsinginVikan. 31.03. 1983
MI NOTE 10:
Mi Note 10 pakkar fimm
myndavélum sem hver og ein
hefur sitt fram á að færa - meðal
annars 108MP myndflögu. Ekki
nóg með það heldur kemur
síminn með risa stórri 5.260mAh
rafhlöðu sem endist auðveldlega
í 2 daga í mikilli notkun. Hvort
sem þú ert atvinnu ljósmyndari
eða að stíga inn í fullorðins árin,
þá viltu ekki láta þetta tryllitæki
framhjá þér fara!
Þegar vídeóspólan kom til Íslands
n Bylting í afþreyingu n Kvikmyndahúsaeigendum fannst hagsmunum sínum ógnað
n Vídeógláp var talið skaðlegt börnum og ungmennum
Í
upphafi níunda áratugarins var
aðeins ein sjónvarpsstöð á Ís
landi og á fimmtudagskvöld
um voru engar útsendingar. Ís
lendingar þurftu oft að bíða lengi
eftir því að nýjustu Hollywood
myndirnar kæmu í sýningu í
kvikmyndahúsum. Það breyttist
allt með tilkomu myndbands
spólunnar. Framboð á afþreying
arefni jókst gífurlega og nokkrum
árum síðar voru myndbandaleig
ur á nánast hverju götuhorni.
Auglýsingar um fyrstu mynd
bandstækin hvöttu fólk til að taka
upp sjónvarpsdagskrá RÚV og
horfa svo á myndefnið á fimmtu
dagskvöldum. Það voru þó ekki
allir sáttir við myndabandavæð
inguna. Kvikmyndahúsaeigend
um fannst hagsmunum sínum
ógnað og vídeógláp var talið skað
legt börnum og ungmennum.
Á upphafsárum myndbanda
væðingarinnar var hægt að kaupa
eða leigja myndbönd eða ganga
í svokallaða myndbandaklúbba.
Videobankinn við Laugaveg var
opnaður í maí 1980 og var ein
fyrsta myndbandaleigan hér á
landi ásamt Videospólunni sem
rekin var á á horni Bræðraborgar
stígs og Holtsgötu. Á næstu miss
erum spruttu myndbandaleigur
upp eins og gorkúlur úti um allt
land.
„Það má slá því föstu að
myndbandaæðið er nú hafið
fyrir alvöru hér á landi sem
annarsstaðar. Þess má víða sjá
merki, þó fyrst og fremst á þeim
fjölda myndbandaleiga sem
komið hafa fram í dagsljósið
á undanförnum mánuðum.
Horfið úr forstofuherbergjum og
kjallarakytrum í vistlegt húsnæði,
sumar hverjar við dýrustu
verslunargötur borgarinnar.
Myndsegulbandstæki eru
óspart auglýst og seljast
eins og heitar lummur að
oss er tjáð. Blöð um video
(myndbönd, myndsegulbönd)
frá nágrannaþjóðunum hafa nú
unnið sér veglegan sess í hillum
bókabúðanna og til dæmis um
uppgang þessa nýjasta eftirlætis
neysluþjóðfélagsins má benda á að
nokkur gamalgróin kvikmyndarit
hafa séð sitt óvænna og bætt
videoinu í blaðhausinn.“
Þannig hljómaði frétt
Morgunblaðsins í október árið
1981.
„Ástæðurnar fyrir ásókninni í
„vídeóið“ eru margvíslegar. Þar
kemur til tíska, forvitni, þrýstingur
frá börnum og óánægja með
íslenska sjónvarpið. RÚV er ætlað
að þjóna breiðum hóp á einni rás
með takmörkuðum sýningartíma.
Stór hluti þjóðarinnar virðist
hæstánægður með frammistöðu
sjónvarpsins og fimmtudags- og
sumarlokun mælist vel fyrir. En
aðrir vilja meira og þá fyrst og
fremst léttmeti til afþreyingar.
Og þar koma myndsegulböndin
til skjalanna,“ ritaði Hjálmtýr
Heiðdal í pistli í Morgunblaðinu í
ágúst 1981.
Ekki áttu allir myndbandstæki
til að byrja með og það var ekki
fyrr undir lok níunda áratugarins
að finna mátti myndbandstæki
á nánast hverju heimili í
landinu. Í mars 1981 heimsótti
blaðamaður myndbandaleigu
við Skólavörðustíg og ræddi við
einn af fastagestum leigunnar. Í
greininni segir:
„Ég fékk mér myndsegulband
á föstudaginn í síðustu viku, og
ætli ég hafi ekki séð um 20 mynd-
ir frá þeim tima,“ sagði Páll P.
Pálsson þar sem hann var stadd-
ur í Kvikmyndmarkaðnum á
Skólavörðustíg, til þess að leigja
sér eina spóluna í viðbót. „Það
er staðreynd að síðan
ég keypti tækið á föstu-
daginn, hef ég ekki farið í
bíó,“ sagði Páll P. Pálsson
og var ekkert óánægður
með leiguverðið, þar sem
hann gæti með þessu val-
ið það sem hann sjálfur
vildi sjá“.
„Það vita það líka all-
ir að eins konar videoæði
hefur gripið um sig meðal
almennings. Það að fá sér
video er hreinlega komið í
tísku. Þannig keppast allir
við að kaupa sér myndbönd
og spólur þessar vikur og
mánuði, sem það situr öllum
stundum yfir í heimahús-
um,“ sagði reiður kvikmynda
húsaeigandi í samtali við Helgar
blaðið í september 1982. Aðsókn
í kvikmyndahús hafði þá minnk
að töluvert. Seinna meir áttu þó
kvikmyndahúsin eftir að reka sín
ar eigin myndbandaleigur.
„Videovæðingin ógnar börnum
þjóðarinnar“
Á þessum tíma var nær ekkert eft
irlit með myndbandamarkaðn
um á Íslandi. Eigendur mynd
bandaleiga vissu ekki hvað var
leyfilegt og hvað ekki og hluti
þeirra mynda sem boðið var upp
þótti fara yfir öll velsæmismörk.
„Eins og gefur að skilja voru
þetta afskaplega frumstæð fyr-
irtæki og allt öðruvísi upp-
byggð en núna. Menn nánast
hrúguðu upp í hillur hjá sér öll-
um þeim spólum sem þeir gátu
komist yfir, og fólk leigði nærri
því hvað sem var. Á þeim tíma
biðu menn jafnvel bara eftir
næstu spólu, sem kom inn, og
horfðu á hana burtséð frá því
hvað á henni var,“ sagði Ásge
ir Þormóðsson, formaður SÍM,
í samtali við Morgunblaðið árið
1990.
Og
margir óttuðust áhrif
vídeóvæðingarinnar á ungdóm
landsins. Myndbandstækið var
á mörgum heimilum notað sem
barnapía.
Í október 1982 sendi
Fóstrufélag Íslands frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Vídeóvæðing ógnar börnum
þjóðarinnar. Sá tími, sem börn
notuðu til heilbrigðra leikja
fer nú í sjónvarpsgláp og getur
gengið svo langt að þau njóti vart
nægilegrar hvíldar. Ógnvænlegast
er þó að efnið sem boðið er
upp á er misjafn að gæðum og
sjaldan við hæfi barna. Börn eru
óvarðasti neytendahópurinn í
okkar samfélagi og heimilin eru
misvel í stakk búin til að stýra
sjónvarpsnotkuninni. Fóstrur
hvetja foreldra til að vernda börnin
sín og gera þá kröfu til ráðamanna
þjóðarinnar að hagsmunir
barna sitji í fyrirrúmi fremur en
gróðasjónarmið fárra manna.“
Í pistli sem birtist í Tímanum í
júlí
1982 ritaði
Ingibjörg Haraldsdóttir:
„Hér á landi hafa ekki verið
gerðar neinar rannsóknir á
áhrifum vídeógláps á börn og
unglinga. Slíkar rannsóknir
hafa hinsvegar verið gerðar
í nágrannalöndum okkar,
og niðurstöður þeirra ættu
að nægja okkur sem víti til
varnaðar. Þær eru allar á eina
lund: ofnotkun sjónvarps og
myndbanda hefur sljóvgandi
áhrif, gerir börnin óvirk og
þurrkar út skilin milli veruleika
og óraunveruleika. Þeir sem
stöðugt horfa á ofbeldisefni
í þessum miðlum fara að
líta á ofbeldi sem sjálfsagða
lausn. Sú kenning að börn
og unglingar fái útrás fyrir
„meðfædda árásarhneigð“ með
því að horfa á ofbeldi á skermi
eða tjaldi hefur verið vegin og
léttvæg fundin. Ofbeldi kallar á
ofbeldi.“ n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is