Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Side 10

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Side 10
2 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Ef við athugum skemmtana- og iþróttalíf okkar fslendinga, verð- um við að viðurkenna að það er fremur fábreytt, minnsta kosti held ég að enginn vafi sé á því, að allt of lítið sé um heilbrigðar skemmtanir hér. Þá liefur Ims- næðisskortur háð mjög allri starf- semi íþróttafélaganna, auk þess sem þau hefur líka vantað í- þróttavelli mjög hagalega. Það er þvi enn mikið verk framundan óleyst, þar til fullnægt er nauð- synlegustu skilyrðum, sem til staðar þurfa að vera, svo íþrótta- lif vort geti vaxið og dafnað eðli- lega, í samræmi við kröfur nú- tímans. Það sýnist því vera full þörf fyrir eina skautahöll hér í hæ, því sízt mundu þær íþrótta- greinar verða of márgar, sem starfað geta óhindraðar hvað húsnæði snertir. Væri ein slík bygging hér í Reykjavik, mundi nýtt líf færast i íþrótta- og skemmtanalíf þessa hæjar. Gætu þá íþróttafélögin stofnað æfinga- deildir í skautaíþróttinni, svipað og skiðadeildir eru nú i mörgum íþróttafélögum. í kjölfar þessar- ar starfsemi mundi að sjalfsögðu fylgja skemmtilegir kappleikir í hinum ýmsu greinum liinnar fjöl- breyttu skautaíþróttar, ásamt skemmtilegum skautaíþróttasýn- ingum. Auk þeirrar starfsemi, sem fram færi á vegum íþróttafé- laganna í þessari væntanlegu skautahöll, þykir mér ekki ólík- legt að skautaíþróttin mundi einnig' verða tekin upp, sem einn liður í leikfimi skólanna hér í bæ, og mundi sú ráðstöfun áreið- anlega verða mjög vinsæl sér- staklega í barnaskólunum, og koma að góðuin notum. Ennfremur mundu þeir mörgu einstaklingar, ungir og gamlir, karlar og konur, sem ekki eru innan vébanda neinna íþróttafé- laga, að sjálfsögðu iðka þessa hollu og fögru íþrótt mjög' mikið ef til væru liúsakynni. Skautaíþróttin er nú talin ein af hollustu, fegurstu og skemmti- legustu íþróttagreinum nútímans, enda skipar íþróttagrein þessi nú virðulegan sess meðal íþrótta viða um heim. Við fslendingar höfum staðið illa að vígi að iðka þessa fögru og liollu íþrótt, enda vantar næstum því öll skilyrði tii þess. Hið hreytilega tíðarfar hér gerir það að verkum að mjög sjaldan er hér nothæfur skautaís, nema einn og einn dag, oft með löngu millibili. Með tilliti til hins óhlíða og hreytilega tíðarfars, virðist vera enn meiri nauðsyn á skautahöll hér en víða annars- staðar í heiminum. Það er engin von um neinn teljandi árangur i skautaíþróttinni hér á landi, fyrr en liægt er að æfa innanhúss, án tillits til árstíða og veðurfars. Það er langt síðan nágranna- þjóðir vorar byrjuðu að hvggja skautahallir með tilbúnum ís. Tal- ið er að fyrsta skautahöllin í heiminum hafi verið byggð í London árið 1876. Sú næsta var hyggð í Madison Square Garden, New York þrem árum síðai', eða árið 1879. Eftir 1880 voru svo hyggðar hver skautaliöllin eftir aðra víðsvegar um Evrópu og Ameríku. Byggingum þessum liefur svo stöðugt fjölgað hröð- um skrefum ár frá ári. í Ameriku mun þó skautahöll- um hafa mest fjölgað á árunum frá 1925 til 1940. Ég man eftir því þegar ég átti heima vestur við Kyrrahaf, á árunum 1921 til 1925, að skautahallir voru þá að- eins í hinum stærri borgum. En á ferð minni um austurhluta Bandaríkjanna sumarið 1942, sá ég að hvggingar þessar voru orð- in svo sjálfsögð menningartæki, að i smáþorpum voru slíkar byggingar algengar. Mynd sú, sem hér fylgir, er af skautahöll í einu slíku þorpi, sem telur þó aðeins 3000 íbúa. Skautaliöll jiessi er samt all vegleg, liefur liún áhorfendasvæði fvrir 7200 manns, og svellflötur 65 og 28 metra að stærð. Það má benda á það, að skauta- hallir eru notaðar fyrir fleira en skautaíþróttina eina saman. Þar fara fram fjölmennar íþróttasýn- ing'ar, allskonar íþrótlakeppni, fjölmennir hljómleikar o. fl. o. fk Er þá ísinn tekinn burtu á með- an, en það er liægt á tiltölulega skömmum tíma. Ég liefi nú hér að framan bent á nokkur atriði þvi til sönnunar, að skautahöll eigi hér ekki að- eins framtíð og tilverurétt, held- ur sé hún og þýðingarmikið menningartæki, sem þörf hefði verið á fyrir löngu síðan. Það má að vísu segja með nokkrum rétti að oss íslendingum sé nokkur vorkunn hvað langt vér erum á eftir öðrum þjóðum í þessu efni, ef tillit er tekið til þess, hve afar dýrar þessar hyggingar eru, vegna Iiinnar rniklu stærðar, sem á þeim þarf að vera. Það er þó hót í máli að hafinn er nú undirbún- ingur að byggingu skautahallar hér í Revkjavík, sá undirbúning- ul' hófst raunverulega fyrir mörg- um árum. Hafa ófyrirsjáanleg- ar orsakir og örðugleikar tafið allar framkvæmdir, og nú síðast af styrjaldarástæðum hefur reynst óframkvæmanlegt að fá nauðsynlegt efni og flutninga til

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.