Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 24

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 24
16 IÞRÓTTABLAÐIÐ Og livílík aðferð! Með undnum handlegg, en þess- ari dæmalausu aðferð sinni hef- ur Matti Járvinen ár eftir ár sigrað alla heztu spjótkastara heimsins og sett livert heimsmet- ið á fætur öðru. Árið 1929, þá stóð Matti Járvin- en á tvítugu, tók liann þátt í fyrsta kappleiknum á æfinni, og kastaði spjótinu þá þegar 64 stik- ur. Það sama ár tók liann þátt i tiu kappleikjum, varð Finnlands- meistari í spjótkasti og har sig- ur úr býtum í millilandakeppni við Svía. Bezti árangur hans það ár var 66.65 st. Sumarið 1930 fór Járvinen á- samt finnska methafanum í spjótkasti, Pentilá. til Ungverja- lands, til að keppa við hinn lieims- kunna ungverska spjótkastara Béla Szepes, sem sigraði Finnlend- ingana á Olympíuleikjunum 1928. (Lundquist Svíþj., vann þá 1. verðlaun). Finnar höfðu ætlað sér að jafna hlut sinn í þessari millilanda- keppni og um leið að sýna heim- inum það svart á hvítu, að þeir væru jafn færir um að halda for- ystunni í spjótkasti eins og í þolhlaupunum. En er til Ung- verjalands kom, féll Finnunum allur ketill í eld. Hitinn var svo mikill, að hann dró úr þeim all- an mátt og allt viljaþrek og lík- urnar bentu til þess, að þeir yrðu að láta í minni pokann fyrir Ung- verjanum, sem vanur var hinni heitu veðráttu. í öðru lagi voru þúsundir á- horfenda, sem hvöttu Ungverjann án afláts frá því keppnin hófst og til leiksloka, en varla nokkur sál, sem eggjaði Finnlendingana. Þeir voru einmana og vinalausir í framandi landi og án þess að hafa með sér samúð nokkurs manns. Það er liinsvegar staðreynd, að hvatningaryrði áhorfenda örfa mjög þátttakendur í kappleik. Béla Szebes varpaði spjótinu fyrstur, og svo langt, að hver frægur kastmaður hefði verið sæmdur af því kasti. Og áhorf- endurnir duldu heldur ekki fögn- uð sinn, því þeir klöppuðu hon- um óspart lof í lófa, rétt eins og sigurinn væri þegar unninn. Pentilá kastaði næstur og Matti Járvinen síðastur. Hann var yngsti þátttakandinn, en jafnframt sá rólegasti. Hann fann ekki til keppniskjálfta þótt keppnin væri hörð, og það skipti liann ekki miklu, hvort hann hafði áhorf- endurnar með sér eða móti. Tilldaup Járvinens var létt og fjaðurmagnað, skreflengdin jöfn og regluleg, hann staðnæmdist á fullri ferð, skaut öxlinni fram og upp, og í sama vetfangi varpaði hann spjótinu af allri sinni snerpu og styrkleik. Hreyfingarnar báru vitni um kappleiksmann, sem á- stæða var til að veita athygli, enda hiðu áhorfendurnir milli vonar og ótta um það, livort spjót- ið flygi ekki langt fram fyrir kastmark Ungverjans. En áhorfendurnir þurftu ekk- ert að óttast, því spjótið féll eftir 40 stikur máttlaust til jarðar, og þeir gátu ekki stillt sig um að brosa —brosa að þessum útlend- ingi, sem ekki kastaði nema á við krakka. En Matti sjálfum var elcki hlát- ur í hug, því að um leið og liann varpaði spjótinu með svitablautri hendinni, liafði hann á einhvern hátt fest hana í kastgripi spjóts- ins, svo að um leið og það flaug úr hendi hans, rifnaði heil flyksa af holdi og skinni úr hendinni og dró úr flugi spjótsins. Blóðið foss- aði í lækjum úr sárinu, svo kalla varð í skyndi á lækni mótsins, svo hann gæti stöðvað blóðrásina og bundið um sárið. — Enginn keppinautur, enginn dómari og enginn áhorfandi vænti neins fram ar af hinum unga Finnlendingi. Að þeirra áliti var þætti hans í þessum leik lokið. Næst þegar röðin kom að Járv- inen, gekk dómarinn til hans og spurði hann til vonar og vara hvort hann ætlaði að kasta aftur Jú, Matti ætlaði að reyna. Með alblóðugri og reifaðri hendinni tók Matti spjótið í hönd sér, ldjóp tilhlaupsbrantina og kastaði spjót- inu lengra en keppinautar hans liöfðu gert. Mannfjöldann rak í rogastanz. A þessu átti enginn von, og þetta kast kom jafn óvænt og þruma úr heiðskíru lofti. Eða liktist það ekki ævintýri, að maður sem kast- ar ekki nema 40 stikur í fyrsta kasti, skildi í næsta skipti, særður og með reifaða hendina, kasta lengra en heztu kastmenn álfunn- ar gerðu. Þarna var tvímælalaust maður á íerðinni, sem eitthvað gat. Og það var meira. í þennan mann var óbifandi stál- vilji greyptur — þennan mann, sem lagði allt í sölurnar fyrir frægð hinna fjarlægu heimkvnna sinna. En þetta kast Járvinen’s var ekki neinn úrslitasigur. I næsta kasti var það Pentilá, sem var orðinn beztur og strax á eftir tókst Szebes að ná miklu lengstu kasti. Kast eftir kast höfðu Finnlend- ingarnir neytt allrar sinnar orku til að halda uppi heiðri þjóðar sinnar, en allt kom fyrir ekki. —

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.