Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 22

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 22
14 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ V Matti Járvinen. (Ljósm.: Ól Sveinsson). sem bar sigur úr býtum á Olymp- íuleikuuum 193(5, var það þrátt fyrir allt Matti Járvinen, hin særða hetja úr norðrinu, sem dró fyrst og fremst að sér atliyglina, cg það var hann, sem við íslend- ingarnir hylltum og dáðum í hjörtum okkar. Það var ekki ein- ungis vegna þess, að Járvinen var Norðurlandahúi eins og við, lield- ur mun liitt liafa ráðið meiru um, að liann var einstæðasti og hezti spjótkastarinn, sem heimurinn liafði nokkru sinni átt. Það var ekki einungis, að Matti Járvinen væri einn af frægustu íþróttamönnum jarðarinnar, held- ur voru faðir lians og hræður þjóðkunnir og jafnvel heims- kunnir íþróttagarpar. Fyrsti ól- ympíusigur Finnlendinga var unninn árið 1906 á 10 ára afmæl- is- eða minningar Olympiuleikj- unum, sem háðir voru í Grikk- landi. Maðurinn sem færði Finn- landi þessa fvrstu ólympisku gull- orðu liét Werner Járvinen, og ldaut hana íyrir kringlukast. Sú saga gengur, að hann liafi ekki kastað kringlu fyrr en liann kom til Grikklands, og liafi honum ver- ið ætlað að keppa í kúluvarpi, en þegar séð varð hve fimlega lion- um tókst að varpa kringlunni, hafi liann í skvndi verið skráður sem keppandi i kringlukast- inu. Hvað sem sannléiksgildi þess- arar sögu líður, þá er liitt stað- reynd, að |>essi fyrsti ólympíu- sigur varð til þess að koma á hyltingu á sviði iþróttanna þar í landi, og það var Werner Járvin- en, sem var hinn raunverulegi upphafsmaður þeirrar hyltingar. En Werner Járvinen er ekki að- eins faðir frjálsra íþrótta í Finn- landi, liann er líka faðir fjögurra sona, sem orðið hafa hver öðrum frægari íþróttamenn. Fór frægð þeirra stig liækkandi eftir aldri, og varð sá yngsti frægastur. Má hamingjan vita hvílík frægð fimmta syninum iiefði hlotnazt ef hann hefði verið til og frægð hann vaxið í hlutfalli við hina fjóra Járvinenbræður. Elzti sonurinn, Yrjö, var fjöl- liæfur íþróttamaður, sem gat sér ágætan orðstír í Finnlandi. Sá næstelzti, Kalle, varð Finnlands- meistari í kúluvarpi og methafi i þeirri íþrótt. Á æfingu á honum að hafa lieppnast að kasta 16.40 st., sem er einn bezti árangur, sem sem náðzt hefur í kúluvarpi á Norðurlöndum. Þriðji sonurinn, Achilles (hann fæddist daginn áð- ur en faðir hans fór sigurför sína til Grikklands, og því var dreng- urinn nefndur eftir hinni forn- grisku hetju) varð árið 1928 einn af fremstu mönnum í tugþraut á Olympíuleikjunum í Amsterdam. En vngsti sonur- inn, Matti varð þó þeirra fræg- astur, því að um margra ára skeið var liann einvaldur spjót- kastari í lieiminum og eng- inn stóð honum á sporði í þeirri íþrótt. Bætti hann heims- met á heimsmet ofan, jafnvel þótt um enga verulega keppni væri að ræða. Maður freistast til að ætla, að þessir framúrskarandi íþrótta- hæfileikar hafi verið ættinni í blóð bornir. Slíkt getur vitaskuld átt sér stað, en það eitt nægir ekki lullkomlega til að skapa afburða mann né til að skara fram úr. Hitt mun sönnu nær, að um- hyggja föðursins fyrir sonum sin- um, íþróttauppeldi og metnaður þeirra sjálfra, hefur fremur öðru gert þá að því, sem þeir urðu. Eftir að þeir bræður komust nokkuð á legg, leið enginn dagur svo, að þeir iðkuðu ekki leikfimi, og hún þyngdist því meir sem drengirnir þroskuðust og eltust. Matti var seinþroskaðri en eldri bræðurnir og faðir hans bjóst ekki við jafn miklu af honum sem þeim. En Matti gerði það sem liann gat, og lagði sig mjög í líma. Hann breytti mjög nákvæmlega eftir æfinga- og lífsreglum föður síns, hann hljóp, kastaði og stökk, lék sér, flaugst á, æfði . skíða- göngur, hnefaleika og stundaði vöðvafræði með óvenjulegri ná- kvæmni og athygli. Framar öllu öðru var það þó metnaðurinn — óslökkvandi metnaður hans — sem mestu réð um framfarir hans og þroska. Matti vissi og fann, að hann var síztur þeirra hræðra, ekki aðeins vegna aldursmunar, heldur vegna

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.