Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 15 þess, að þeir voru allir efni í af- burðamenn. Hann einn gaf aS- eins vonir um sæniilegan meðal- mann — annað ekki. Árið um kring æfði hann sig úti á akri föð- ur síns, þúsund sinnum endurtók hann stökkin, hlaupin og köstin og hann reyndi fjölda aðferðir unz sú rétta var fundin sú að- ferðin, sem liæfði vöðva- og lík- amsbyggingu lians. Hinar reglulegu íþróttaæfingar voru ekki unnar fyrir gíg. Wern- er veitti því athygli live Matti son- ur hans kastaði vel knetti, og kom þá til hugar, að köst lægju einna bezt fvrir liann og hæfðu likamsbyggingu hans. Hann varð þess fljótt áskynja að syninum féll hezt við spjótið, og hvatti hann til að leggja á það alveg sér- staka áherzlu. En þrátt fyrir þessa séríþrótt sem Matti lagði fyrir sig, voru hræður hans allir þó mun hetri spjótkastarar. Samt gafst Matti ekki upp; hann kastaði og kastaði, liandleggurinn bólgnaði, en Matti kastaði fyrir því, eins og ekkert liefði ískorist. Loks varð hann að fara til læknis. Þar fékk hann umbúðir um liandlegg- inn og ráðleggingu um að leggja köstin á hilluna, a. m. k. um stundarsakir. En það vildi Matti ekki, hann mátti ekki vera að því, liann vildi halda áfram að kasta, vildi æfa sig og lialda sér í æfingu. Handleggurinn bólgnaði á- fram, sársaukinn varð að þrot- lausri kvöl, en Matti kastaði eins og áður, því metnaðurinn varð öllu öðru yfirsterkari. Svo skeði dag nokkurn atvik, sem virtist ætla að hafa örlagaríkar afleið- ingar i för meS sér. Matti Járvin- en var að æfa sig i spjótkasti, og spjótið flaug lengra en nokkru sinni áður. En um leið og Matti sleppti liendinni af spjótinu, steyptist hann til jarðar og lá þar ósjálfhjarga og viðþolslaus af kvölum. Við nána athugun kom í ljós, að handleggurinn liékk mátt- laus niður með síðunni, einna lik- ast þvi að iiann væri brotinn. Þetta var síðasta kastið i mörg ár. Handleggur hins fimmtán ára spjótkastara var svo skaddaður, að frá þeim degi hefir liann verið undinn og aldrei komizt í samt lag aftur. Þrjú löng ár liðu. Það virtist ekki neinum vafa undirorpið að Matti Járvinen væri úr sögunni sem íþróttamaður. Að þessum þrem árum liðnum var Matti kvaddur til herþjónustu en í finnska hernum er mikil áherzla lögð á allskonar íþróttir. Við íþróttaæfingar í hernum kom í ljós, að Matti var ágætur sprett- hlaupari og þó enn hetri stökk- maður. Það eina, sem Iiann gat eklvi, það var — að kasta. I herþjónustu verður að gera ýmislegt fleira en gott þvkir, og i finnska hérnum varð Matti Jár- vinen að æfa köst, Iivort sem lion- um líkaði betur eða ver. IJann tók að nýju til við sina gömlu uppá- haldsíþrótt: Spjótkastið, og þótt handleggurinn væri bæði stífur og undinn, ollu köstin honum ekki framar sársauka — og það skipti strax verulegu máli. Með óbifandi elju og ástundun, ýmsum athugunum og reglulegri þjálfun, tókst Matti það, sem fá- heyrt er í söí*u íþróttanna. Hon- um tókst að finna upp nýja að- ferð í spjótkasti, aðferð, sem lientaði honum einum vegna þess að hún átti við hinn undna liand- legg'-

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.