Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 32
24
ÍÞRÓTT ABL AÐIÐ
ilh\j
íþróttablaðið.
Á liðnu ári hefur kaupendatala
blaðsins þrefaldast og vonum vér að
geta þrefaldað þá kaupendatölu, sem
nú er á þessu ári. Takmarkið er, að
íþróttablaðið, máigagn íþróttamanna,
komizt inn á bvert heimili á landinu.
Vinsældir blaðsins fara sívaxandi, enda
á það nú marga ágæta stuðningsmenn
Getum vér ekki látið lijá líða að geta
þeirra, sem skarað hafa fram úr.
Helgi Vigfússon Klausturhólum,
Grímsnesi, sendi blaðinu ásamt vin-
samlegu bréfi kr. 100.00, sem greiðslu
fyrir 7. og 8. árgang þess. Ernst R.
Jensen og Þorsteinn Bernhardsson,
Ivlapparst. 28, Revkjavík, hafa hvorir
fyrir sig greitt kr. 50.00 fyrir 7. ár-
gang blaðsins. Af útsölumönnum blaðs-
ins hefur Haraldur Sigurgeirsson
verzlm., Akureyri skarað fram úr
mörgum ágætum útsölumönnum þess,
með því að útvega því rúma 90 kaup-
endur og gert full skil fyrir þá alla.
Um leið og vér þökkum hinum
mörgu ágætu útsölumönnum og kaup-
endum blaðsins fyrir góð skil á and-
virði þess og því auðsýnda margvís-
leg vinsemd og stuðning, leyfum vér
oss að biðja þá útsölumenn og kaup-
endur, sem ennþá hafa ekki greitt 7.
árgang blaðsins, að senda það nú
til afgreiðslumanns þess, Þórarins
Magnússonar, Haðarstig 10.
Þeir, sem ekki liafa greitt 7. ár-
gang blaðsins fyrir 15. apríl getum við
ekki talið kaupendur þess.
Blaðstjórnin.
Iþróttaheimili I.S.Í.
Nýlega hefur komið bréf frá
fjármálaráðuneytinu, þar sem sam-
bandinu er afhent byggingarlóð um
390 fermetrar við Sölvhólsgötu fyrir
iþróttaheimili í. S. í. Lóðin er 15 m.
með götu. Þá hefur íþróttaheimilinu
borizt áheit frá Kristjáni Erlendssyni
að uppbæð kr. 100.00.
Skíðaiandsmót Í.S.Í.
Ákveðið er að það fari fram á Siglu-
firði undir umsjón íþróttaráðs Siglu-
fjarðar (um páskana). Fulltrúi Í.S.Í.
á mótinu verður Hermann Stefáns-
son íþróltakennari, Akureyri.
Afmæli Í.S.Í.
Á afmælisfundi sambandsins 28.
jan. s.l. var samþvkkt eftirfarandi á-
skorun til sambandsfélaganna:
„Afmælisfundur Í.S.Í. lialdinn 28.
jan. 1944 í lleykjavík samþykkir að
skora á öll sambandsfélög Í.S.Í. að
auka og efla virðingu æskulýðsins fyr-
ir íslenzka fánanum, með því að bafa
hann við hún á öllum hátíðisdögum
sínum, íþróttamótum og félagsfund-
utn.“
í tilefni af 32 ára afmæli Í.S.Í., sem
hátíðlegt var baldið með methöfum
ársins 1943 og fleiri gestum, barst
sambandinu að gjöf frá tveim vel-
unnurum sinum veggmynd af Jóni
Sigurðssyni og Alþingishátíðarbókin
en íþróttamenn tóku sem kunnugt er
þátt í þeim hátíðahöldum með fim-
leikahópssýningum, úrvalsflokka karla
og kvenna í fimleikum. Atdv þess sent
úrslit Íslandsglímunnar fórtt þar frarn.
Ný sambandsfélög.
Þessi félög hafa gengið í Í.S.Í.: U.
M.F. Glaður, Furufirði. Tala félags-
manna 37. Formaður Jón E. Jónsson
Furufirði. U.M.F. Holtshrepps, Fljót-
unt. Tala félagsmanna 44. Formaður
Jón Hermanrisson, Haganesvík. Golf-
samhand íslands, sem í eru 3 félög, er
bafa alls 233 félagsmenn. Golfsam-
bandið var stofnað 14. ág. 1942. For-
seti þess er Helgi H. Eiríksson, skóla-
stjóri. Tala sambandsfélaga Í.S.Í. e1'
nú 160 nteð yfir 21. þús. félagsmenn.
Staðfest met.
í stangarstökki 3,53 st. Sett 24. okt.
i Vestmannaeyjum af Guðjóni Magnús-
synr (Týr). Staðfest 11. nóv. 1943.
Sendikennarar Í.S.Í.
Axel Andrésson hélt 3ja vikna nánt-
skeið á Hvanneyri. Lault því 6. nóv.s.l.
Nemendur vortt 63. Þá hefur Axel
baldið víða námskeið á Austurlandi
og er þar enn. Alls hefur Axel And-
résson haldið 30 námskeið í knatt-
spyrnu og handknattleik og hafa þátt-
takendur verið 2640.
Ósltar Ágústsson hélt íþróttanám-
skeið hjá íþróttafélagi Grindavíkttr
mánaðartíma. Þátttakendur voru 75.
Einnig hélt bann námskeið hjá U.M.F.
Santhyggð í Árnessýslu. Þátttakendu;
voru 18. Þá liélt hann hálfsmánaðar-
nántskeið hjá U.M.F. Ásahrepps og
U.M.F. Baldri í Hraungerðishreppi
Þátttakendur voru 29. Óskar heldur
nú íþróttanámskeið í Eyjafirði.
Kjartan Bergmann Guðjónsson hélt
glímunámskeið í Reykholtsskóla frá
8. rióv. til 2 des. og voru þátttakendur
57. Hann heldur nú glímunámskeið á
Vestfjörðum.
Staðfestir íþróttabúningar.
Fyrir knattspyrnufélag Akraness,
íþróttafélag Hvanneyrar, U.M.F. Neista
í Strandasýslu og glímubúningur fyr-
ir Knattspyrnufélag Reykjavíkur.
!---------------------------------
ÍÞRÓTTABL AÐIÐ.
Útgefandi: íþróttablaðið h/f.
Ritstjóri: Þorsteinn Jósepsson.
Ritnefnd: Benedikt Jakobsson,
Þorsteinn Einarsson.
Blaðstjórn: Ben. G. Waage, Kristján
L. Gestsson, Jens Guð-
björnsson, Sigurjón Pét-
ursson, Þorst. Einarsson.
Afgreiðslum.: Þórarinn Magnússon,
Haðarstíg 10.
Utanáskrift: íþróttablaðið, Póst-
hólf 367, Reykjavík.
Verð: Kr. 20.00 pr. árg.
Kr. 2.50 pr. tbl.
Herbertsprent
----------------------------------1