Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 27

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 19 (xóf: Rand jol — hvítlr páskar. (Ferðii§ag:a) Mottó: Þótt fögur séu fjöllin vor, feikn þau marga geyma, um fannir liggja freðin spor. feigðin á þar heima S. Th. Þegar ég var lítill, hlakkaði ég jafnan mest til jólanna af öllum hátíðisdögum ársins. En síðan ég \arð stór, er ég farinn að hlakka enn meira til pásk- anna. Það er að segja, síðan ég komst upp á lag með að renna mér á skíðum. Nú á síðustu árum hefi ég verið svo hamingjusamur, að liafa átt þess kost, að vera með í nokkrum páskaferðum um suðurjökl- ana og á fjöllin hér nærlendis. Þessar ferðir hafa verið bæði skemmtilegar og lærdómsríkar. Á slík- um ferðum lærist manni að húa sig eftir íslenzku veðurlagi, halda áfram för sinni þó á móti blási, og taka því, sem að liöndum her. Að dvelja i tjöld- um eða snjóborgum i 1000 m. hæð nokkra daga i góðu eða vondu veðri eftir ástæðum er svo góð heilbrigðisráðstöfun fyrir okkur innisetufólkið og kuldakreisturnar að enginn, sem með nokkru inóti á heimangengt, skyldi láta undir höfuð leggjast að taka sér nokkurt vetrarfrí og gista fjöllin. Eyjafjallajökull i vestri, Tindfjallajökull og Torfajökull í norðri, Mýrdals- og Goðalandsjökull i austri og framundan til suðurs er endalaus víð- átta Atlantshafsins, svo langt sem augað eygir. Glampandi sól og nýfallin mjöll. Þetta er Fimm- vörðuháls, þegar honum tekst verulega upp. Og það tókst honum um páskana 1941. Við vorum 16, skátarnir, sem fórum austur eld- snemma á skírdagsmorgunn með nýlega skó og nesti til 5 daga. Bílstjórinn okkar, hinn gamli og góði Hjörtur, sem svo margan erfiðan spölinn hefur flutt okkur, skilaði okkur að Skógum heilu og höldnu eftir þægilega en alllanga útivist. Það er nefnilega svoleiðis með bílinn hans Hjartar, að hann hefur Þykkvabæjarleiðina og hann kann svo vel við sig á þeirri „rútu“, að lionum er um og ó að ;' a að flækjast alla þessa vitleysu, sem Hjör ur húsbóndi lians er að láta hann fara með okk- ur: Inn að Landmannahelli, upp i Brynjudal Úti fyrir tjaldbúðnm oy snjóborgum. um hávetur þegar vegurinn er allsófær og aust- ur um allar sveitir; algerða erindisleysu, ekki einu sinni með póstpoka með Tímann eða ísafold meðferðis, svo að maður tali nú ekki um að hann sé látinn koma með mjólk, egg eða ofurlitla smjör- klípu lianda hlessuðu fólkinu á mölinni, sem bráð- vantar þessar hollu og ódýru fæðutegundir. Það er einhver munur á Þykkvabæjarrútunni. Þarna rúll- ar liann austur, reglulega tvisvar í viku, hlaðinn kjarnfóðri og öðru hnossgæti handa Þykkvabæjar- kúnum, og til baka aftur með kjarnfóðrið eða rétt- ara sagt þann hluta þess, sem kýrnar hafa breytt i mjólk og smjör. Með aukinni skrúðgarðamenningu Reykvíkinga og þarafleiðandi aukinni eftirspurn eftir góðum, íslenzkum áburði, má búast við að híllinn hans Hjartar flytji í framtíðinni allt kjarn- fóðrið, sem hann fór með austur í fyrri viku, vest- ur aftur eða suður, eins og þeir kalla það í næstu viku á eftir, og þá er ég vissum að hann, bíllinn, neitar öllum útúrdúrum inn á gróðurlausar og' smjörvana afréttir. Nema þó að Hjörtur taki til sinna ráða, og þá verður nú ekki við lambið að leika sér fvrir gamlan Fordbíl, eins og hann var 1941. En nú hefur Hjörtur endurnýjað bílinn, en það er allt önnur saga.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.