Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 39

Íþróttablaðið - 01.02.1944, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTABLAÐXÐ XV FLATEYJARBÓK ER í PRENTUN. Hún verður geí'in út í fjórum bindum, alls á þrigja þúsund blaðsíður með drjúgu og skýru letri. Ekkert verður til sparað að gera útgáfuna sem bezt úr garði. Handritinu verður nákvæmlega fvlgt, en stafsetning þó samræmd svo að bókin verði hverjum manni auðlesin. Sigurður Nor- dal, prófessor mun rita fcrmála fyrir hverju bindi, greinargerð fyrir sögu og efni handrits og leiðbsiningar um lestur bókarinnar. — Útgáfan verður prýdd myndum af sögustöðum úr handritinu. Hvert bindi verður bundið í sérstaklega vandað skinnband. Tvö fyrri bindin koma út í sumar og tvö síðari bindin fyrri hluta næsta árs. Flateyjarbók er stærsta og frægasta skinnbók, sem rituð hefir verið hér á Iandi. — Hún er varðveitt heil og ósködduð; glæsilegur minnisvarði þeirra alda, þegar Íslendingar báru af öllum þjóðum Norðurlanda í frumlegri bókmenntastarfsemi. Meiri hluti efnis hennar er almenningi hér á landi ókunnur. AÐALEFNI binúanna er þetta: 1. bindi: Ólafs saga Tryggvasonar hin meiri. 2. bindi: Ólafs saga helga hin meiri. 3. bindi: Sverris saga eftir Karl ábóta Jónsson Hákonar saga gamla, eftir Sturla ÞórS- arson. 4. bindi: Saga Magnúsar góða og Haralds harð- ráða hin meiri. —Annáll frá upphafi heims til 1394. En inn eru felldar ýmsar lieilar sögur m. a. Orkn- eyinga saga, Færeying'a saga, Jómsvíkinga saga og sægur af merkilegum og skemmtilegum þáttum, t. d. af Eindriða iibreið. Eymundi Hringssyni, Blóð-Agli, Heming Áslákssyni, Völsu þáttur og mikið af frásögnum, sem hvergi eru nema i Flat- eyjarbók, allt austur úr Garðaríki og vestur til Vinlands. Hver íslendingur, sem vill kynnast auðlegð og fjöl- breytni fornsagnanna og sækja þangað andlega heilsu og þrek, ætti að eignast þessa útgáfu Flat- eyjarbókar. Hún mun halda gildi sínu, vera hverjum eiganda sínum -dýrmætur fjársjóður, þegar flest af því, sem nú er prentað verður gleymt og dautt. Eignist Flateyjarbók. Með því getið þér feng- ið fáeina af seðlunum vkkar innléysta með gulli. Þvi miður verður vegna pappírseklu 'að hafa upp- lag útgáfunnar mjög takmarknð. Áskrifendur, sem gefa sig fram fyrir 1. maí næstkomandi, fá bókina með lægra verði en hún kostar í lausasölu. Þeir verða látnir sitja fyrir eintökum í sömu röð sent þeir gefa sig fram. Ég undirritaður gerist hér með áskrifandi að hinni nýju útgáfu Flateyjarbókar, og er undirskrift mín bindandi fyrir allt ritið. Hvert bindi greiðist við móttöku. Nafn ..................................... Heimili (Póststöð) ....................... Herra yfirkennari, Bogi Ólafsson, Reykjavík. Pósthólf 523. Dragið ekki að sénda pantanir yðar. — Eftir tvo mánuði getur það orðið of seint. Verð hvers bindis —- i úrvals skinnbandi — verð- ur til áskrifenda lcr. 100,00, og tekur herra yfir- kennari Bogi Ólafsson, Reykjavík á móti áskrif- endum (og áskriftarlistum). FIj ATEY J ARITTG AFAIV.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.