Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 38

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 38
knattspyrnumaður. — Það var pabbi sem skapaði áhuga minn á knattspyrnu, hefur Best sagt, — og það var hann sem gekk fram fyrir skjöldu þegar ég ætlaði að gugna á því að fara til Manchester United í Old Trafford. Ég kom til fé- lagsins þegar ég var aðeins 15 ára, en mér leiddist svo mikið, og leið af heim- þrá, að ég fór til Belfast eftir tveggja daga veru þama. Pabbi taldi þá kjark- inn í mig, og brátt var ég aftur í Man- chester. í þetta sinn gekk mér betur, ekki sízt vegna þess að framkvæmda- stjóri Manchester United, Matt Busby, kom mér fyrir hjá gamalli konu sem átti heima utan borgarinnar, og hún var mér einstaklega góð. George Best var snemma svo heill- aður af knattspyrnunni, að um nám varð ekki að ræða hjá honum. Knatt- spyrnan var honum allt, jafnvel trúar- brögðin sátu á hakanum. — Þegar ég var drengur lét ég meira að segja trúarbrögðin afskiptalaus, sagði Best, — ég er mótmælandi en var i skóla í kaþólsku hverfi. Oft lenti ég í slagsmálum við kaþólikkana þegar ég var á leið til og frá skólanum, en þeir gátu ekki æst mig upp til neinna hefndaraðgerða, né dregið mig inn i það fáránlega stríð sem þama stendur. Styrjöldin í Norður-írlandi hefur George Best þó ekki sloppið við. Þegar hann var hvað frægastur kom það oft fyrir að hann fékk lögregluvernd sólar- hringunum saman, vegna þess að hon- um hafði verið hótað árásum. Fyrir leik í Newcastle fékk hann t.d. hótun um að , verða skotinn á vellinum. — Ég var dauðhræddur í þeim leik, Skeggjaður og hippalegur hefur George Best jafnan þótt, en það hefur ekki komið svo mikið að sök. og stóð ekki kyrr eina einustu sekúndu, hefur Best sagt, — meira að segja ekki þegar leikurinn var stöðvaður. Ég hljóp eins mikið og ég gat í krákustigum. Eftir leikinn hundskammaði ég félaga mína fyrir að hafa ekki faðmað mig, eftir að ég skoraði eina mark leiksins, en þá hefðu þeir um leið verndað mig fyrir hugsanlegri árás. Best hefur jafnan sem minnst viljað segja um borgarastríðið í írlandi. — Auðvitað hugsa ég oft um þessi átök hefur hann sagt, og þau snerta mig á vq'ÆJ i Jfe ' " ■ Mjb • < W ■ þann hátt að fjölskylda mín hefur orðið fyrir barðinu á þeim. Einu sinni þegar önnur yngri systir mín var á leiðinni á dansleik var skotið á hana. Skotið fór í annan fót hennar, en sem betur fer slapp hún við alvarleg meiðsli. Ég hef líka orðið þess var að sumir gera allt sem þeir geta til þess að koma nafni mínu inn í þessi átök. Ég frétti t.d. einu sinni að ég hefði gefið Jan Paisley 3 milljónir króna vegna byggingar einnar af kirkjum hans. Þetta var tóm vitleysa. Með því að gefa peninga til þessara bygginga hefði ég sjálfsagt undirritað eigin dauðadóm. George Best segir að frægðin sem hann hlaut í Manchester hafi reynst sér dýru verði keypt. — Ég kom mér upp verzlunum og næturklúbbum í borg- inni, og það kom oft fyrir að fólk gekk framhjá þessum fyrirtækjum mínum og hrækti á rúðurnar, eða rak tunguna út úr sér framan í mig. Á kvöldin kom það líka oft fyrir að hópur fólks var á sveimi í kringum íbúðarhús mitt, og jafnvel lá þar á gluggum. Þegar ég sýndi mig var hrópað að mér ókvæðisorðum, eða þá að skorað var á mig í slagsmál. Já, og ósjaldan var mér hótað því að verða tekinn og klipptur og rakaður. Feður héldu að ég hugsaði ekki um annað en dætur þeirra og eiginmenn héldu líka að ég hefði sérstakan augastað á kon- unum þeirra. Ég var satt að segja al- gjörlega undrandi á því hvað margir ömuðust við síðu hári og skeggi mínu: Jafnvel Jesús Kristur var ekki gagn- rýndur fyrir að vera síðhærður og með skegg. George Best var fyrsti knattspyrnu- maðurinn sem lét sjá sig á knatt- spyrnuvöllunum með mikið hár, og Portúgalirnir kölluðu hann „E1 Beatle“ þegar hann og United höfðu fjaðrastíft lið þeirra Benfica í hinum fræga 5—0 leik þessara félaga. — Ég gleymi aldrei þeim leik, hefur Matt Busby, þáverandi framkvæmda- stjóri Manchester United oftsinnis sagt. — Við héldum fund fyrir leikinn, sagði framkvæmdastjórinn, og þar var ákveðið að leika mjög varlega, sérstak- lega fyrstu tuttugu mínútumar. Leggja alla áherzluna á vömina og það að fá ekki mark á okkur. En Best hlýtur að Nú er Best loksins genginn í það heil- aga. Eiginkonan er bandarísk ljós- myndafyrirsæta, Angela MacDonald James að nafni.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.