Íþróttablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 24
um okkur í mörg ár og orðinn mjög
góður vinur okkar — og hafi beitt
þessari aðferð til þess að halda
ákveðinni fjarlægð. Þetta var ekki
eins skemmtilegt fyrír leikmenn en
menn fengu samt góða þjálfun og
þrátt fyrir allt var þetta eftirminnileg-
ur tími."
— Undir stjórn hvaða þjálfara
vildurðu helst vera að Kristjáni und-
anskildum?
„Af þeim sem eru að í dag hefur
mér heyrst að Þorbjörn Jensson,
þjálfari Vals, séekkertólíkur Kristjáni
— mjög fær, skemmtilegur og léttur
þjálfari."
— Talandi um Þorgils Óttar, sem
er sjálfstæðismaður og í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar, ræðið þið einhvern
tímann pólitík á æfingum?
„Pólitík het'ur ekki verið rædd af
neinu viti á æfingum síðan Viggó Sig-
urðsson var með liðið. Hann er gegn-
sýrður krati og það var stundum rosa-
legt að fylgjast með honum og Þorgils
þegar þeir tóku rispurnar. Eitt sinn,
þegar við vorum erlendis í æfinga-
ferð, sátu þeirandspænis hvoröðrum
í 2-3 klukkutíma, börðu í borðið,
öskruðu og stöppuðu niður fótum og
létu öllum illum látuni. Þeir voru að
deila um pólitík. Eg hef aldrei orðið
vitni að öðru eins. Þeir voru öskuill-
ir."
— Hefurðu tró á Þorgils sem póli-
tíkus?
„Ég er kannski ekki rétti maðurinn
til þess að svara því vegna þess að ég
fylgist ekki nægilega vel með stjórn-
málaumræðunni. Mér heyrist á
mörgum að honum fari fram. Ég hef
trú á honum miðað við þau kynni
sem ég hefaf honum. Hann erþrjósk-
ur og harður á sínu sem er líklega
„Maður fer nú að fá sér herðapúða —
„ÞEIR ÖSKRUÐU
OG STÖPPUÐU
NIÐUR
FÓTUNUM"
kostur í pólitík. Hann á eftir að skól-
ast í þessu og verður örugglega
sanngjarn ípólitíkinni íframtíðinni."
— Nú ert þú „áspenanum hjá" hjá
Guðmundi Árna bæjarstjóra —
starfar í atvinnumálanefnd Hafnar-
fjarðar. Hvaða ákvarðanir tækirðu
ef þú væri bæjarstjóri Hafnarfjarðar
í einn dag?
„Ég myndi ganga í lið með Þorgils
Óttar vini mínum og láta breyta fyrir-
þetta er ekki hægt lengur."
huguðu stórhýsi sem byggja á við
Fjarðargötu. Ég er sammála því að
reisa verslunarmiðstöð og hótel
þarna en það mætti falla betur inn í
það rótgróna og virðulega umhverfi
sem miðbærinn er í."
— Hvernig handboltamaður var
Guðmundur Árni Stefánsson?
„Ég var ekki byrjaður með meist-
araflokki þegar Guðmundur Árni lék
með FH en hann og pabbi léku sam-
an. Égfór vitanlega stundum á æfing-
ar með pabba og minningarnar, sem
ég á frá þeim tíma um Guðmund
Árna, eru brandararog aftur brandar-
ar. Hann var góður handboltamaður
og var fyrirliði, að mig minnir, þegar
liðið varð bikarmeistari árið 1977."
— Var pabbi þinn góður hand-
boltamaður?
„Já, ég held að hann hafi verið í
sleipara lagi en hann lék með FH í 20
24