Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 22
Vigdís Ing vadóttir, Vigga, var förukona. Sem barn var hún bundin við rúm-stokkinn á meðan bláfátækir foreldrar hennar unnu. Sagt var að hún hefði verið misnotuð sem ung kona, orðið þunguð og síðan misst fóstrið. Vig- dís flakkaði á milli bæja í Mýrdaln- um. Hún neitaði gjarnan að sitja með heimilisfólkinu, kaus frekar að borða afganga í einrúmi. Vigdís lést árið 1957. Fyrir utan takmarkaðar heimildir um hana, þá lifir minning hennar í hugum fólks sem man eftir henni úr barnæsku sinni. Vigdís er ein fjölmargra föru- kvenna sem eru umfjöllunarefni Jaðarkvennasögu, nýrrar bókar Dalrúnar J. Eygerðardóttur sagn- fræðings um föru- og einsetukonur í íslenska bændasamfélaginu. Æskuminningar endurhugsaðar Fyrri hluti bókarinnar snýr að föru- konum á Íslandi. Þar koma meðal annars við sögu ítarleg skrif um sjö síðustu förukonur landsins. „Þær konur eru einstakt sögudæmi um förukonur Íslandssögunnar sem lítið er til af upplýsingum um.“ Til að verða sér úti um upplýsingar um förukonurnar sjö leitaði Dalrún til 25 einstaklinga sem mundu eftir þeim, en elsti viðmælandinn var 104 ára gömul kona. Dalrún segir að hún eigi við- mælendum sínum mikið að þakka. „Minningar þeirra skipta sköpum. Í fyrsta lagi vegna þess að upp- lýsingar sem þannig fengust gerðu kleift að varðveita vitneskju um föru- og einsetukonur. Í öðru lagi er við slíka upplýsingaöflun hægt að fá fram upplýsingar sem oft skila sér ekki með öðrum hætti. Þannig geta viðmælendurnir rifjað upp minn- ingar úr æsku og hugsað þær upp á nýtt, með hliðsjón af spurningum mínum.“ Dalrún vinnur nú að doktorsverk- efni í sagnfræði þar sem hún fjallar um ráðskonur í sveit á síðari hluta 20. aldar. Bókin um föru- og einsetu- konur á Íslandi var því eins konar hliðarverkefni, þótt hún sé yfir 400 blaðsíður. Ákveðið frelsi „Það er tregafullt líf að vera föru- kona. Saga Vigdísar endurspeglar líf fjölmargra kvenna. Það var engin kona sem valdi sér beint þann lífs- máta að vera förukona. Þetta var ákveðinn f lótti. Heimildir benda til þess að þær hafi mikið verið út af fyrir sig þegar að þær dvöldu á bæjum á flakki sínu. Og heimildir sýna að þær mynduðu ógjarnan náin tengsl við fólk. Það er þó rétt að benda á að sumar förukonur virðast hafa notið vel þeirra fjölbreyttu samskipta sem flakkið bauð þeim upp á.“ Förukonur og förukarlar hafa verið hluti af íslensku þjóðinni alla tíð en erfitt yrði að áætla hversu algengur sá lífsmáti var hverju sinni. Eitt af því sem Dalrún veltir fyrir sér í skrifum sínum er hvernig það kom til að þessar konur tóku upp þennan flökkulífsmáta. „Það lítur út fyrir að þær hafi með beinum hætti valið sér þá leið, en þarna enduðu þær samt sem áður af ýmsum ástæðum. Þessi lífsmáti bauð þeim konum upp á ákveðið frelsi. Förukonur komu helst úr röðum vinnukvenna en sú stétt stóð hvað verst í samfélaginu. Með förulíferninu sköpuðu þær sér frelsi meðal annars undan hefð- bundnum þjónustuhlutverkum kvenna sem var ekki annað en þrælsvinna. En fyrir það frelsi þurftu þær að borga með erfiðu líf- erni förukonunnar.“ Engin úrræði Dalrún undirstrikar hve mikilvægt það er að taka tillit til allra þátta sem koma fram í heimildum, þar með talið hegðunar kvennanna til dæmis með hliðsjón af andlegum veikindum og kynbundnu of beldi gegn þeim. Það voru engin sértæk úrræði fyrir fólk með geðsjúkdóma og önnur mikil hegðunarfrávik á þessum tíma, en flakk var vissulega ákveðið úrræði bændasamfélags- ins gagnvart fólki sem svo var ástatt um. „Hjá mörgum förukonum var undirrót flakksins þroskaskerðing eða einhvers konar andleg vanlíðan, þunglyndi eða aðrir geðsjúkdómar. Þessar konur voru mjög eirðarlaus- ar. Og það sem einkenndi þær meðal annars er að þær gátu almennt ekki unnið hefðbundin verk sem aðrir gátu unnið. Það eru fáir sem geta lýst þeim jafn vel og ljóðskáldið Ólína Andrésdóttir sem talaði um þær sem vængbrotna, áttavillta fugla.“ Það gátu hins vegar ekki allar konur farið á f lakk, því stundum voru veikindi kvenna, sem voru upp á aðra komnar, það mikil að þær höfðu enga möguleika á að geta ástundað f lakk. „Það voru heil- mikil fræði að baki f lakkinu. Það þurfti að þekkja inn á marga hluti sem þar komu við sögu, allt frá því hvaða leiðir væru bestar, hvaða bæi væri best að heimsækja heim og allt eftir því.“ Einar á ferð Kynferðislegt ofbeldi var mjög falið á þessum tíma. „Sumum þessara kvenna var lýst svo að þær væru karlalegar í fasi og margar þeirra voru þekktar fyrir andúð sína á karlmönnum. Ein skýring þessa er að þær hafi með þessu móti verið að fyrirbyggja það að lenda í kyn- bundnu ofbeldi. Þær voru oft einar á ferð og ferðuðust víða,“ segir Dalrún. „Margar konur sem ég tala við í dag um förukonur spyrja mig hvort þær konur hafi þurft að sofa hjá bónd- anum. Það er mjög lýsandi.“ Leyndardómur einsetunnar Kemur þá að hinu viðfangsefni Dal- rúnar, einsetukonum. „Einsetukon- ur voru oftast nær í algjörri einveru, auðvitað með undantekningum. Það eru mun minni heimildir til um þær.“ Hvernig drógu þær fram lífið? „Það er töluverður leyndardómur þar að baki. Þær lifðu almennt í gífurlegri fátækt. Algengar vanga- veltur þeirra sem skráð hafa upp- lýsingar um einsetukonur taka til þess hvernig þær drógu fram lífið og hvernig þær vörðu tíma sínum. Hvaða augum einsetukonur litu eigið líf er minnst um vitað enda nær alger skortur á þeirra sjónar- horni í heimildum. Ætla verður að ef þær hefðu verið teknar tali þá hefðu þær vísast gert lítið úr þeirri einangrun sem líf þeirra markaðist svo mjög af.“ Einsetukonur hafa búið með ýmsum hætti á Íslandi. „Meðal annars stunduðu þær tómthúslíf og sjálfsþurftarbúskap. Svo eru það þær einsetukonur sem lifðu bæna- lífi á þjóðveldisöld sem búið er að rannsaka töluvert, til dæmis Guð- rún Ósvífursdóttir. En konur úr þeim hópi voru iðulega hástéttar- konur. Í því skyni að fá sérfræðiálit úr þessari átt þá tók ég viðtal við Agnesi abbadís í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Þannig fékk ég innsýn í líf konu sem hefur tileinkað líf sitt Guði,“ segir Dalrún. „Agnes talaði mikið um köllun sína gagnvart Guði, köllun sem hefur samsvörun við þá köllun einsetukvenna sem lifðu bænalífi. Í bókinni fjalla ég um ein- setukonur sem lifðu bænalífi með hliðsjón af húsmóðurhlutverkinu.“ Dalrún fjallar einnig um þá ein- setu kvenna sem spratt upp af því- líkri mannfælni að þær konur fóru nánast ekki út fyrir hússins dyr nema að bráða nauðsyn bæri til. Dæmi um slíka konu er Ingunn Sveinsdóttir sem Dalrún fjallar ítarlega um í bókinni, Ingunn bjó í torfbæ og síðar í kofa. Leið aldrei undir lok Tími förukvenna leið undir lok á sjöunda áratug 20. aldar en tími einsetukvenna leið hins vegar aldr- ei beinlínis undir lok. „Það er hægt að lifa einsetulífi í blokkaríbúð.“ Í lok bókar sinnar kemur Dalrún inn á jaðarkonur nútímans í þétt- býli. „Það hefur auðvitað gríðarlega margt breyst, því fram eru komin ýmis raunveruleg úrræði fyrir jaðarsetta einstaklinga. Konur eru sem fyrr hluti af jaðrinum. Undir- rót vanda jaðarkvenna nútímans er að einhverju leyti að finna í sömu grunnþáttum sem leitt hafa konur á jaðarinn í gegnum aldirnar. Bókin er tileinkuð konum Konu- kots, sem veitir heimilislausum jaðarkonum samtímans skjól. Hluti styrks sem fékkst til útgáfu bókar- innar rann til Konukots. Bókin er í opnu rafrænu aðgengi og hana er hægt að nálgast ókeypis í gegnum vefsíðu Dalrúnar: dalrun.net. Áttavilltir vængbrotnir fuglar Sagnfræðingurinn Dalrún J. Eygerðardóttir hefur tekið saman sögu föru- og einsetukvenna í gamla bænda- samfélaginu. Hún hefur komist að ýmsu með því að skjalfesta æskuminningar þeirra sem muna eftir þeim. Dalrún segir mikilvægt að taka tillit til allra þátta í heimildunum, þar á meðal hegðunar kvennanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ingunn Sveinsdóttir, einsetukona í Langadal, bjó í kofa við árbakka Blöndu. Hún lést árið 1993. Margrét Gísla- dóttir, förukona á Austurlandi, hafði ákveðna sérstöðu þar sem hún hafði verið gift og átt fjögur börn áður en hún fór á flakk. Hún lést árið 1953. Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.