Fréttablaðið - 04.07.2020, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Fyrirtækið er í dag leiðandi á heimsvísu í rannsóknum á mjólkursýrugerlum og virkni
þeirra, og fæðubótarefnin frá
Probi AB, sem byggja á áralöngum
rannsóknum fyrirtækisins, eru
varin einkaleyfum.
Fjölmargir þættir geta haft
áhrif á þarmaflóru okkar og hún
tekur stöðugum breytingum,
meðal annars vegna þess sem
við neytum en einnig vegna ytri
þátta. Það er mikilvægt að huga
að heilbrigði þarmaflórunnar
og ein leið til þess er að taka inn
góða mjólkursýrugerla, með sann-
reynda virkni, dag hvern.
Caroline Montelius hjá Probi
AB í Svíþjóð er rannsóknarvís-
indamaður með doktorsgráðu í
líf læknis- og næringarfræði en
hún hefur unnið með mjólkur-
sýrugerla um árabil en hér nefnir
hún tvær nýjar vörur frá fyrirtæk-
inu, annars vegar Probi® Family
og hins vegar Probi® Járn.
„Probi® Family er vara sem
ætluð er til að styðja við eðlilega
starfsemi ónæmiskerfisins og
inniheldur sérvalda samsetningu
af einkaleyfisvörðu mjólkursýru-
gerlunum Lactobacillus plantarum
HEAL9 og Lactobacillus paracasei
8700:2 ásamt fólasíni, D-víta-
míni og B-12 vítamíni. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að mjólkur-
sýrugerlarnir lifa af niðurbrot
meltingarvegarins og hið sýrða
umhverfi magans og ná bólfestu
í þörmunum. Probi® Family eru
bragðgóðar tuggutöf lur ætlaðar
allri fjölskyldunni frá þriggja ára
aldri,“ segir Caroline.
Ónæmiskerfið
Ónæmiskerfið vinnur ötullega að
því að vernda okkur gegn sjúk-
dómum en við erum í snertingu
við mögulega sýkla og veirur
Caroline segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að mjólkursýrugerlarnir lifa af
niðurbrot meltingarvegarins og hið sýrða umhverfi magans og nái bólfestu
í þörmunum. Nauðsynlegt er að huga vel að heilbrigði þarmaflórunnar.
Önnur spennandi vara er Probi® Járn frá Probi AB. Við báðum Caroline að
segja okkur meira um þessa áhuga-
verðu vöru.
„Probi® Járn vinnur gegn járn-
skorti á alveg nýjan máta, með
því að auka upptöku járns, ekki
eingöngu inntöku. Klínískar rann-
sóknir liggja að baki vörunni og
með því að styðja við aukna járn-
upptöku er inntökuþörf járns að
sama skapi minni og því minnkar
samhliða hættan á mögulegum
aukaverkunum sem má ef til vill
rekja til notkunar á háskammta-
járnbætiefnum. Útkoman er því
jafnari upptaka járns, magi og
melting í jafnvægi og heilbrigðari
þarmaf lóra.“
Probi® Járn:
n Aukin upptaka járns (upptaka,
ekki bara inntaka)
n Getur dregið úr þörf á viðbótar-
járninntöku
n Milt fyrir meltingarkerfið
n Náttúruleg leið til að viðhalda
góðum járngildum – hentar
einnig á meðgöngu
Vandamálið með járnið…
Einungis lágt hlutfall af því járni
sem við neytum í fæðu frásogast og
nýtist líkamanum. Þetta hlutfall
er breytilegt og fer eftir ýmsum
þáttum svo sem:
1) járngildi einstaklings
2) samsetningu fæðu með tilliti til
örvandi eða hamlandi upptöku-
þátta
3) uppruna járnsins, þ.e. hvort það
er úr dýraríkinu eða plönturíkinu
Auk þess að nýta ekki nema
tiltölulega lágt hlutfall járns úr
fæðunni, þá missum við einnig
járn úr líkamanum, t.d. í gegnum
blæðingar (tíðablæðingar). Þessir
tveir þættir, lág upptaka af járni og
töluverður járnmissir, eru algeng
orsök fyrir blóðleysi af völdum
járnskorts hjá konum á barn-
eignaraldri. Aðrir áhættuhópar eru
börn og unglingar (aukin járnþörf),
grænmetisætur (ef lágt járnmagn í
fæðu), íþróttafólk (aukin járnþörf)
og eldra fólk sem neytir gjarnan
minna af mat en áður.
Aukaverkanir hefðbundinna
háskammta járnbætiefna má
alla jafna tengja við lága upp-
töku járnsins sem skilur eftir sig
háan skammt af óuppteknu járni
í meltingarvegi og getur valdið
óþægindum á borð við magaverk,
ógleði og hægðatregðu.
Fyrir aukna járnupptöku
Probi® Járn inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum 299v® auk járns, C-vítamíns
og fólasíns. Styður aukna upptöku járns og viðheldur góðum járngildum, einnig á meðgöngu.
Probi® Family
hentar fyrir alla
fjölskylduna
frá þriggja ára
aldri.
Probi® Járn vinnur gegn járnskorti á nýjan máta með
því að auka upptöku járns en ekki eingöngu inntöku.
Framhald af forsíðu ➛
öllum stundum. Ef ónæmiskerfið
starfar ekki sem skyldi getur sjúk-
dómshætta aukist.
Streituvaldandi umhverfi,
breytingar á mataræði, hækkandi
aldur, svefnskortur og nútíma
lifnaðarhættir almennt, geta
stuðlað að skaðlegum áhrifum á
heilsu okkar og hugsanlega leitt til
ójafnvægis í ónæmiskerfinu.
Mikilvægi örverujafnvægis
Stór hluti ónæmiskerfis okkar
er staðsett í meltingarveginum.
Virkni og almennt heilbrigði
meltingarvegarins ræðst meðal
annars af samsetningu örveru-
flóru hans, þarmaflórunni. Með
viðkvæmri þarmaflóru og röskun
á henni getur hættan á sýkingum,
bólgum og öðrum sjúkdómum
aukist.
Rannsóknir hafa sýnt fram á
að fjölbreytt og vel nærð örveru-
flóra getur stuðlað að bættu
ónæmiskerfi á margan hátt. Sterkt
ónæmiskerfi er nauðsynlegt
vörnum okkar og til þess að við
séum í okkar besta formi.
Járnskortur – alheimsvandamál
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni
(WHO) er blóðleysi af völdum járnskorts eitt
helsta næringarvandamálið í heiminum í dag.
Eftirfarandi hópum getur m.a.
verið hætt við járnskorti:
n Konum á barneignaraldri
n Barnshafandi konum
n Unglingum
n Eldra fólki
n Fólki í mikilli þjálfun
n Grænmetisætum/grænkerum, ef lágt járnmagn
er í fæðu
Einkenni járnskorts geta
meðal annarra verið:
n Þreyta
n Höfuðverkir
n Svimi
n Skertur skilningur og einbeitingarskortur
(e. impaired cognition)
n Fölvi
n Pirringur
n Þrek- og orkuleysi
n Hárlos
n Vöðvakippir
n Veikara ónæmiskerfi
Jafnari upptaka
járns, meltingin í
jafnvægi og heilbrigðari
þarmaflóra.
Probi® mjólkursýrugerlar eru fæðubótarefni. Neysla
fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og
heilsusamlegs lífernis. ABEL ehf. er umboðsaðili Probi®
mjólkursýrugerla á Íslandi.
Styður eðlilega
virkni ónæmis-
kerfisins – Probi®
Family mjólkursýru-
gerlar og vítamín fyrir
alla fjölskylduna frá 3
ára aldri.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R