Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 26
Ratleikja-appið
mun alltaf koma til
með að vera frítt.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Fyrsti ratleikurinn frá Sýslu, menningu og listum, verður settur í gang á Akranesi
um helgina og hentar leikurinn
sérlega vel fyrir fjölskyldufólk.
Sýsla, menning og listir er lítið
sprotafyrirtæki sem hefur verið
að vinna með íslenskt hand- og
hugverk, þar sem áhersla er lögð
á að útbúa spil, leiki, þrauta- og
hljóðbækur og snjallforrit. Nú
er svo komið að fyrirtækið hefur
framleitt glænýtt ratleikja-app
sem er frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna til þess að fagna
sumrinu. Einnig er þetta hvatning
til útiveru og ævintýralegra
samverustunda. „Appið er stór-
skemmtileg af þreying fyrir fólk
á öllum aldri, en er hugsað fyrir
krakka frá sirka 7 ára aldri og upp
úr,“ segir Salome Friðgeirsdóttir,
framkvæmdastjóri Sýslu.
„Hugmyndin að ratleikja-
appinu kom upp fyrir ári þegar
okkur fannst vanta skemmtilega
afþreyingarleiki fyrir fjölskylduna
á ferð um landið, sem væri í senn
skemmtilegir og fræðandi. Í kjöl-
farið fórum við að hanna grunn að
ratleikja-appi og erum nú virki-
lega ánægð með útkomuna,“ segir
Salome.
Fyrsti ratleikurinn á
Akranesi þessa helgi
Fyrsti ratleikurinn í ratleikja-
appinu er á Akranesi um helgina
og er kynntur í samstarfi við Írska
daga þar í bæ. Að sögn Salome
þarf alls ekki að vera kunnugur
Akranesi til þess að taka þátt í
leiknum. „Það er alltaf hægt að
finna staðsetninguna með GPS-
korti í leiknum. Einnig er hægt að
fá vísbendingar, þannig að þetta
ætti að vera nokkuð skemmtileg
áskorun fyrir bæði kunnuga sem
ókunnuga.“
Komdu í stjörnuleit
Markmið ratleiksins er að
ferðast um Akranes hvort sem er
gangandi eða á hjóli og kynnast
skemmtilegum stöðum í bænum,
ásamt því að safna stjörnum sem
birtast í forritinu við hin ýmsu
kennileiti víðs vegar um Akranes.
Til þess að finna ratleikjastoppin
og vinna stjörnu þarf að smella
á hnappinn „að byrja leitina“.
Upplifðu Akranes í nýjum ratleik
Það á að vera fínasta veður á Írskum dögum á Akranesi í dag og á morgun. Er þá ekki tilvalið
að skella sér aðeins út úr bænum og gera eitthvað nýtt og skemmtilegt með fjölskyldunni?
Sýslu fannst vanta afþreyingamöguleika fyrir fjölskyldur á ferð og flugi um landið í sumar og hannaði þess vegna ratleikja appið. Mynd/Pétur Ásgeirsson.
Væri ekki tilvalið að skella sér í ratleik á Akranesi um helgina?
Um leið og smellt er á hnappinn
opnast myndavél í símanum þar
sem þú skannar með símanum
yfir svæðið þar sem þig grunar að
rétta stoppið sé. Ef þú hefur valið
rétt svæði birtist stjarna, og til að
halda áfram á næsta stopp þarf að
smella á stjörnuna.
Þess má geta að leikurinn hleður
ekki niður neinum upplýsingum
um notendur, en til að geta spilað
leikinn þarf að gefa appinu aðgang
að staðsetningu (location) og
myndavél símtækisins.
Frítt fyrir notendur
Snjallforritið er aðgengilegt bæði
á App Store og Google Play öllum
að kostnaðarlausu. „Ratleikja-
appið mun alltaf koma til með að
vera frítt, en bæjarfélög, stofnanir
eða fyrirtæki sem vilja starfa með
okkur mega endilega hafa sam-
band við okkur gegnum postur@
sysla.is og við setjum saman
f lottan leik.“
Sýsla sér fram á að setja saman
enn f leiri ratleiki vítt og breitt um
landið. „Þá verða bæði leikir fyrir
yngri kynslóðina, sem og ratleikir
sem sniðnir eru að eldri kyn-
slóðinni og þá með f leiri þrautum
og leikjum,“ segir Salome.
Laugardaginn 11. júlí gefur Féttablaðið út sérblaðið
ÍSLENSKT GJÖRIÐ SVO VEL
Fjalla á um framleiðslu íslenskra afurða, hvort sem það fellur undir
húsgagna- og innréttingaframleiðslu, matvælaframleiðslu,
fatnað, hönnun eða annað.
Við viljum bjóða ykkar fyrirtæki að taka þátt og
kynna ykkar þjónustu og/eða starfsemi.
Tryggðu þér gott pláss í mest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfu .
Allir sem hafa fermst vita ð dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R