Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 28
Sesselja fæddist 5. júlí 1902 í Hafnarfirði, dóttir hjónanna Kristínar Símonardóttur og Sigmundar Sveinssonar. Sesselja var tveggja ára gömul þegar faðir hennar tók við rekstri veitinga- hússins Valhallar á Þingvöllum, þar sem Sesselja ólst upp í mikilli nálægð við fagra náttúru. Sesselja fékk vitrun á fermingardaginn sinn og var strax ákveðin í að láta til sín taka og láta gott af sér leiða. Þó svo að á þeim tíma hafi ekki legið fyrir í hvaða farveg hún ætlaði að beina kröftum sínum, vissi hún fyrir víst að henni var ætlað það hlutverk að líkna og þjóna þeim sem þurftu stuðning, aðstoð og kærleika. Sesselja stundaði nám í Dan- mörku, Sviss og Þýskalandi og var fyrsti Íslendingurinn sem lærði umönnun þroskaheftra. Meðan á dvöl hennar erlendis stóð kynntist hún kenningum Rudolfs Steiners sem áttu eftir að hafa veruleg áhrif á allt hennar starf á Sólheimum. Hún tileinkaði sér kenningar hans á sviðum uppeldis-, heilbrigðis- og skólamála ásamt hugmyndum Steiners um jarðrækt og lífræna ræktun. Mótaðar hugmyndir Samhliða dvöl Sesselju erlendis leituðu foreldrar hennar að hentugum stað fyrir barnaheim- ilið sem hana langaði að stofna. Sesselja hafði mjög mótaðar hugmyndir og sýn. Hún vildi ekki að þetta yrði stofnun, heldur venjulegt sveitaheimili, á stórri jörð, helst jörð með heitu vatni og jafnvel hver. Ýmsir staðir komu til greina, svo sem jarðir í Kjós og á Álftanesi, en jörðin Hverakot í Grímsnesi þótti hentugust og hafði orðið fyrir valinu vorið 1930 þegar Sesselja kom heim til Íslands. Ein meginástæðan fyrir valinu á jörðinni Hverakoti var að á jörðinni var og er, hver og heitt vatn, sem Sesselja hugðist nýta til húshitunar og ræktunar. Margir töldu það óráð að stofna barna- heimili á svo afskekktum , en Sesselja hélt sínu striki og naut til þess hvatningar sr. Guðmundar á Mosfelli og Önnu konu hans. Með styrk frá Reykjarvíkurbæ til hús- byggingar og láni úr sjóði barna- heimilisnefndar þjóðkirkjunnar, var draumurinn um Sólheima Frumkvöðullinn Sesselja Saga Sólheima er lengst framan af samofin lífi og starfi merkiskonunnar Sesselju Hreindísar Sig- mundsdóttur. Hún vann brautryðjendastarf fyrir börn auk þess að vera mikill umhverfissinni. Sesselja Hreindís á tröppunum á Sólheimum í Grímsnesi. Sólheimar árið 1957. Síðan þá hefur verið mikil uppbygging á svæðinu og gróðurinn hefur þar fyrir utan vaxið mikið. Það er fallegt á Sólheimum. Sesselja með börnum sem dvöldu á Sól- heimum. orðinn að veruleika. Þann 5. júlí 1930 á 28 ára afmælisdaginn sinn stofnar Sesselja Sólheima á jörðinni Hverakoti og þann dag komu fyrstu fimm börnin til hennar og nokkru síðar bættust önnur fimm við. Frumkvöðull í lífrænni ræktun Sólheimar voru stofnaðir sem barnaheimili, einkum fyrir börn sem bjuggu við erfiðar heimilis- aðstæður svo sem foreldramissi eða veikindi foreldra. Einnig voru tekin börn til sumardvalar. Haustið 1931 kom fyrsta þroska- hefta barnið að Sólheimum, en þá voru engin úrræði til á Íslandi fyrir þroskahefta og þess voru dæmi að þroskaheft fólk væri geymt í útihúsum. Sesselja var frumkvöðull í lífrænni ræktun, ekki aðeins á Íslandi heldur líka á Norður- löndum og er í raun fyrsti íslenski umhverfissinninn. Eftir að Sesselja f lutti til Íslands 1930 stóð hún í bréfaskriftum við fjölda fólks í Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Englandi og Sviss, m.a. um lífeflda ræktun (bio-dynamics) og mann- speki og ferðaðist hún reglulega til þessara landa. Meðal þeirra sem hún átti í bréfaskiptum við voru dr. Karl König, stofnandi Camp- hill-hreyfingarinnar í Bretlandi, Sólveig Nagel frá Noregi og Caritu Stenback frá Finnlandi, en þær voru frumkvöðlar í málefnum þroskaheftra í sínum heima- löndum. Sesselja giftist Rudolf Richard Walter Noah, 17. mars 1949. Noah var þýskur tónlistarmaður og kennari sem kom til Íslands 1935, en var handtekinn af breska hernum 5. júlí 1940 og fluttur í fangabúðir til Englands. Noah fékk ekki leyfi til að koma til Íslands fyrr en 1949 eftir níu ára fjarveru. Hann fór aftur til Þýskalands 7. mars 1953, án þess að Sesselja og hann skildu formlega. Noah lést í Þýskalandi 1967. Sesselja ættleiddi tvö börn, Hólmfríði og Elvar, og ól upp 14 fósturbörn. Elvar lést 27. nóvember 1963. Sesselja lést á Landakotsspítala í Reykjavík 8. nóvember 1974, 72 ára gömul. Fatlaðir og ófatlaðir Sesselja lagði ávallt áherslu á að Sólheimar væru heimili en ekki stofnun og að fatlaðir sem ófatlaðir deildu kjörum í daglegu lífi og starfi. Á Sólheimum markaðist upphaf þeirrar stefnu sem nefnd er samskipan fatlaðra og ófatlaðra, eða blöndun, en sú stefna var ekki þekkt erlendis fyrr en um og eftir 1970. Sólheimar voru alla tíð skráð barnaheimili, en 1984 var þess krafist að Sólheimar væru skráðir vistheimili og var svo í níu ár, þar til vistun fatlaðra lauk í janúar 1994 á Sólheimum. Á þeim tímamótum tóku fatlaðir upp sjálfstæða búsetu á Sólheimum. Þeir fá greiddar örorkubætur í stað vasapeninga vistmanna og greiða leigu fyrir sitt húsnæði og standa straum af kostnaði við eigið heim- ilishald. Fatlaðir íbúar eru nú 42, af um rúmlega eitt hundrað íbúum Sólheima. Fljótlega eftir að Sólheima- húsið var risið, var farið að huga að frekari uppbyggingu. Selhamar er fyrsta húsið sem sérstaklega er byggt fyrir þroskahefta á Íslandi. Húsið var reist 1932-1933, en Alþingi styrkti framkvæmdina með 15 þúsund króna framlagi. Sólheimahúsið og Selhamar voru lengi einu íbúðarhúsin á Sól- heimum, eða þar til 1962 að húsin Sveinalundur og Lækjarbakki voru byggð og síðan Hvammur, Birki- hlíð og Fagrabrekka árið 1970. Byggingafélagið Goði gaf Sólheim- um sundlaug 1942, sem byggð var við hliðina á Sólheimahvernum. Sundlaugin var endurbyggð af Lionsklúbbnum Ægi 1980. Þróun í uppbyggingu Viðbygging við Sólheimahúsið var tekin í notkun þann 7. maí 1966, en hún hýsir borðsal, eldhús og þvottahús í kjallara. Með þessum byggingum var kominn vísir að þéttbýli að Sólheimum. Fyrstu fimm árin var enginn sími á Sól- heimum og rafmagn fékkst ekki fyrr en 1956 eftir mikla baráttu, þrátt fyrir að stærstu raforkuver landsins væru í hreppnum. Vind- mylla var sett upp á Sólheimum 1943 og framleiddi hún rafmagn fyrir lýsingu í Selhamri og í Sól- heimahúsi, en um var að ræða 32 volta rafstöð. Sesseljuhús var formlega tekið í notkun 5. júlí árið 2002, þegar eitt hundrað ár voru liðin frá fæðingu Sesselju. Húsið er sýningarhús um sjálf bærar byggingar og fræðslu- miðstöð fyrir umhverfismál. Sól- heimakirkja var vígð 5. júlí 2005 á 75 ára afmæli Sólheima. Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.is Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSÓLHEIMAR 90 ÁRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.