Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 30
Sesselja Hreindís skildi og vann með náttúrunni. Það sést á öllum hennar verkum og
arfleifðinni sem hún skildi eftir sig
á Sólheimum. „Fyrir mig í dag sem
matreiðslumeistara, eru það hrein
forréttindi að fá að vinna með það
sem ræktað er hérna á staðnum.
Geta gert súpu úr því sem garð-
yrkjufólkið kemur með á hverjum
degi. Vitandi að í því er ekkert
nema spriklandi hollusta,“ segir
Dóra Svavarsdóttir, matreiðslu-
meistari á Sólheimum.
„Þó svo að það sé ekki eldað kjöt
og kartöflur í hvernum, líkt og var
hér í upphafi, þá spilar jarðhitinn
stórt hlutverk. Hann gerir það að
verkum að tómatar, eggaldin, kúr-
bítur, epli, laukar og um það bil allt
sem hugurinn girnist, getur dafnað
hér í gróðurhúsunum. Það hefur
verið hlúð að plöntunum líkt og
mannfólkinu hér á staðnum, með
natni og smá húmor. Við í eldhús-
inu fáum það í hendur og nýtum
í mat handa íbúum og starfsfólki
Sólheima. Alla daga geta gestir
og gangandi keypt sér súpu og
nýbakað brauð. Kaffilyktin lokkar,
enda ristum við kaffið okkar sjálf
og með því er upplagt að fá sér
kökusneið eða vöfflu með sultu og
rjóma,“ segir hún.
Lífrænt úr garði Sólheima
Græna kannan er hjarta Sólheima, í gömlu gróðurhúsi. Þar er mötuneytið, kaffihúsið, verslunin
Vala, listsýningar og hún Emma á heima þar, talandi páfagaukur sem gleður fólk á öllum aldri.
Hallbjörn V. Rúnarsson þroskaþjálfi segir að það sé engin tilviljun að listastarf
hafi verið mikilvægur þáttur í 90
ára sögu Sólheima. Tónlist og leik-
list hafi alltaf skipað þar mikilvæg-
an sess. „Sesselja Sigmundsdóttir
kynntist hugmyndafræði Rudolfs
Steiners en samkvæmt henni
skerpir listrænt starf tvo mjög
mikilvæga færniþætti, hæfileikann
til að móta og greina. Leikrit hafa
verið færð upp árlega og síðustu
árin með virkri þátttöku allra sem
þátt vilja taka,“ segir Hallbjörn.
„Tónlistin var í hávegum höfð
og flestum stundum hefur starfað
tónlistarmenntað fólk á Sól-
heimum, sem haldið hefur uppi
öflugu tónlistarlífi. Flutt voru
inn hljóðfæri og önnur smíðuð á
staðnum. Þau voru notuð til tón-
listarkennslu áður en farið var að
kenna tónlist almennt í skólum hér
á landi. Þá hefur verið starfandi
kór á Sólheimum frá árinu 1989.
Tilgangurinn með tón- og leik-
listarstarfi er ekki bara leikurinn
einn. Með því að tjá sig á fjöl-
breyttan hátt erum við að móta
leiðir fyrir okkur sjálf sem eru
vald eflandi og geta aukið getu til
að taka sjálfstæðar ákvarðanir.
Með því að sýna öðrum hvað við
getum, öðlumst við svo aðdáun,
sem er hvatning til að halda áfram
og eykur sjálfstraust. Það eru góð
rök fyrir því að nota tónlist til
að efla einstaklinginn til aukins
þroska, færni og lífsgæða.
Þegar ég hóf störf sem þroska-
þjálfi á Sólheimum fyrir þremur
árum, hafði verið þar öflugt tón-
og leiklistarstarf með einstaklings-
þjálfun, kórstarfi og útgáfu. Það
heillaði mig mikið að halda því
starfi áfram, enda alltaf haft sér-
stakan áhuga á að sýna fram á gildi
tónlistar við þjálfun einstaklinga.
Tónlist er ekki frátekin iðja
fyrir þá hæfustu, eða þá sem hafa
þjálfað með sér færni í hljóðfæra-
leik. Heilarannsóknir sýna að
þegar hlustað er á tónlist verða
mörg mismunandi svæði heilans
virk. Þannig má færa rök fyrir því
að upplýsingar gefnar í tónlist, séu
líklegri til að skila sér en þær sem
einungis eru gefnar munnlega.
Við þekkjum öll hvernig tónlist
getur haft áhrif á okkur. Hún
getur framkallað tilfinningar sem
hríslast um líkamann og fá hárin á
handleggjunum til að rísa.
Tónlist getur líka vakið upp
nýjar tilfinningar, sem og endur-
heimt minningar sem tengjast
tilfinningum.
Hlutverk tónlistar getur verið,
eins og allrar listar, að teikna upp
mynd af okkur, að senda boð til
annarra um líðan okkar og að tjá
tilfinningar okkar. Þannig getur
fagmanneskja notað einstaklings-
bundnar aðferðir til að þjálfa
færni og veita hvatningu.
Áhrifamátt tónlistar má jafnvel
nýta á líkamlegt, andlegt og til-
finningalegt ástand einstaklings,
áður en gripið er til lyfjameð-
ferðar, samhliða lyfjameðferð og
eftir lyfjameðferð.
Þá er hægt að bæta tónlist við
margar viðurkenndar aðferðir,
sem dæmi má nefna skynörvun
með tónlist, félagsfærnisögur
með tónlist, að skipta athöfnum
upp í þrep þar sem hver athöfn er
sungin, og tengslamyndun í ein-
staklingsþjálfun og hóp.
Á Sólheimum hefst hver einasti
vinnudagur á morgunsöng sem er
sálmur. Boðskap sálmsins getur
hver túlkað á sinn hátt. Tónlistin
hefur mátt til að skynja og greina.
Það finnst mér segja sína sögu.“
Tónar í geislum sólar
Börn í tónlistarkennslu. Tónlist hefur alltaf skipt miklu máli á Sólheimum.
„Eldhúsliðið tekur síðan allt
þetta dásamlega grænmeti og
býr til arfapestó, gúrku-relish,
þurrkaða tómata í olíu, sýrðar
gúrkur, sultur og ýmislegt f leira,
allt eftir því hvað hefur vaxið mest
síðustu dagana. Þetta er allt til
sölu í búðinni okkar og getur glatt
bragðlaukana þegar heim er komið
og er upplagt sem tækifærisgjöf
fyrir vini og ættingja sem eiga allt.
Það er fátt skemmtilegra en að
gefa fólki að borða, diskaglamur
og vellíðunaruml er góðs viti fyrir
okkur kokkana. Besta hrósið er ef
það er alveg þögn fyrst þegar fólkið
fær að borða. Svo kemur hláturinn
og skemmtisögurnar úr hversdags-
lífinu hérna á Sólheimum,“ segir
Dóra og gefur hér góða uppskrift.
Arfapestó Sólheima
200 g haugarfi
50 g basilíka
3 dl repjuolía
2 hvítlauksgeirar
2 tsk. salt
¼ tsk. svartur pipar
100 g kasjúhnetur
Setjið allt í matvinnsluvél, nema
hneturnar, og maukið saman.
Bætið hnetunum út í og maukið
áfram, passið að hneturnar fari
ekki alveg í mauk. Njótið með
góðu brauði.
Tómat-paprikusúpa
Fyrir 5
1 laukur, saxaður
1 tsk. timian
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
Svartur pipar
½ kg plómutómatar, skornir í
tvennt
2 rauðar paprikur, kjarnhreins-
aðar og skornar gróft
1 grein rósmarín
½ lítri vatn
1 gulrót, fínt skorin
½ kúrbítur, fínskorinn
Salt og pipar
Laukurinn er svitaður í potti
ásamt pipar, timiani og hvítlaukn-
um. Tómötunum bætt út í ásamt
paprikunni, vatni og rósmarín-
grein, soðið rólega í 25 mínútur,
vatni bætt út í ef þurfa þykir.
Veiðið rósmaríngreinina upp
úr og maukið súpuna með töfra-
sprota eða í matvinnsluvél.
Smakkið til með salti og pipar,
setjið fínt skorið grænmetið út í og
sjóðið upp á súpunni og berið fram
með söxuðum kryddjurtum.
Tónlist hefur
alltaf verið í há-
vegum höfð á
Sólheimum.
Hallbjörn Rúnarsson þroskaþjálfi.
4 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSÓLHEIMAR 90 ÁRA