Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 31
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
var stofnuð 1. janúar árið 2020
við sameiningu Íbúðalánasjóðs og
Mannvirkjastofnunar. Sameiningin átti að
stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðis-
og mannvirkjamál á einum stað ásamt
því að efla stefnumótun og framkvæmd
húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta
fyrir almenning.
Hlutverk Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar er að vernda líf og
heilsu manna, eignir og umhverfi með
því að tryggja faglegan undirbúning
mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með
gæðum, öryggi og heilnæmi. Að stuðla
að stöðugleika á húsnæðismarkaði og
tryggja almenningi aðgengi að viðunandi
húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem
er til eignar eða leigu.
Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
starfar öflugur hópur starfsfólks með
fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Stofnunin hefur aðsetur á tveimur
stöðum, annars vegar í Borgartúni í
Reykjavík, þar sem starfa rúmlega 80
starfsmenn og hins vegar á Sauðárkróki
þar sem starfa rúmlega 20 starfsmenn.
Starfskjör eru í samræmi við
kjarasamning ríkisins og viðkomandi
stéttarfélaga. Umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.hms.is
Um framtíðarstörf er að ræða og fullt starf. Áætlað er að ráða í u.þ.b. 5-7 stöðugildi sérfræðinga. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð
grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða
háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
• Menntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg
menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla af
brunahönnun og brunavörnum
• Áhugi og þekking á málum sem snúa að brunavörnum
• Forystuhæfileikar og drifkraftur
• Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
• Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Skipulagning og samræming eftirlits með
öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna
• Umsjón með brunavarnaáætlunum sveitarfélaga
• Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir fagaðila
• Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um eldvarnir
• Úrvinnsla tölfræðiupplýsinga
• Aðkoma að rannsóknum í kjölfar eldsvoða
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugum sérfræðingum til að taka þátt í uppbyggingu á nýju
sviði eldvarna hjá stofnuninni sem staðsett verður á Sauðárkróki.
Hlutverk sviðsins er að sinna lögbundnu eftirliti og samræmingarhlutverki á sviði eldvarna. Sviðið hefur
eftirlit með slökkvistarfi á Íslandi, samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga, annast rannsóknir,
fræðslu og forvarnir á sviði eldvarna og annast löggildingu slökkviliðsmanna. Eldvarnasvið ber jafnframt
ábyrgð á starfrækslu Brunamálaskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni:
Sérfræðingur á sviði brunavarna
Sérfræðingur á sviði slökkvistarfs
• Reynsla af slökkvistarfi eða þekking á starfsemi slökkviliða
• Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
• Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Reynsla af skipulagningu fræðslustarfs er kostur
• Reynsla af gæðaeftirliti og úttektum er kostur
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Skipulagning á eftirliti með starfi slökkviliða og gerð
leiðbeininga
• Umsjón með úttektum á slökkviliðum og búnaði
slökkviliða og eftirfylgni
• Skipulagning og umsjón með öllu námi innan
Brunamálaskólans
• Mat á fræðsluþörfum slökkviliðsmanna og námsmat
• Löggilding slökkviliðsmanna og starfsleyfi
• Samskipti við hagsmunaaðila og svörun fyrirspurna
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni:
Forvarnarfulltrúi
• Menntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegu starfi
• Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
• Reynsla af gerð og útgáfu kynningarefnis er kostur
• Þekking á stafrænum miðlum og samskiptaleiðum er kostur
• Reynsla af skipulagningu fræðslu og kynningum er kostur
• Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum er skilyrði
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði
• Skipulagning og umsjón forvarnarstarfs á sviði
eldvarna
• Umsjón með gerð og útgáfu kynningarefnis og
leiðbeininga
• Umsjón með kynningum, námskeiðum og
forvarnarfræðslu
• Samstarf við hagsmunaaðila á sviði forvarnarstarfs
um eldvarnir
• Þátttaka í verkefnum eldvarnasviðs
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu verkefni:
Viltu efla brunavarnir á Íslandi og byggja
upp nýtt eldvarnasvið á Sauðárkróki?
Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára