Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 04.07.2020, Qupperneq 38
Starf á skrifstofu framhaldsskóla og –fræðslu Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf á skrifstofu framhaldsskóla og fræðslu. Um er að ræða fjölbreytt starf með áherslu á starfsmenntamál. Starfið felur í sér þátttöku í stefnumótun, áætlanagerð og eftirliti í samræmi við lög um opinber fjármál, lög um framhaldskóla og framhaldsfræðslu. Starfs- maður er tengiliður ráðuneytisins við nokkra framhaldsskóla, heldur utan um samninga er varða starfsmenntamál og kemur sérstaklega að stefnu- mótun og afgreiðslu mála er varða starfsmenntun. Hann undirbýr afgreiðslu erinda, gerð skýrsnla, minnisblaða og ávarpa. Miðað er við að umsækjandi geti verið falið að vinna við önnur málefni ráðuneytisins. Menntun og hæfnikröfur: • Haldbær reynsla af greiningu og framsetningu gagna. • Reynsla af stefnumótun og verkefnisstjórnun. • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. • Færni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni. • Mjög góð færni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti á íslensku og ensku/ norðurlandamáli. • Reynsla af stjórnunarstörfum í framhaldsskóla er kostur. • Þekking á starfsmenntakerfinu, lagaumhverfi framhaldsskólastigsins og stjórnsýslulögum er kostur. • Bakgrunnur og reynsla á sviði starfsmennta eða háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins eða samkvæmt Félagi starfsmanna Stjórnar- ráðsins eftir því sem við á. Nánari upplýsingar veitir Björg Pétursdóttir, settur skrifstofustjóri, í síma 545-9500. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni við- komandi í starfið. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína til mennta- og menningarmálaráðuneytisins á mrn@mrn.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins og eru karlmenn jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu starfa um 70 starfsmenn með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Ráðuneytið er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á samvinnu og góðan starfsanda. Skrifstofa framhaldsskóla og -fræðslu fjallar um málefni framhaldsskólastigsins og framhaldsfræðslu. Hún aðstoðar ráðherra við yfirstjórn stofnana og sjóða sem annast framkvæmd stjórnarmálefna er undir hann heyra og hefur eftirlit með starfsemi og fjárreiðum þeirra. Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2020. Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 4. júlí 2020. Þjóðkirkjan – Biskupsstofa leitar að öflugum upplýsinga- fræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf á skrifstofu sína í Reykjavík í tímabundið starf í 6 mánuði, með möguleika á fastráðningu. Þekking og hæfni: • Háskólamenntun á sviði upplýsingafræða (áður bókasafns- og upplýsingafræði) • Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði • Þekking og reynsla af skjalastjórnarkerfum er nauð- synleg, þekking á CoreData æskileg • Leyfi til skráningar í Gegni er kostur • Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði. Kunnátta í norðurlandamáli er æskileg Helstu verkefni: • Skráning, varðveisla og miðlun skjala • Frágangur skjala og eftirfylgni með skráningu • Upplýsingagjöf og notendaaðstoð • Þátttaka í þróun verklagsreglna Þjóðkirkjan - Biskupsstofa er skrifstofa biskups Íslands, sem annast starfsmannahald vegna presta þjóðkirkjunn- ar og stuðningur veittur í starfsmannamálum í sóknum, stofnunum og prófastsdæmum. Sótt er um starfið á heimasíðu kirkjunnar, www.kirkjan.is Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk. Upplýsingafræðingur Framkvæmdastjóri þjálfunar og ráðgjafar Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra þjálfunar og ráðgjafar á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð ehf. Um er að ræða 100% stöðu. Framkvæmdastjóri þjálfunar og ráðgjafar er ný staða í skipuriti Reykjalundar og heyrir undir for- stjóra. Framkvæmdastjóri þjálfunar og ráðgjafar situr í framkvæmdastjórn. Hann ber ábyrgð á starfsemi þjálfunar- og ráðgjafastétta sem starfa þvert á þau tvö meðferðarsvið sem meðferðarteymin skiptast niður á. Hann skipuleggur og samhæfir faglegt meðferðarstarf, tryggir mönnun sinna faghópa í teymin og tryggir fram- gang markmiða, stefnu og sýn Reykjalundar. Hæfni- og menntunarkröfur • Íslenskt starfsleyfi á sviði heilbrigðisvísinda. Leitast verður við að ráða einstakling sem býr yfir menntun á sviði sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar, félagsráðgjafar, sálfræði, talmeinafræði, næringarfræði eða íþrótta- fræði. • Þekking á rekstri heilbrigðisstofnana • Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu • Leiðtogahæfileikar og stjórnunarreynsla • Þekking og reynsla af mannauðsmálum • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og metnaður í starfi Umsóknarfrestur er til 26. júlí 2020. Upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri – gudbjorg@reykjalundur.is og Pétur Magnússon forstjóri – petur@reykjalundur.is Umsókn skal skilað til Guðbjargar Gunnarsdóttur mann- auðsstjóra Reykjalundar - gudbjorg@reykjalundur.is Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á www.reykjalundur.is Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.