Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 54
Ferðaþjónustan á
Sólheimum er í
boði fyrir alla, en það er
eitthvað sem margir átta
sig ekki á.
Sesseljuhús er fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálf bærar og vist
vænar byggingar, sem er staðsett
á Sólheimum í Grímsnesi. Þar fer
fram fræðsla um umhverfismál og
haldin eru námskeið, málþing og
fundir, ásamt því að þar er sýning
um umhverfismál allan ársins
hring.
„Sólheimar eru elsta umhverfis
þorp í heimi og hugmyndin á bak
við stofnun Sesseljuhúss var að
með þá sérstöðu þyrfti að vera hér
umhverfissetur sem geti frætt fólk
um umhverfismál,“ segir Skarp
héðinn Guðmundsson, forstöðu
maður Sesseljuhúss og ferðaþjón
ustu Sólheima.
„Sesseljuhús umhverfissetur
er fyrsta sjálf bæra byggingin á
Íslandi og þegar það var opnað var
hér stærsta sólarsella á landinu,“
segir hann. „Húsið er líka með
frábæran ráðstefnusal sem hópar
geta leigt fyrir ráðstefnur, fundi
eða námskeið.
Það er líka töluvert um að
erlendir háskólar nýti aðstöðuna
til að læra um umhverfismál. Yfir
vetrartímann er húsið leigt út í
allt að þrjá mánuði í senn og á því
tímabili getur hópurinn nýtt alla
aðstöðuna hér,“ segir Skarphéðinn.
„Húsið hefur verið sérstaklega
vinsælt hjá bandarískum skólum
sem sérhæfa sig í námi tengdu
umhverfisvernd og það er boðið
upp á lærlingsstöður hér.
Menningarveisla Sólheima
Allir velkomnir til Sólheima
Á Sólheimum er að finna umhverfissetrið Sesseljuhús, þar sem fólk fær alls kyns fræðslu um
umhverfismál og ráðstefnur, fundir og námskeið fara fram. Þar er einnig öflug ferðaþjónusta.
Skarphéðinn
Guðmunds-
son segir að
almenningur sé
velkominn í Sól-
heima allt árið
um kring. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
fer fram á hverju ári yfir sumar
tímann og þá er alltaf einhvers
konar sýning sett upp sem
tengist umhverfismálum. Þá getur
almenningur komið og skoðað
hana, ásamt ýmsu fræðsluefni um
vistvænar byggingar, sem er alltaf í
boði,“ segir Skarphéðinn. „Þar sem
útleigan er í gangi yfir veturinn
koma flestir gestir til okkar yfir
sumarið, en fólk er auðvitað alltaf
velkomið.“
Tvö gistihús og tilboð í gangi
„Ferðaþjónustan á Sólheimum er
í boði fyrir alla, en það er eitthvað
sem margir átta sig ekki á. Margir
halda að Sólheimar séu lokaðir
fyrir almenning og telja að það
þurfi boð, eða að eitthvað sérstakt
sé að gerast til að þau séu velkomin
þangað, en það er alls ekki rétt,“
segir Skarphéðinn.
„Við erum með tvö gistiheimili
sem eru mjög ólík. Annað er nær
því að vera farfuglaheimili, en hitt,
Veghús, er með glæsileg herbergi
með sérbaðherbergi í hótelstíl.
Við viljum hvetja Íslendinga til
að koma að heimsækja það,“ segir
Skarphéðinn. „Hér býðst umhverf
isvæn gisting í umhverfisþorpi og
morgunmatur er innifalinn, en
hann er allur unninn úr nærum
hverfinu. Í sumar bjóðum við
upp á glæsileg tilboð og allir sem
leigja gistingu fá líka leiðsögn um
Sólheima og kynningu á starf
seminni.
Við höfum líka verið að taka á
móti alls kyns hópum og getum
sérsniðið dagskrá og veitingar
að þörfum hópsins,“ segir Skarp
héðinn.
Slógu í gegn á Instagram
„Við erum að reyna að opna augu
fólks fyrir Sólheimum, en þetta
hefur verið mjög vinsæll staður hjá
útlendingum vegna staðsetningar
og sérstöðu sinnar. Það eru allir
velkomnir, það þarf ekki einu
sinni að hringja á undan sér og það
er opið alla daga.
Við höfum náð ágætis árangri
við að kynna okkur eftir að far
aldurinn hófst með því að tileinka
okkur samfélagsmiðla enn frekar
með aukna áherslu á Instagram,“
segir Skarphéðinn. „Það hefur
gengið mjög vel, við bættum við
okkur tæplega 4.000 fylgjendum.
Það er hægt að fylgjast með okkur
undir notandanafninu solheimar
eco og þar eru upplýsingar um
daglegt líf á Sólheimum, alla við
burði og tilboð auglýst.“
Guðmundur Steinsson, forstöðumaður Ölurs, segir að skógræktarstöðin hafi verið
enduropnuð í fyrrasumar, eftir
að hafa verið lokuð um nokkurt
skeið. Ölur er eina lífrænt vottaða
skógræktarstöðin á Íslandi.
„Við framleiðum tré fyrir Skóg
rækt ríkisins, en við erum líka með
gróðurhús sem við köllum Litla
Eden. Gróðurhúsið er 660 fer
metrar og við erum að fylla það af
ávaxtatrjám,“ segir Guðmundur.
Ávaxtaræktunin er tilraun sem
er styrkt af atvinnu og nýsköpun
arráðuneytinu. Á næstu tveimur
til þremur árum er markmiðið að
fylla gróðurhúsið af ávaxtatrjám
og framleiða tvö til þrjú tonn af
lífrænt ræktuðum ávöxtum árlega.
Í dag eru ræktuð epli, plómur, aprí
kósur, ferskjur, kirsuber, perur og
vínber í gróðurhúsinu.
Ávextir í áskrift
„Draumurinn hjá mér er að selja
ávextina í áskrift. Fólk kaupir þá
ákveðið magn á mánuði og getur
sótt ávextina sína í einhverja
verslun í Reykjavík. En við ætlum
líka að selja eplin á Sólheimum og
búa til besta eplapæ í heimi. Það
verður selt á kaffihúsinu hérna á
Sólheimum. Þetta eru gæða ávextir
og takmörkuð auðlind og þeir
verða ekki seldir í stórmörkuðum.
Ávaxtatrén eru lífrænt ræktuð,
en þau fá túnstimpil næsta sumar
þegar við förum að selja eitthvað
að ráði. Ávextirnir eru ræktaðir
eftir öllum aðferðum lífrænnar
ræktunar og við notum ekkert
Ætla að búa til besta eplapæ í heimi
Skógræktarstöðin Ölur er lífrænt vottuð skógræktarstöð þar sem ræktuð eru tré, en líka ýmsir
ávextir eins og epli og plómur. Garðyrkjustöðin Sunna ræktar tómata, gúrkur og fleira grænmeti.
Guðmundur
Steinsson
ræktar ýmiss
konar ávexti
í Litla Eden.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Piotr ræktar lífrænt grænmeti á Garðyrkjustöðinni Sunnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
eitur,“ útskýrir Guðmundur.
Auk gróðurhússins er Garð
yrkjustöðin Ölur með 170 hektara
lands, sem notað er í skógrækt.
„Við fáum plöntur frá Skógrækt
ríkisins sem við gróðursetjum, og
stækkum þannig skóginn okkar.
Núna í sumar erum við að planta
16.000 trjám í landi Sólheima.
Það er ákveðin kolefnisjöfnun í
því. Við erum með samninga við
Alvogen og félags og barnamála
ráðuneytið um að gróðursetja tré
í okkar landi til að kolefnisjafna
allar þeirra ferðir. Til framtíðar
erum við einnig að rækta skóg til
nytja,“ segir Guðmundur.
„Hjá Ölri hafa skapast störf fyrir
fatlaða íbúa Sólheima sem koma
hingað og hjálpa til við að reyta
arfa og fleira. Það er góð tilfinning
að koma inn í gróðurhúsið. Fólk
talar um að það sé algjör himna
ríkisslökun. Alveg frá því í mars,
þegar trén byrja að blómstra og
svo þegar ávextirnir byrja að
myndast og það kemur góður
ilmur frá þeim. Það er dásam
legt að fylgjast með þessu. Það er
ákveðinn heilunarmáttur í því
fyrir alla.“
Fjölbreytt, lífrænt grænmeti
Í Garðyrkjustöðinni Sunnu hefur
frá upphafi verið ræktað lífrænt
grænmeti. Sesselja Hreindís Sig
mundsdóttir var frumkvöðull í líf
rænni ræktun, en almennt er talið
að upphaf lífrænnar ræktunar,
ekki bara á Íslandi heldur einnig
á Norðurlöndunum, hafi verið á
Sólheimum. Sólheimar voru valdir
undir starfsemina meðal annars
vegna jarðhitans. Í Sunnu eru
ræktaðar gúrkur, tómatar, papr
ikur og ýmiss konar salat.
„Við notum engin eiturefni í
framleiðslunni. Áburðurinn sem
við notum er allur lífrænn, til
dæmis hrossatað, kjúklingaskítur
og þari,“ segir Piotr Dera, forstöðu
maður Sunnu.
„Hér vinna að jafnaði 68 manns
og við framleiðum árlega um það
bil 30 tonn af grænmeti. Það koma
líka reglulega starfsnemar að
vinna hjá okkur sem eru til dæmis
að læra um sjálf bærni og lífræna
ræktun.“
Grænmetið frá Sólheimum er
selt í stórmörkuðum, en Sólheimar
eru um þessar mundir að opna
markað með grænmeti á Hvols
velli.
„Í framtíðinni langar okkur að
opna fleiri litla markaði og selja
f leiri tegundir af grænmeti,“ segir
Piotr.
8 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RSÓLHEIMAR 90 ÁRA