Fréttablaðið - 04.07.2020, Page 56
Lyktarskynið er
staðsett í randkerfi
heilans og er á sama stað
og tilfinningarnar og
minningarnar.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Þær Elín Hrund Þorgeirsdóttir og Sonja Bent eru konurnar á bak við Ilmbankann. „Við
erum búnar að vera að vinna
saman í þrjú ár og fyrir tveimur
árum fengum við styrk frá Tækni-
þróunarsjóði til þess að rannsaka
eimingu á íslenskum jurtum,“
skýrir Elín frá.
Takmörkuð hefð á Íslandi
Viðfangsefni verkefnisins er
umfangsmikið. „Þó að við höfum
notað jurtirnar okkar á Íslandi
í matargerð og lækningar alls
konar, þá höfum við í rauninni
mjög takmarkaða hefð fyrir því
að eima þær til þess að ná úr þeim
ilmkjarnaolíu. Það eru hverfandi
heimildir til um það.“
Þær Elín og Sonja hafa því unnið
hörðum höndum að því að rann-
saka leiðir til þess að fanga ilm
íslenskra jurta. „Þannig að síðast-
liðin tvö ár erum við búnar að vera
að rannsaka hvort það sé hægt
að ná ilmkjarnaolíu og hvernig
sé best að gera það. Svo höfum
við reyndar líka verið að finna
aðferðir til að ná ilm úr jurtunum
almennt, með öðrum aðferðum.“
Íslenskar jurtir leiddar til lyktar
Um síðustu helgi var sýningin Ilmbankinn opnuð í Álafosskvosinni. Þar gefst gestum á öllum aldri
kostur á að rækta lyktarskynið með ýmiss konar ilmtengdri upplifun. Lykt er sögu ríkari.
Sonja Bent
og Elín Hrund
Þorgeirsdóttir
hvetja fólk til
þess að leika
sér meira með
lyktarskynið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Útfærsla verkefnisins er marg-
þætt. „Markmiðið okkar var að
búa til gagnagrunn og þegar verk-
efninu væri formlega lokið þá ætl-
uðum við alltaf að opna sýningu
með niðurstöðum rannsóknar-
innar. Það höfum við semsagt gert
núna með Ilmbanka íslenskra
jurta, en rannsóknarverkefnið
heitir það líka,“ útskýrir Elín.
Leika með lyktarskynið
„Ilmbankinn er í rauninni safn
þar sem við erum að vinna með
lyktarskynið og leika okkur svo-
lítið með það. Við erum að opna
það undir nafninu Nordic Angan,
sem er okkar vörumerki, en undir
því starfrækjum við bæði hönn-
unarstúdíó og eimingarstofu, þar
sem við erum að hanna ilmtengdar
vörur og ilmupplifun. Þar erum
við að kynna þetta fyrir almenn-
ingi og leika okkur með lyktar-
skynið. Við viljum fá fólk til að
nota það meira.“
Það sé raunar hálfgerð hornreka
meðal skynfæranna. „Lyktarskyn-
ið hefur verið dálítið út undan þó
að fólk noti það alltaf. Það er ekki
mikið talað um það. Á sýningunni
getur fólk bæði þefað af alls konar
íslenskum jurtum, svo erum við
líka með ilmsturtuna sem við
kynntum á HönnunarMars í fyrra
og fékk gríðarlega athygli.“
Lyktarskynið bjóði upp á marga,
ókannaða möguleika. „Svo erum
við líka að kynna aðrar ilmupp-
lifanir því við höfum verið að
vinna, í þessu ferli, að því að tengja
lyktarskynið við tilfinningar.
Lyktarskynið er öðruvísi en önnur
skynfæri, því það er ekki hægt að
mæla það án þess að hafa alltaf
með okkar persónulegu skynjun í
rauninni. Það er staðsett í rand-
kerfi heilans og er á sama stað og
tilfinningarnar og minningarnar.
Þess vegna er þetta svona ofsalega
samtengt og við erum mikið að
spila inn á þetta.“
Ævintýraleg upplifun
Óhætt er að fullyrða að Ilmbank-
inn sé alveg sér á báti. „Þetta safn er
auðvitað alveg einstakt, það er ekk-
ert annað safn þar sem áherslan er
á ilm íslenskrar náttúru.“
Blaðamaður spyr Elínu þá hvort
Það er kjörið að heimsækja Ilmbankann um helgina. MYND/JONNY DEVANEY
íslenskar jurtir hafi einhverja sér-
stöðu. „Við höfum verið að senda
okkar ilmkjarnaolíur út til Kanada
í efnagreiningu, þar er fyrirtæki
sem sérhæfir sig í að efnagreina
ilmkjarnaolíur alls staðar að úr
heiminum. Við höfum fengið mjög
skemmtileg viðbrögð þaðan og
þeim finnst þetta líka fróðlegt,
en ilmkjarnaolíurnar frá Íslandi
hafa yfirleitt reynst mjög öflugar.
Þær hafa oft mælst með hærra
hlutfall af efnum sem eru til dæmis
verkjastillandi eða bólguhemjandi
en sams konar tré annars staðar
úr heiminum. Við vitum auð-
vitað ekkert nákvæmlega hvers
vegna það er en það kemur bara
skemmtilega á óvart.“
Tilvalinn helgarrúntur
Viðtökurnar við Ilmbankanum
hafa verið vonum framar. „Við
opnuðum sýninguna um síðustu
helgi og fjöldi manns kom og
heimsótti okkur. Við höfum fengið
gríðarlega jákvæð og góð viðbrögð
sem er mjög skemmtilegt, því fólk
á öllum aldri virðist hafa gaman af
að skoða þetta og velta þessu fyrir
sér. Svo erum við staðsettar í Ála-
fosskvosinni sem er einstaklega
fallegt svæði og nálægt náttúrunni
svo við erum alveg á réttum stað.“
Elín hvetur áhugasama til að
leggja leið sína í Mosfellsbæ um
helgina. „Það er náttúrulega mjög
skemmtilegt að fara í bíltúr upp
í Mosó, kaupa grænmeti í Mos-
skógum og kíkja á Ilmbankann.
Svo eru líka tónleikar á Gljúfra-
steini á sunnudögum svo það er
nóg um að vera.“
Ilmbankinn er staðsettur á
Álafossvegi 27, í bakhúsinu.
Frekari upplýsingar má nálgast á
nordicangan.com
Sýningin er ekki síður falleg en
ilmandi. MYND/JONNY DEVANEY
LÍKA Á
SUMRIN!
júní júlí ágúst
88% af lesendum dagblaða* á
höfuðborgarsvæðinu á aldurs-
bilinu 18-49 ára lesa
Fréttablaðið daglega allan
ársins hring
*meðallestur þeirra sem lesa bara Fréttablaðið og þeirra sem lesa Fréttablaðið og
Morgunblaðið. Heimild: Prentmælingar Gallup apr. - júní og júlí - sept. 2019.
– mest lesna dagblað landsins, líka á sumrin
Það borgar sig ávallt að auglýsa
í Fréttablaðinu
88%
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R