Fréttablaðið - 04.07.2020, Side 64
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
410
„Jæja þá, tvær nýjar sudoku
gátur,“ sagði Kata glottandi.
„Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku gátur að við
skulum koma í kapp um hver
verður fyrstur til að leysa
þær,“ bætti hún við. „Allt í
lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að
leysa sudoku gátur svo hún
var alveg til í keppni. „Við
glímum öll við þær báðar
og þá kemur í ljós hversu
klár þú ert orðin,“ sagði hún.
„En ég vara ykkur við, ég er
orðin mjög klár,“ sagði Kata
montin. „Við getum byrjað
á þessari léttari,“ sagði
Lísaloppa. „Þeirri léttari
fyrst,“ sagði Kata hneyksluð.
„Ekki ég, ég byrja á þeirri
erðari fyrst,“ sagði hún og
glotti. „Ég yrði jótari en þið
bæði til samans þótt þær
væru báðar þungar.“ Kata var
orðin ansi klár. En skyldi hún
vera svona klár?
Heldur
þú
að þú g
etir ley
st
þessar
sudoku
gátur h
raðar e
n
Kata?
?
?
?
Lestrarhestur vikunnar Kjartan Pétur
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bókabeitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í
bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að
gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Galdra-
bækur, vísindabækur og geim-
vísindabækur.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Ég er oft að lesa
nokkrar bækur í einu. Til dæmis
er ég að lesa Harry Potter og
eldbikarinn, sem er um galdra
og strák sem heitir Harry Potter.
Svo er ég líka að lesa Ofurhetju-
víddina, sem er um strák sem
heitir Ævar og hann flutti í nýtt
hverfi og fór í nýjan skóla og þar
voru krakkar sem voru alltaf að
stríða honum. Einu sinni hrinti
einn honum og hann var að fara
að detta, en þá gufaði hann upp
og fór í aðra vídd, ofurhetju-
vídd. Svo er ég alltaf að lesa
Andrésblöð.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Galdra, vísindi
og geimvísindi. Það eru tvær
manneskjur, ein var að gera
vísindi og hin var að gera galdra.
Svo voru þau búin að gera þetta
í mánuð og leiddist það, þá fóru
þau út í geim og reyndu að finna
vísindi þar, eins og geimverur
og svarthol. Ég myndi samt ekki
vilja finna svarthol því það myndi
soga mann inn og ég kæmist
aldrei út úr því aftur.
Ef þú mættir velja þér persónu
úr bók til að ferðast um Ísland
með, hver væri hún? Harry
Potter!
Hvernig mynduð þið ferðast?
Á þrumufleygnum, galdrakúst-
inum hans.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér? Í
búðinni hans Mústafa, það
er ljóðabók sem pabbi las
oft þegar við vorum að fara
að sofa. Líka Börnin hans
Loka eftir Ævar Þór Bene-
diktsson.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
bæði í skólanum og líka í
Kringlunni.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Galdrar, geimurinn og vísindi.
Körfubolti, badminton og lesa
bækur. Mér finnst líka gaman
að horfa á fótbolta, en ekki æfa
fótbolta.
Fullt nafn: Viktor Vífill Helgason
Aldur: 5 ára
Systkini: Ég á eina systur, hún heitir
Áslaug Marta og verður tveggja ára
í október.
Gæludýr? Ég á ekkert gæludýr en
mig langar í lítinn, sætan páfagauk
og lítinn, sætan fisk í fiskabúri. Mig
langar líka í eina sæta mörgæs í búri.
Hvernig er lífið hjá þér þessa dag-
ana, Viktor? Ég fer í leikskólann og
á fótboltaæfingar. Ég er mjög góður
í marki. En mig langar líka að fara í
körfubolta.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Álfar og huldufólk. Út af því að ég
er að læra um þau á leikskólanum.
Við á leikskólanum héldum sýningu
á steinatröllum í Safnahúsinu. Mitt
tröll heitir Sprengjuelska.
Með hvaða fótboltaliði heldurðu
íslensku og erlendu? Val og Barcel
ona.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Að róla hátt út í geim. Mér
finnst líka gaman að fara í Húsdýra
garðinn með nesti.
En leiðinlegast? Að vera einmana.
Það er líka leiðinlegt þegar fólk er að
ríma nafnið mitt.
Hvað viltu helst gera þegar þú
verður stór? Verða smiður og
ruslamaður. Mig langar líka að
verða alþingismaður sem stjórnar
lögunum í landinu þegar ég verð
stór. Mig langar líka að verða stór,
en samt krakki.
Hvað ætlarðu að gera í sumar? Við
förum ekki til útlanda en förum
í sumarbústaðinn. Mig langar í
rauðan sumarstuttermabol.
Hvað er það skemmtilegasta við
sumarið? Að fara í sólbað og fá mér
ís.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Hafragrautur af því að hann er svo
hollur. Mér finnst líka gott skyr.
Einhver matur sem þér f innst
vondur? Mér finnst appelsínugul
kartöflumús ekki góð.
Hver er uppáhalds tónlistarmað-
urinn þinn og af hverju? Það er
Daði út af því að hann samdi uppá
haldslagið mitt.
Viltu bæta einhverju við í lokin?
Mér finnst gaman að vera fínn.
Mig langar líka að bæta við að mig
langar að fara út í geim. Mig langar
að verða ofurhetjuvélmenni sem er
með skikkju.
Langar að
verða stór, en
samt krakki
MÉR FINNST GAMAN
AÐ VERA FÍNN. MIG
LANGAR LÍKA AÐ BÆTA VIÐ AÐ
MIG LANGAR AÐ FARA ÚT Í
GEIM. MIG LANGAR AÐ VERÐA
OFURHETJUVÉLMENNI SEM ER
MEÐ SKIKKJU.
Viktori Vífli finnst gaman að vera fínn eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR