Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 74

Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 74
ÉG HELD ÞETTA SÉ, EINS OG EINHVER REYNDAR ORÐAÐI ÞAÐ OG ÉG ÆTLA BARA AÐ FÁ AÐ STELA ÞVÍ, „INSTANT KLASSÍK“ SKO. Það eru nánast eiginlega allir að tala um þetta. Bæði erlendis og hérna heima,“ segir Steinunn Björk Bragadóttir um Eurovision Song Con- test: The Story of Fire Saga, umtöl- uðustu kvikmynd síðustu viku á Húsavík og þótt víðar væri leitað. Steinunn Björk er í Félagi áhuga- fólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (FÁSES) og ann- áluð yfirburðaþekking hennar á keppninni er slík að hún titlar sig „Eurovision-sérfræðingur“ á Já.is. Hún er því eðlilega með í það minnsta þrjá putta á hröðum Net- flix-púlsinum í öllum heimsálfum. „Það eru miklar umræður um myndina og maður er líka í svona Facebook-aðdáenda grúppum,“ segir Steinunn og bætir við að vissulega séu skiptar skoðanir á myndinni en ánægjan virðist frekar almenn meðal Íslendinga. „Mér finnst allavegana miðað við það sem ég hef séð að það séu aðallega þeir sem eru ekki frá Íslandi sem eru eitthvað að gagn- rýna hvernig Íslendingar koma út í þessari mynd. Sem mér finnst mjög fyndið,“ segir Steinunn um þá sem finna sig knúna til að móðgast fyrir hönd þjóðarinnar á meðan Íslend- ingum finnist þetta bara fyndið. Ferrell með allt á hreinu „Ég var bara mjög ánægð með þetta í heildina séð. Þetta er náttúrlega engin Óskarsverðlaunamynd en hún er skemmtileg og fyndin og allavegana fyrir mig, sem Eurovisi- on-aðdáanda, var hún bara það sem ég bjóst við,“ segir Steinunn og gefur handritshöfundinum og aðalleikar- anum Will Ferrell plús í kladdann fyrir viðleitni og innsæi. „Hann Will Ferrell er náttúrlega sjálfur búinn að vera aðdáandi keppninnar í svolítinn tíma og maður sá það alveg að þetta var ekki bara einhver Bandríkjamaður að gera mynd um eitthvað sem hann veit ekkert um. Hann er sjálfur giftur sænskri konu og sá Eurovision fyrst 1999 og fór fyrst á keppnina 2014. Held ég,“ segir Steinunn og rekur þann- ig Eurovision-áhrifin á Ferrell til sænsku leikkonunnar Viveca Paulin sem hann kvæntist 2000. Ári eftir að hann sá Eurovision í fyrsta sinn. „Og hefur alveg verið á tveimur síðustu keppnum í rannsóknar- vinnu fyrir myndina þannig að maður sá það alveg að hann hefur alveg unnið heimavinnuna sína þegar að þessu kom.“ Enginn Borat-bömmer Hvað sem segja má um The Story of Fire Saga verður ekki af myndinni tekið að hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu frá því að Ferrell fór að sniglast um söngvakeppnina. Í ákveðnum hópi í það minnsta. „Já, maður verður nú að viður- kenna að það var smá eftirvænting en fyrst þegar það var tilkynnt að það væri verið að fara að gera Euro- vision-bíómynd kom upp svona smá hræðsla hjá manni,“ segir Steinunn. „Að þetta yrði illkvittið grín og það voru margir, sérstaklega í aðdáendaheiminum, sem voru hræddir um að við kæmum út eins og Kasakstan kemur út í Borat. En ég allavegana persónulega Will Ferrell gerði heimavinnuna sína Eurovision-sérfræðingurinn Steinunn Björk Bragadóttir segir ljóst á hinni umdeildu The Story of Fire Saga að Will Ferrell hafi unnið heimavinnuna sína og að lögin í myndinni gætu jafnvel verið gjaldgeng í keppninni sjálfri. Eurovision-sérfræðingurinn Steinunn Björk Bragadóttir segist ekki fá betur séð en að umdeilda Netflix-myndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga sé nú þegar orðin sígild og muni njóta langvarandi vinsælda. Í það minnsta á Íslandi og í gervöllum Eurovision-heiminum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI The Story of Fire Saga er enginn Borat-bömmer fyrir Íslendinga þannig að Stein- unn Björk telur ástæðulaust að móðgast fyrir hönd þjóðar- innar. sé ekkert svoleiðis í þessu og vinir mínir í Eurovision-kreðsunni eru bara f lestir ánægðir með þetta þannig að ég tel enga ástæðu til þess að móðgast eða fara í fýlu.“ Steinunn segir að vissulega megi finna einhverja punkta og örugg- lega sé hægt að fetta fingur út í að hitt og þetta sé ekki nákvæmlega svona eða hinsegin. „En ég sé ekk- ert móðgandi við þetta. Mér finnst þetta bara krúttlegt og fyndið.“ Það er engin spurning … Hvað uppdiktuð Eurovision-lögin í myndinni varðar segir Stein- unn það síður en svo úr lausu lofti gripið að þau hljómi eins og þvott- ekta keppnislög. „Það er nefnilega ekkert rugl. Við erum búin að vera að ræða þetta, ég og mínir vinir, og f lest lögin gætu alveg verið í ein- hverjum af þessum undankeppn- um og þess vegna í Eurovision. Mörg þeirra eru nú svolítið sænskuskotin enda eru þau held ég öll samin af Svíum. Það er reyndar eitt lag sem er samið af Íslendingi,“ segir Steinunn og bendir á þátt Arn- þórs Birgissonar í einu laganna. … þett’er Júróvisjónlag „Það er þarna Double Trouble, lagið sem á að vera framlag Íslands í Eurovision í myndinni, en hann er búinn að búa í Svíþjóð alla sína ævi eiginlega þannig að hann er nú örugglega meiri Svíi en Íslendingur. Eða svona þannig,“ segir Steinunn um Arnþór sem fluttist til Svíþjóð- ar tveggja ára gamall 1978 og býr í Stokkhólmi. „En maður fékk það alveg á til- finninguna, eða ég fékk það alla- vegana á tilfinninguna, að þau sem voru að semja þessi lög hafi alveg verið fólk sem hefur heyrt Euro- vision-lög áður.“ Strax sígild Steinunn spáir The Story of Fire Saga lang varandi v insældum sem líklega muni þó vara lengst á Íslandi. „Ég held þetta sé, eins og einhver reyndar orðaði það og ég ætla bara að fá að stela því, „instant klassík“ sko. Eða svona „költ“ klass- ík. Þetta er náttúrlega mynd um ákveðið „költ“ fyrirbæri þannig að hún er „költ“. Myndin. Kannski ekkert sérstaklega utan Eurovision- aðdáendaheimsins en virkar vel þar og meðal Íslendinga sem verða kannski mest í því í framtíðinni að vitna í hana og tala um hana. En ég held samt að hún eigi alveg eftir að vekja áhuga áfram og hafa smá svona „költ status“ innan alls Euro- vision-aðdáendaheimsins.“ Og hann er stór og teygir sig í það minnsta alveg til Ástralíu, eða hvað? „Já, hann nær út um allan heim, sko. Bara eiginlega. Ég hef kynnst fólki frá Suður-Ameríku, Norður- Ameríku og Afríku meira að segja, Suður-Afríku aðallega, Ástralíu og Nýja-Sjálandi og svo náttúrlega Evrópu í gegnum Eurovision.“ Það er náttúrlega fegurðin í þessu. Þetta sameinar. „Já,“ svarar Steinunn afdráttar- laust og slær síðan eðlilegan var- nagla. „En þú veist, kannski fyrir fólk sem hefur aldrei horft á Euro- vision og veit ekkert um Euro- vision, þá er þetta kannski ekkert áhugaverð kvikmynd.“ toti@frettabladid.is 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.