Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR 26. JÚNÍ 2020 DV son sem formann SÁÁ. Okkur þarf ekki að bjarga, starfsand- inn er almennt góður og það eitt að fyrrverandi formaður haldi öðru fram er dæmi- gert fyrir hans stjórnunar- stíl, viðhorf og sjónarmið,“ sagði í yfirlýsingunni. Undir hana rituðu 57 starfsmenn en vegna „ótta við viðbrögð Þórarins Tyrfingssonar, sem sýnir kannski í einföldustu myndinni þá ógnarstjórn sem var við lýði þegar hann var við stjórn“, komu einhverjir starfsmenn fram undir nafn- leynd. Spurður út í yfirlýsinguna segir Einar hana ríma vel við það sem hann hafi heyrt frá starfsmönnum, að þeir séu einfaldlega hræddir. En hræddir við hvað? „Ég þori ekki að fara nákvæmlega með það en þeir eru hræddir við afleiðingar þess að koma fram undir nafni ef hann kemst síðan til valda.“ Einar viðurkennir að hann átti sig ekki alveg á fram- boði Þórarins þegar þessi mikla andstaða er við hann hjá starfsfólkinu. „Ef ég vissi af partíi en heyrði að enginn þar vildi fá mig þá myndi ég ekkert mæta. Ég nota líka oft líkingar úr knattspyrnunni. Í klefanum fyrir leikinn verða allir að vera sammála um hvernig eigi að sækja fram, og allir þurfa að vera á sömu línu um hvernig á að verjast. Þannig vinna liðsheildir. Ef þjálfarinn er hins vegar búinn að missa klefann getur hann ekkert gert. Mér finnst eins og Þórarinn sé að koma inn eins og þjálfari sem er búinn að missa klefann.“ Stutt í léttleikann Aðspurður hvaða kostum hann hafi yfir að búa sem nýtist í starfi formanns SÁÁ segir hann: „Ég er fylgjandi vald- dreifingu, teymisvinnu og ég tel mig geta tekið gagnrýni. Fólk segir oft við mig að það sé stutt í léttleikann hjá mér, sem ég tel að skipti líka máli þegar maður er að eiga við svona alvarlega hluti.“ Hann grípur aftur til lík- ingamáls. „Þegar þú ferð í hjartaaðgerð þá viltu fá hjartalækni sem er með góða menntun, nýtir sér nýjustu tækni og vinnur með teyminu sem kemur að aðgerðinni. Það er aldrei bara einhver einn hjartalæknir sem kemur og sker þig upp. Þetta er teymis- vinna. Þannig er það líka með SÁÁ.“ Einar ítrekar mikilvægi þess að hæft fagfólk sinni því veika fólki sem leitar á Vog. „Sjúkrahúsið Vogur er í samskiptum við bráðadeildir, heilsugæsluna, fangelsismála- yfirvöld, félagsmálaráðuneyt- ið, heilbrigðismálaráðuneytið, landlækni og fleiri aðila. Það þarf að viðhafa vönduð vinnu- brögð til að geta á árangurs- ríkan hátt unnið með öllum þessum aðilum, svo við tölum nú ekki um til að afeitra veika alkóhólista.“ Hann segir að eitt af því sem hingað til hafi ekki mátt ræða innan samtakanna sé nauðsyn félagslegra úrræða, heilbrigð- isþjónusta sé ekki nóg ein og sér. „Ef við tökum dæmi af einstæðri ungri konu með lítið barn og á erfitt með að sækja fundi þegar hún kemur úr meðferð er aukin hætta á að hún falli aftur í sama farið. Eins líka með unga krakka sem hafa ánetj ast hassneyslu og eru eftir á í þroska og fé- lagsfærni. Þeim þarf að sinna félagslega eftir meðferðina. Mér finnst mikilvægt að auka þessa hlið og vera ófeiminn við að starfa með fagfólki utan samtakanna. Samvinna er af hinu góða og mun meira af fólki með menntun í fíkni- fræðum en áður sem hægt er að leita til.“ Einar bendir á að þegar hann kom inn í félagsstarfið, í tíð Gunnars Smára Egilssonar sem formanns, var öflugt fé- lagsstarf í grasrótinni. „Það voru tónleikar, bíósýningar og alls konar klúbbar starfræktir. Ungt fólk í SÁÁ hafði vettvang til að hittast og gera eitthvað skemmtilegt með edrú jafn- öldrum. Allt þetta er farið og verður að endurvekja.“ Vill hætta rekstri spilakassa Spilafíkn hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikur en tveir aðilar hafa leyfi til að reka spilakassa, Happdrætti Háskóla Íslands og Íslands- spil. Íslandsspil er í eigu Rauða krossins, Slysavarna- félagsins Landsbjargar og SÁÁ, sem á minnsta hlutinn, eða 9,5%. Einar hefur verið varamaður í stjórn Íslands- spila fyrir hönd SÁÁ, aldr- ei setið stjórnarfund en þó sótt tvo aðalfundi. „Frá því ég tók sæti í framkvæmda- stjórn SÁÁ hef ég alltaf verið á móti því að samtökin taki þátt í rekstri spilakassa en hef kannski ekki verið nógu harður í því að við ættum að ganga út. Í seinni tíð hef ég kynnt mér þetta betur, rætt við spilafíkla og fólk í bata. Þetta er grimmur sjúkdómur sem, eins og alkóhólisminn, fer ekki í manngreinarálit. Það kom að þeim tímapunkti sem mér fannst nóg komið og nái ég kjöri sem formaður mun ég beita mér í þá veru að við drögum okkur út. Ég geri það þó ekki einn heldur þarf 48 manna aðalstjórn samtakanna að samþykkja það. Ég vil byrja þá vegferð að við gefum þennan hlut frá okkur og séum ekki að stuðla að því að búa til spilafíkla. Ég legg þetta að jöfnu við ef við myndum fá hluta af hagnaði áfengissölu. Mín afstaða er að við eigum ekki að taka þátt í rekstri spilakassa.“ Ein af þeim rangfærslum sem upp hafa komið að undanförnu er að Valgerður yfirlæknir vilji láta loka legu- deild á Vogi í sumar en ekkert er til í því, og raunar sendu Sjúkratryggingar Íslands frá sér yfirlýsingu í vikunni til að árétta þetta. Þá hefur því verið haldið fram að Einar og hans fólk vilji færa SÁÁ til ríkisins. „Það er algjörlega út í hött. Við viljum faglega stjórn og að sjálfsögðu þykir okkur eðlilegt að vera í sam- starfi við annað fagfólk.“ Einar telur að sú neikvæðni og það niðurrif sem hefur ein- kennt umræðuna um SÁÁ að undanförnu muni sannarlega hafa skaðleg áhrif til skamms tíma. „Um leið og ró kemst á og hægt verður að vinna að uppbyggingu tel ég að til lengri tíma hafi þetta ekki skaðleg áhrif. En ef átökin halda áfram verður þetta önnur saga. Ef við gefum okkur að Þórarinn komist til valda má reikna með miklum árekstrum á milli meðferðar- sviðs og formanns, sem síðan hefði gríðarleg áhrif á þetta mikilvæga meðferðarúrræði fyrir alkóhólista á Íslandi.“ Hann bendir á að SÁÁ séu ekki bara mikilvæg samtök fyrir fíkla heldur líka aðstand- endur. „Það er enginn fegnari en aðstandandi þegar alkóhól- isti fer í meðferð. Mæður sofa betur á nóttunni og fá hugarró yfir því að sonur þeirra eða dóttir sé á spítala þar sem er vel hugsað um þau í staðinn fyrir að þau séu á götunni. Samfélagið allt vill vegferð SÁÁ sem mesta enda skipta samtökin allar fjölskyldur máli. Það er oft talað um að þeir sem leggi okkur mest lið séu ömmurnar. Hversu fallegt er það? Þær eru ekki að leggja inn milljónir en hver fimm- hundruðkall skiptir máli. Það eru ömmurnar sem þykir vænt um SÁÁ því þær vita hvernig við getum hjálpað.“ Spurður hvort hann sé von- góður um sigur í formanns- kjörinu segir Einar: „Já, ég er vongóður. Ég tel mig hafa raunhæfan möguleika. Ég held að ég sé hluti af breiðfylkingu sem er fær um að taka SÁÁ áfram sem bæði öflugt gras- rótarfélag og öfluga heilbrigð- isstofnun.“ n Einar vill að SÁÁ hætti rekstri spilakassa og leggur það að jöfnu við ef samtökin myndu fá hluta af hagnaði áfengissölu. MYND/ERNIR Þá tók ég oft með mér eina flösku af Tindavodka og drakk þar til ég sofnaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.