Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Blaðsíða 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 26. JÚNÍ 2020 DV
N ú geta allir Íslendingar með Netflix-aðgang horft á fyrstu tvær
þáttaraðir af The Real House-
wives of Beverly Hills, The
Real Housewives of Atlanta og
The Real Housewives of New
York City.
Sjónvarpsstöðin Bravo fram-
leiðir þættina og hefur komið
samtals 71 þáttaröð frá tíu
mismunandi borgum.
Þættirnir eru ákaflega vin-
sælir og er vinsælt að spegla
sig í persónum þáttanna, líkt
og tíðkaðist með Desperate
Housewives. Hver kannast
ekki við að hafa tekið persónu-
leikapróf og endað sem Bree
eða Gabriella?
Hvaða íslensku konur
fengju hlutverk?
Hvernig skyldu þekktar ís-
lenskar konur takast á við
hlutverkin ef þættirnir væru
framleiddir á Íslandi? Hvaða
þekktu konur myndu hreppa
hlutverk og hvaða drama-
bolti myndi rúlla af stað? Við
setjum okkur í stellingar og
ráðum landslið áhrifakvenna
í þáttinn. Stjörnurnar eru
systurnar Hanna Rún Bazev
Óladóttir og Unnur Óladóttir,
Gerður í Blush, Manuela Ósk
Harðardóttir, Arna Ýr Jóns-
dóttir og Ástrós Trausta-
dóttir.
Söguþráðurinn sem hér
er spunninn er ekkert nema
hugarsmíði blaðamanns. Þetta
er gert í góðlátlegu gríni sem
er innblásið af raunveruleika-
þáttunum, sem eiga það til að
vera ákaflega dramatískir
á köflum, enda þess vegna
svona gífurlega vinsælir.
Þessi kvennahópur var valinn
því þær eru allar frábærar,
metnaðarfullar og skara fram
úr á sínu sviði. n
TENGSLANET HÚSFREYJANNA
SYSTURNAR UNNUR OG
HANNA RÚN BAZEV ÓLADÆTUR
Fjölskyldutengsl geta oft gert þætt-
ina skemmtilegri, en dramatískari
á sama tíma. Í RHOBH fáum við
að fylgjast með systrunum Kyle
Richards og Kim Richards og er
systrasamband þeirra stormasamt
á köflum. Hanna Rún er einn sigur-
sælasti dansari Íslands og tveggja
barna móðir. Unnur Óla hefur unnið
fjölda titla í fitness-keppnum og er
einnig einkaþjálfari. Hanna Rún og
Unnur eru dætur Óla Jóhanns Daní-
elssonar, eiganda Gullsmiðju Óla.
VINKONUTENGSL
Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi
kynlífstækjaverslunarinnar Blush. is,
er vinkona Unnar. Þær eiga báðar
syni á svipuðum aldri.
Ástrós Traustadóttir er ekki í innsta
hring hópsins, en þekkir Hönnu Rún
úr dansinum. Báðar hafa komið fram
í dansþáttunum Dans, dans, dans og
Allir geta dansað. Þær hafa einnig
keppt ótal mörgum sinnum hvor á
móti annarri á dansmótum.
FYRRVERANDI
FEGURÐARDROTTNINGAR
Fyrrverandi fegurðardrottningar
hafa einnig verið mjög sterkir
karakterar í þáttunum. Candiace
Dillard var Miss United States
árið 2013 og er ein húsfreyjanna í
The Real Housewives of Potomac.
Lizzie Rovsek kom fram í níundu
þáttaröð af The Real Housewives
of Orange County og var krýnd
sem Miss Kentucky á sínum tíma.
Kenya Moore í RHOA keppti fyrir
hönd Bandaríkjanna í Miss Uni-
verse árið 1992. Eins og Arna Ýr
gerði fyrir hönd Íslands árið 2017.
Manuela Ósk var valin Ungfrú Ís-
land árið 2002. Manuela er einnig
framkvæmdastjóri Miss Universe
á Íslandi og góðvinkona Örnu Ýrar.
FYRIRTÆKJAREKSTUR
Margar þeirra húsfreyja sem koma
fram í þáttunum eru konur sem hafa
stofnað eigin fyrirtæki og er oft sýnt
frá rekstrinum í þáttunum.
Arna Ýr stofnaði nýlega vefverslun
sem selur taubleyjur. Gerður á
og rekur kynlífstækjaverslunina
Blush. is og Manuela er einn eigandi
Even Labs, sem býður upp á nýstár-
legar líkamsmeðferðir.
Nýlega komu nokkrar þáttaraðir
af vinsælu raunveruleikaþátt-
unum The Real Housewives á
streymisveituna Netflix. Það er
því vert að spyrja: Ef þættirnir
kæmu til Íslands, hverjar yrðu
stjörnurnar?
SÖGUÞRÁÐURINN
HVÍTVÍN OG TAUBLEYJUR
Húsfreyjurnar hittast heima hjá
Örnu Ýr, sem heldur kynningu um
taubleyjur og býður upp á hvítvín.
Þær fá sér aðeins of mikið í tána
og byrja að rífast um taubleyjur og
einnota bleyjur. Það endar með að
Manuela þarf að grípa inn í, enda
eina sem er edrú á svæðinu.
KAMPAVÍN OG SPA
Eftir allt þetta drama ákveður
Manuela að bjóða húsfreyjunum í
líkamsmeðferðir í Even Labs. Þær
ræða málin, drekka kampavín og
sættast.
BLUSH OG ERÓTÍSK TRIKK
Í annarri þáttaröð af RHOBH vildi
Brandi Glanville bjóða húsfreyj-
unum í vínsmökkun og tott-
kennslu. Hún ætlaði að fá fyrr-
verandi klámstjörnu til að halda
sýnikennslu og kenna húsfreyj-
unum nokkur góð ráð þegar kæmi
að munnmökum. Hins vegar varð
ekkert úr því, þar sem sumum
þótti það óviðeigandi. En íslenski
húsfreyjuhópurinn er öðruvísi
og býður Gerður húsfreyjunum í
kynlífstækjaverslun sína, Blush,
og fær íslenska erótíska leikarann
Stefan Octavian til að kenna
dömunum nokkur trikk.
HRYLLILEGT MATARBOÐ
Frábært matarboð verður að
innihalda smá drama. Það hafa
verið ófá matarboð í The Real
Housewives þáttunum sem hafa
allra helst minnt á martraðir. Eins
og í lokaþætti The Real House-
wives of New Jersey þegar Ter-
esa veltir borðinu í átt að Danielle
og kallar hana hóru. Dramað í
þáttaröð íslensku húsfreyjanna
nær hámarki þegar Hanna Rún
ákveður að halda matarboð og
býður upp á kokteila. Ástrós og
Hanna Rún byrja að rökræða um
atvik sem átti sér stað í dans-
inum fyrir nokkrum árum. Ástrós
telur Hönnu Rún hafa stolið af
sér sigrinum. Unnur Óla er með
systur sinni í liði og hraunar yfir
Ástrós. Rifrildið um taubleyjurnar
byrjar aftur og allt fer í háaloft.
Eftir kvöldið lofar Hanna Rún
eiginmanni sínum að halda aldrei
matarboð framar.
FERÐALAG
Í hverri þáttaröð er venjan að allar
húsfreyjurnar fari saman í ferða-
lag, eins og til Amsterdam, Tyrk-
lands, Marokkó og meira að segja
Íslands. Húsfreyjur Orange Coun-
ty komu til Íslands árið 2017 og
endaði ein stórstjarna þáttarins,
Vicki Gunvalson, á bráðamóttöku.
Hún hélt hún væri að fá hjartaáfall
og sóttu bráðaliðar hana á Hótel
Rangá. Lydia McLaughlin, önnur
stjarna þáttanna, sagði í samtali
við RadarOnline á sínum tíma:
„Ég veit ekki hvort þú hefur farið
á neyðarmóttökuna á Íslandi, en
það var ekki ein af ánægjulegustu
stundum lífs míns.“
Íslensku húsfreyjurnar myndu
hlýða Víði og ferðast innanlands.
Systurnar Unnur Óla og Hanna
Rún myndu sjá um að skipu-
leggja hringinn í kringum landið
með hjálp Manuelu, sem hefur
farið með fjölda vina sinna utan
frá að skoða Ísland. Þegar allur
hópurinn ferðast saman er drama
nánast óhjákvæmilegt og það
sama á við um íslenska húsfreyju-
hópinn. Gerður hvetur Örnu Ýri
til að leggja öll spilin á borðið og
ræða við þær sem særðu hana.
Hanna Rún og Ástrós sættast
og stíga léttan dans saman eftir
nokkur rauðvínsglös. Unnur Óla
verður fúl út í systur sína, fyrir
að skilja sig eftir á Hótel Geysi
meðan hópurinn fór að skoða
Geysi. En ferðin endaði með að
vera nokkuð vel heppnuð.
RAUNVERULEGU HINAR
HÚSFREYJUR ÍSLANDS
Hanna Rún
Óladóttir
MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND MYND/STEFÁN MYND/FACEBOOK MYND/ANTON BRINK MYND/HANNA
Unnur
Óladóttir
Gerður
Arinbjarnardóttir
Ástrós
Traustadóttir
Manuela Ósk
Harðardóttir
Arna Ýr
Jónsdóttir