Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2020, Blaðsíða 32
32 FÓKUS 26. JÚNÍ 2020 DV Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu sem margir kannast við. Hvað ef maki minn er of kassalagaður og lífið er dálítið leiðinlegt? KONAN MÍN ER OF KASSALÖGUÐ K æra Kristín. Ég er rúmlega fertugur maður. Ég elska kon- una mína og börnin, en þoli ekki þessa grjóthörðu og af- sakaðu, hundleiðilegu, rút- ínu. Ég vil ekki ala börnin mín upp sem vélmenni án allrar sköpunargáfu. Konan mín er mjög kassalöguð og yfirleitt virkar það vel að við blöndum saman hugmyndum okkar um lífið, en hún er oft of kassalöguð að mínu mati. Börnin eiga að fara að sofa kl. 8, þrátt fyrir glampandi sól. Hvernig segi ég henni að hún verði að velja sér baráttur og leyfa sér að lifa aðeins meira? Ekki tuða yfir skótauinu alla daga. Opna kannski bara freyðivín á mánudegi og leyfa börnunum að vaka aðeins lengur. Það er sumar! Blessaður Gaman að fá spurningu frá karlmanni. Það verður að segjast að oftar koma þær frá konum. Mér leikur að sjálfsögðu forvitni á að vita hvað þið hafið reynt varðandi þetta. Þó svo að konan þín sé kassa­ löguð, eins og þú orðar það, þá gæti það einmitt hentað henni vel að kíkja aðeins út fyrir kassann sinn og þar gætir þú komið sterkur inn. Sömuleiðis hljómar það vel að maður, sem vill gjarnan opna freyðivín á mánudegi, fái stundum skýran ramma. Hvernig var lífið ykkar í Covid? Þá fór einmitt rútína flestra í vaskinn og margir þurftu að finna nýjar leiðir til þess að halda fjölskyldu og vinnu gangandi. Getur verið að það hafi hentað þér vel og núna þegar allt er komið aftur í fastar skorður þá þrengi að þér og þú sjáir að svona þarf þetta ekki að vera? Í staðinn fyrir að bölva rútínunni er tækifæri til þess að skoða hvað er gott utan þessa stífa ramma, sem get­ ur kryddað hið hefðbundna hversdagslíf. Þið eruð samspil Þegar hópur fólks býr saman þarf að vera eitthvað skipu­ lag svo allir fái að njóta sín. Þó svo að það myndi henta þér vel að hafa enga rútínu, þá leyfi ég mér að fullyrða að slíkt gæti valdið öðrum fjölskyldmeðlimum kvíða. Eiga þau þá að haga lífi sínu eftir því í hvernig stuði þú ert hverju sinni? Nei, ég segi svona, rútínan þarf að vera, en það breytir því ekki að það sé hægt að gera undan­ tekningar á henni, eða breyta henni þannig að hún verði ögn skemmtilegri. Þú spyrð hvernig þú eigir að segja konunni þinni að hún sé of kassalöguð. Þarna þarf ég að minna þig á að þið eruð samspil og fjölskyldan þín er kerfi, þar sem hver og einn liður getur haft gríðarlega mikil áhrif. Í stað þess að segja konunni þinni hvernig hún á að vera, gætir þú gert tilraunir með því að gera eitt­ hvað nýtt sjálfur. Samkvæmt fræðunum gæti það haft þau áhrif á konuna þína að hún myndi þá skyndilega gera eitt­ hvað öðruvísi en hún er vön. Dass af einlægni Ef ég tek dæmi af fjölskyldu þar sem aldrei er beðist af­ sökunar. Allt í einu einn daginn tekur einn fjölskyldu­ meðlimur upp á því að segja fyrirgefðu, þá hefur það áhrif á þann sem fær afsökunar­ beiðnina og mögulega hefur það aftur áhrif á viðkomandi, sem biður einhvern annan í fjölskyldunni fyrirgefningar síðar meir. Hvað myndi gerast ef þú myndir til dæmis taka upp á því að opna freyðivín einn mánudaginn, segja konunni að þér þætti vænt um að eiga afslappaða stund og að þú þurfir á því að halda að leggja hefðbundna rútínu til hliðar? Gæti það verið áhrifaríkara en að segja konunni þinni að hún sé ferköntuð? Án þess að ég vilji fullyrða það, þá finnst mér það líklegt. Þegar pör byrja saman gera þau oft með sér samkomulag um hvernig þau vilja hafa hlutina. En það gleymist að undirrita samkomulagið og bera það undir alla hlutað­ eigandi. Mér finnst ykkar vandi hljóma sem tilefni til að taka upp þessa gömlu samn­ inga. Hvernig vill konan þín hafa hversdagslífið, hvernig líður henni í því og hvað þarf hún til þess að það geti orðið afslappaðra og skemmtilegra? Sömuleiðis getur þú sagt henni frá líðan þinni og þörf­ um. Ekkert flókið, eða nokkuð sem þarf að móðga eða særa. Þetta er bara verkefni for­ eldra, það er að halda öllum boltum á lofti, grípa þá og sjá til þess að þeir haldi áfram að snúast. Ég er viss um að með góðu samtali, smá freyðivíni og dassi af einlægni, verður það leikur einn hjá ykkur. Gangi ykkur vel. n Ég vil ekki ala börnin mín upp sem vélmenni án allrar sköpunargáfu. MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.