Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 7. ÁGÚST 2020 DV EKKI VERSLA Á NETINU ÁN ÞESS AÐ GÆTA AÐ ÞESSUM ATRIÐUM Með aukinni netsölu á tímum samkomutakmarkana og tveggja metra reglunnar góðu er mikilvægt að vera með netöryggi á hreinu. Auglýsingar á Facebook eru oft og tíðum lokkandi og virðist verðið á köflum vera ævintýralega lágt fyrir veglegar vörur. SÍMINN HLUSTAR Jú, snjallsímarnir dásamlegu eru nefnilega búnir upptökutækni. Þegar þú samþykkir notenda- skilmála forrita ertu oftar en ekki að gefa leyfi fyrir upptöku á hljóði, þó að síminn sé ekki í beinni notkun. Hljómar ótrúlega, en það er auðvelt að gera próf á einfaldan hátt með því að segja til dæmis „Tenerife“ eða „cat“ nokkrum sinnum á dag í kringum símann þinn þó að skjárinn sé læstur. Innan fárra daga ættu auglýsingar tengdar þessum orðum að byrja að birtast þér. SCAMADVISOR Vefsíðan scamadvisor.com er síða þar sem notendur geta skrifað inn vefslóð heimasíðu og fengið öryggisstuðul gefinn upp í prósentum. Einnig kemur fram sundurliðun á hvers vegna einkunnin er eins há eða lág og raun ber vitni. Tekið er tillit til umsagna notenda, hversu gömul vefsíðan er, hversu langt er síðan veffangið var skráð, til hversu langs tíma það var keypt og hvar fyrirtækið er skráð, auk annarra öryggisatriða. Síðan ber einnig sínar niðurstöður útkomu saman við fleiri öryggissíður á borð við trustpilot.com. GRUNSAMLEGAR MYNDIR Icesome.com er vefsíða sem auglýsir ódýran fatnað, en það þótti grunsam- legt að engin módel eru með andlit og litirnir á myndunum bjagaðir. Trustpi- lot virðist ekki treysta síðunni. Þessi mynd frá Icesome.com kemur upp á annarri vefsíðu, Amysblouse.com, þegar leitað er eftir mynd á Google. ER VEFSÍÐAN ÖRUGG? Þegar gylliboðin gera vart við sig og guðdómlegur varningur á grun- samlegu verði nuddast upp í and- litið á þér trekk í trekk, er ágætt að hugsa sig vel um áður en smellt er á kaupa. GRUNSAMLEGT Samfélagsmiðlar: Ef vefsíðan er ekki tengd við samfélagsmiðla er hún mjög líklega ekki í lagi. Of ódýrt: Ef leitað er að svipaðri vöru og hún er mun dýrari annars staðar, er líklegt að varan sem um ræðir sé af mjög litlum gæðum, eða muni aldrei berast. Um okkur: Það getur verið góð leið að koma upp um svindlara að klippa 1-2 setningar úr um okkur hlutanum á síðunni og sjá hvort sami texti kemur upp hjá öðrum vefsíðum. Ef svo er, er ekki ólík- legt að honum hafi verið hnuplað. Símanúmer: Svindlvefsíður gefa yfirleitt upp tölvupóstfang í stað símanúmers og eru með grun- samlegan skilafrest. Almennar skilareglur í Evrópu kveða á um 14 daga skilafrest. Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Ef kaupin hljóma of góð til þess að vera sönn eru þau það líklega. MYND/GETTY N ú þegar sóttkví er aftur orðin daglegt brauð fara vinsældir vef- verslana aftur að sprengja alla skala og landsmenn, bug- aðir af inniveru og einveru, misþyrma vísakortum sínum í leit að lífsfyllingu. Það er þó óþarfi að láta veiruna ræna sig öllum vitsmunum og kaupa í óðagoti af síðum sem líklega eru aðeins til þess gerðar að svíkja og pretta. Á vefsíðum á borð við Scamadvisor og Trustpilot er að finna góð ráð og jafnvel myndbönd um hvernig fullvissa megi sig um að vefverslanirnar séu örugg- ar. Þær sviksömu spretta upp eins og gorkúlur og lifa aðeins í um 2-3 mánuði áður en þær hverfa með þá peninga sem þær hafa náð að hala inn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.