Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 21
FÓKUS 21DV 7. ÁGÚST 2020
Fleiri Íslendingar
Það er ekki vitað um marga
Íslendinga á miðlinum en það
virðist sem svo að ungar, ís
lenskar konur séu að ryðja
sér til rúms hægt og rólega.
Nítján ára íslensk kona grein
ir frá því á samfélagsmiðlin
um TikTok að hún hafi grætt
rúmlega 720 þúsund krónur
á þremur vikum á OnlyFans.
„Er hægt að græða á Only
Fans án þess að sýna nekt?
„Já!“ segir konan í mynd
bandinu og sýnir tölfræði
yfir tekjur sínar á miðlinum.
Á fyrstu vikunni græddi hún
rúmlega 430 þúsund krónur.
Á OnlyFanssíðu hennar
segist hún ekki selja nektar
myndir af sér, sama hversu
hátt boð hún fær.
„Hér fáið þið að sjá efni
sem ég deili ekki á Insta
gram. Ég deili nærfata/bik
inímyndum, æfingamynd
böndum og hversdagslegum
myndum. Ég sýni enga nekt
þar sem ég hef ekki áhuga á
því og vinsamlegast virðið
það, sama hversu mikið þú
borgar þá mun ég ekki gera
það,“ kemur fram í lýsing
unni á síðu hennar. Hægt er
að kaupa mánaðaráskrift á
tæplega tvö þúsund krónur.
Það er einnig hægt að kaupa
þriggja, sex og tólf mánaða
áskrift.
Önnur ung, íslensk kona
selur efni á OnlyFans og seg
ist deila myndum sem „Insta
gram hatar“. Mánaðaráskrift
hjá henni kostar tæplega
2.500 krónur.
Frægar stjörnur
Íslenskir aðdáendur sjón
varpsþáttanna Desperate
Housewives muna kannski
eftir því þegar ein persóna
þáttanna, Susan Meyers, var
fjárþurfi og fór að vinna hjá
síðunni Va Va Broom við að
þrífa á nærfötunum fyrir
framan vefmyndavél. Only
Fans er þó oft á köflum mun
grófara en svo og virðist vera
allt frá nokkuð saklausu efni
að finna þar upp í klám.
Þegar OnlyFans kom fyrst
fram á sjónarsviðið gaf mið
illinn klámstjörnum tækifæri
til að vera við stjórnvölinn
þegar kemur að því að gefa út
eigið efni. Með tímanum fór
miðillinn að verða vinsælli
meðal erlendra áhrifavalda.
Það er auðvelt að finna frítt
klámefni á netinu en margir
vilja sjá nektarmyndir eða
djarfar myndir af áhrifa
völdunum sem þeir fylgja á
Instagram.
Fjölmargar stjörnur hafa
einnig séð tekjumöguleik
ana í OnlyFans og stokkið á
vagninn. Eins og fyrirsætan
Blac Chyna sem rukkar 6.800
krónur fyrir mánaðaráskrift.
Hjónin Safaree Samuels og
Erica Mena, úr raunveru
leikaþáttunum Love & Hip
Hop, eru hvort með sína On
lyFanssíðuna. Love Island
stjarnan Vanessa Sierra og
kærasti hennar eru með
sameiginlega OnlyFanssíðu.
Nokkrar YouTubestjörnur
eru einnig á OnlyFans, eins
og Trisha Paytas og Tana
Mongeau. n
SHELBY
Love Island-
stjarnan
Shelby Mills
er á Only-
Fans. Mynd:
Instagram
DESTINY
Raunveru-
leikastjarnan
Destiny Skye
er líka á
OnlyFans.
TEAGAN
KAYE
Sagði upp
hjá Subway
og sneri sér
alfarið að
OnlyFans.
BLAC
CHYNA
Blac Chyna
á dóttur með
Rob Kard-
ashian og
rapparanum
Tyga.