Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 9
SÓTTKVÍ /
VARNARSÓTTKVÍ
Stiklað á stóru. Athugið að listinn
er alls ekki tæmandi. Sjá nánar á
covid.is.
1. Takmarka þarf til hins ítrasta
umgengni við annað fólk. Séu
aðrir í heimili sem ekki eru í
sóttkví skal huga vel að sótt-
vörnum, svo sem handþvotti,
þrifum á sameiginlegum snerti-
flötum með spritti, nota sérkló-
sett og -handklæði eða þrífa
eftir notkun, ekki deila rúmi
með öðru heimilisfólki og fram-
fylgja 2 metra reglunni. Æski-
legast er að þeir á heimilinu
sem ekki hafa verið útsettir fyrir
smiti séu ekki á heimilinu með
einstaklingi sem er í sóttkví.
2. Aðeins leita til læknis ef um
nauðsynlega læknisþjónustu er
að ræða og þá hringja á undan
og tilkynna að viðkomandi sé í
sóttkví.
3. Ekki má vera innan um annað
fólk, fara í apótek, verslun,
skóla eða á vinnustað.
4. Einstaklingur í sóttkví má ekki
heimsækja fjölsótta ferða-
mannastaði, s.s. Þingvelli, þótt
þeir séu undir beru lofti.
5. Börn foreldra sem eru í sóttkví
mega fara í skóla og mega fara
út en þau mega ekki fá gesti á
heimilið – að því gefnu að barn-
ið sjálft sé ekki í snertingu við
þá á heimilinu sem eru í sóttkví.
6. Einstaklingur í sóttkví má fara
í gönguferðir en þarf að halda
sig í a.m.k. 2 metra fjarlægð frá
öðrum vegfarendum.
7. Einstaklingur í sóttkví má fara í
bíltúr á einkabíl en má ekki eiga
samskipti við aðra í návígi, s.s.
við bílalúgur veitingastaða.
FRÉTTIR 9DV 7. ÁGÚST 2020
Fullkomið helgarföndur
N ú þegar eldhúsborðið fer aftur að verða ákjósanlegasti áningar-
staðurinn um helgar er mikil-
vægt að reyna að finna sér
eitthvað skemmtilegt til dund-
urs sem öll fjölskyldan getur
gert saman og ekki er verra ef
afraksturinn er dýrindis sápur
sem nýta má í afmælisgjafir
eða næstu baðferð.
Á vefsíðunni Urd.is er að
finna skemmtilegan föndur-
kassa sem inniheldur allt sem
þarf til þess að útbúa ilmsápur.
Sápugrunnurinn er bræddur í
potti. Litarefni hrærð saman
við smá olíu, og ilmi bætt við.
Sápunni hellt í mót sem geta í
raun verið hvað sem er, skyr-
dollur, möffinsform og fleira
sem ykkur dettur í hug. n Litríkar sápur eru æði. MYND/URD.IS
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0