Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 28
EINHLEYPUR MEÐ HANSKA Á SAMKOMUBANNSDJAMMI Undanfarið hafa margir spurt mig: „Hey, Jón Þór! Nú hafa sam- komureglur aftur verið hertar. Þar sem þú ert alltaf að skemmta þér spyr ég: Hvernig er best að skemmta sér í þessum aðstæðum?“ Jón Þór Stefánsson jonthor@dv.is Þ etta er verulega góð spurning, enda hefur íslenskt djammlands- lag breyst til muna síðustu mánuði. Kannski er sniðugt að byrja á því að benda fólki á það sem er ekki sniðugt. Ég mæli til að mynda gegn því að þú bjóðir 90 til 99 manns í partí, til þess að rétt sleppa við hundrað manna takmark- ið. Ég held að Víðir fíli ekki þannig. Betra að vera öruggur og bjóða aðeins minni hóp, eða miklu minni hóp. Þá eru knús og kossar tals- vert hættulegri en áður fyrr. Það segir sig í rauninni sjálft, þar sem það er mjög erfitt að knúsa og kyssa fólk sem er í tveggja metra fjarlægð. Ef þú trúir mér ekki þá hvet ég þig til að prófa. Spilakvöld nýja djammið Ég held að spilakvöld séu einn besti möguleikinn í heimsfar- aldursdjamminu. Spilakvöld innihalda nánast aldrei fleiri en tíu manns (yfirleitt bara fjórir til sjö einstaklingar). Og þá er tveggja metra reglan algjör blessun þegar maður er að spila, því með henni hættir fólk að kíkja á spilin manns. Þá finnst mér gott að benda þeim á að nánast öllum spilum er hægt að breyta í drykkju- leik: Bjór-Lúdó, Kampavíns- Kani og Skot-Catan hljóma eins og geggjaðir leikir. Helsti galli spilakvöldanna eru sameiginlegu snertiflet- irnir sem Alma D. Möller er dugleg að minnast á, þannig vandamál ættu þó að minnka umtalsvert ef maður er dug- legur að spritta. Ef maður vill vera sérstaklega öruggur þá er eflaust best að spila úti. Bara kveikja á kertum í lukt, setja upp seríu og setja góða tónlist á út um gluggann. Geggjuð upplifun á eyðibýli Eflaust lærðu margir af því að skemmta sér um versl- unarmannahelgina. Sjálfur fór ég ásamt nokkrum fé- lögum á eyðibýli úti á landi. Þó að ég geti ekki lofað því að við höfum fylgt tveggja metra reglunni allan tímann, þá held ég að slík ferðalög séu ansi góð smitvörn sé ferðast í litlum hóp (helst smitlausum). Þá eiga borgarbörn eins og ég auðvelt með að gleyma því hvað íslensk náttúra er geggjuð og hvað hún er kjörin fyrir djamm. Ég get til að mynda fullyrt að bjór gerist eiginlega ekki betri en fyrir framan varðeld yfir íslenska sumarnótt. Úti er inn Ég verð reyndar að viður- kenna að ég er ekki bara að þvælast úti á landi. Það hefur nefnilega komið fyrir að ég sæki kaffihús, veitingahús og bari sem eru niðri í bæ. Ætli maður sér að leyfa sér slíkan munað í dag er tveggja metra reglan mjög mikilvæg, auk þess sem maður ætti að reyna að sitja úti. Þá er einnig mjög hentugt að mæta með hanska og jafnvel grímu á kaffihús. Einnota hanskar eru í tísku þessa dagana, sérstaklega á meðan maður snæðir eða fær sér drykk. Snertilaus skemmtun Svo eru það stefnumótin, eða deitin, eins og við unga fólkið köllum þau. Þar er hægt að fara á áðurnefnd kaffihús eða halda fámenn spilakvöld. Svo hef ég heyrt af fólki sem hefur farið á Zoom/Skype/ Face Time-stefnumót, sem eru auðvitað alveg snertilaus, lykillinn að þeim er að vera með gott skipulag. Til dæmis er geggjað að búa til Kahoot (spurningaleikur sem fer fram á netinu). Góð regla er ábyggilega að vera bara sparsamur í skemmtanalífinu. Ég ræð fólki til að mynda frá því að fara í ratleik um fjölförnustu staði borgarinnar, eða þá að djamma þrjá daga í röð með þremur mismunandi hópum. Sjálfum finnst mér til dæmis gott að taka eitt eða tvö kvik- myndakvöld, inn á milli þeirra þegar ég djamma og skemmti mér. Hvort sem Adam Sandler eða Ingmar Bergman verður fyrir valinu, þá er alltaf gott að horfa á góða „ræmu“ hanskalaus. n Bjór-Lúdó, Kampavíns- Kani og Skot- Catan hljóma eins og geggj- aðir leikir. Tveggja metra reglan er mikilvæg. MYND/VALLI Þó að maður sé hræddur við COVID-19 þá er allt í lagi að djamma einn og óhultur. MYND/VALLI 28 FÓKUS 7. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.