Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 26
Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem heldur að konan hans sé byrjuð aftur í neyslu. HELD HÚN SÉ KOMIN Í LÆKNADÓP É g held að konan mín sé að neyta læknadóps og fela það frá mér. Þegar við kynntumst var hún búin að vera edrú í þrjú ár, hún hafði verið í mikilli neyslu en varð síðan alveg edrú eftir að hafa farið tvisv- ar sinnum í meðferð. Sjálfur hef ég aldrei snert annað en áfengi og hef því takmark- aðan skilning á þessum málum og þekki kannski ekki alveg varúðarmerkin. Mér hefur stundum fund- ist hún vera frekar vönkuð, hélt fyrst bara að hún væri illa sofin en þetta fór að ger- ast endurtekið. Síðan í eitt skiptið þegar ég var að setja í þvottavél þá fann ég pillu- spjald í vasanum hennar en hún var búin að segja mér að hún vildi helst ekki taka neinar pillur, ekki einu sinni þó hún væri með hausverk. Mér fannst þetta því skrýtið og fletti upp lyfinu, og þá er þetta róandi lyf sem einn- ig er þríhyrningsmerkt, lyf sem fíkill ætti ekki að vera að taka. Ég spurði hana út í þetta þegar hún kom heim en þá sagðist hún bara hafa ætl- að að henda spjaldinu fyrir vinkonu sína en gleymt því í vasanum. Ég er hins vegar sannfærður um að þetta sé ástæðan fyrir því hvað hún er oft fjarræn og ólík sjálfri sér. Hvernig get ég fengið hana til að segja mér satt? Eða er ég kannski bara ímyndunarveikur? Sanna trúverðugleika sinn Sæll. Ég get ímyndað mér að það sé ekki gott að vera á þessum stað, það er að gruna, efast, hafa áhyggjur af og treysta ekki konunni sinni. Því miður get ég ekki sagt þér hvort konan þín sé að segja þér satt eða ekki. Þaðan af síður get ég látið konuna þína segja þér satt eða stað­ fest fyrir þér hvort tilfinning þín sé rétt eða röng. Aftur á móti þori ég að fullyrða að þú ert ekki ímyndunarveikur, þú hljómar heldur áhyggjufullur. Það er stundum sagt að við getum ekki spáð fyrir um framtíðina nema með for­ tíðinni. Hvað svo sem er til í því, þá á konan þín sögu sem ýtir undir grunsemdir þínar. Nokkuð sem allflestir sem hafa ánetjast fíkniefnum kannast við, það er að það vaki alltaf yfir en sömuleiðis finna þeir yfirleitt ráð til þess að sanna trúverðugleika sinn. Hvað hefur konan þín reynt í þeim efnum? Hvaða sannanir hefur hún fyrir edrúmennsku sinni? Möguleg varúðarmerki Fylgifiskar fíknarinnar eru lygi og leynimakk. Slíkt ýtir undir tortryggni aðstandenda sem auðvelt ætti að vera að skýra út fyrir óvirkum fíkli. Yfirleitt hafa þeir mikinn skilning á slíku og mikla þörf fyrir að sanna „sakleysi sitt“. Um leið og fíkillinn hrekkur í vörn við tortryggninni, vill ekki sanna edrúmennsku sína og snýr jafnvel út úr eða reynir að draga úr trúverðug­ leika aðstandenda sinna, gæti það þá ekki einmitt verið var­ úðarmerki? Ekki leiða í gildru Mitt helsta ráð sem hjóna­ bandsráðgjafi er að tala um líðan sína og þarfir. Ef þér líður eins og þú getir ekki treyst konunni þinni, þá verð­ ur þú að reyna að eiga samtal um það. Ef þú reynir þess í stað að hanka hana, leiða hana í gildru eða bíða eftir sönnun á einhverju þá getur þú sjálfur verið kominn í leynimakk sem er aldrei gott í samböndum. Hvað segir konan þín þeg­ ar þú berð áhyggjur þínar upp við hana? Hvað er hún tilbúin til að leggja á sig til þess að auka trúverðugleika þinn á henni? Getið þið leitað aðstoðar hjá meðferðaraðila? Í okkar samfélagi eru til tæki, tól og aðstoð til þess að hjálpa ykkur en ég mæli alls ekki með neinum þvingunar­ úrræðum. Einlægt samtal er yfirleitt betri lykill að far­ sælum endi. Mundu svo að það er heilla­ vænlegt að setja súrefnis­ grímuna fyrst á sjálfan sig, hlúðu vel að þér sjálfum og gangi þér sem allra best. n MYND/GETTY 26 FÓKUS 7. ÁGÚST 2020 DV Fylgifiskar fíkn- arinnar eru lygi og leynimakk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.