Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Síða 26
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu lesanda sem heldur að
konan hans sé byrjuð aftur í neyslu.
HELD HÚN SÉ KOMIN Í LÆKNADÓP
É g held að konan mín sé að neyta læknadóps og fela það frá mér.
Þegar við kynntumst var
hún búin að vera edrú í þrjú
ár, hún hafði verið í mikilli
neyslu en varð síðan alveg
edrú eftir að hafa farið tvisv-
ar sinnum í meðferð. Sjálfur
hef ég aldrei snert annað en
áfengi og hef því takmark-
aðan skilning á þessum
málum og þekki kannski
ekki alveg varúðarmerkin.
Mér hefur stundum fund-
ist hún vera frekar vönkuð,
hélt fyrst bara að hún væri
illa sofin en þetta fór að ger-
ast endurtekið. Síðan í eitt
skiptið þegar ég var að setja
í þvottavél þá fann ég pillu-
spjald í vasanum hennar en
hún var búin að segja mér
að hún vildi helst ekki taka
neinar pillur, ekki einu sinni
þó hún væri með hausverk.
Mér fannst þetta því skrýtið
og fletti upp lyfinu, og þá er
þetta róandi lyf sem einn-
ig er þríhyrningsmerkt, lyf
sem fíkill ætti ekki að vera
að taka. Ég spurði hana út í
þetta þegar hún kom heim en
þá sagðist hún bara hafa ætl-
að að henda spjaldinu fyrir
vinkonu sína en gleymt því
í vasanum. Ég er hins vegar
sannfærður um að þetta sé
ástæðan fyrir því hvað hún
er oft fjarræn og ólík sjálfri
sér. Hvernig get ég fengið
hana til að segja mér satt?
Eða er ég kannski bara
ímyndunarveikur?
Sanna trúverðugleika sinn
Sæll. Ég get ímyndað mér
að það sé ekki gott að vera á
þessum stað, það er að gruna,
efast, hafa áhyggjur af og
treysta ekki konunni sinni.
Því miður get ég ekki sagt
þér hvort konan þín sé að
segja þér satt eða ekki. Þaðan
af síður get ég látið konuna
þína segja þér satt eða stað
fest fyrir þér hvort tilfinning
þín sé rétt eða röng. Aftur á
móti þori ég að fullyrða að þú
ert ekki ímyndunarveikur, þú
hljómar heldur áhyggjufullur.
Það er stundum sagt að við
getum ekki spáð fyrir um
framtíðina nema með for
tíðinni. Hvað svo sem er til
í því, þá á konan þín sögu
sem ýtir undir grunsemdir
þínar. Nokkuð sem allflestir
sem hafa ánetjast fíkniefnum
kannast við, það er að það
vaki alltaf yfir en sömuleiðis
finna þeir yfirleitt ráð til þess
að sanna trúverðugleika sinn.
Hvað hefur konan þín reynt í
þeim efnum? Hvaða sannanir
hefur hún fyrir edrúmennsku
sinni?
Möguleg varúðarmerki
Fylgifiskar fíknarinnar eru
lygi og leynimakk. Slíkt ýtir
undir tortryggni aðstandenda
sem auðvelt ætti að vera að
skýra út fyrir óvirkum fíkli.
Yfirleitt hafa þeir mikinn
skilning á slíku og mikla þörf
fyrir að sanna „sakleysi sitt“.
Um leið og fíkillinn hrekkur
í vörn við tortryggninni, vill
ekki sanna edrúmennsku
sína og snýr jafnvel út úr eða
reynir að draga úr trúverðug
leika aðstandenda sinna, gæti
það þá ekki einmitt verið var
úðarmerki?
Ekki leiða í gildru
Mitt helsta ráð sem hjóna
bandsráðgjafi er að tala um
líðan sína og þarfir. Ef þér
líður eins og þú getir ekki
treyst konunni þinni, þá verð
ur þú að reyna að eiga samtal
um það. Ef þú reynir þess í
stað að hanka hana, leiða
hana í gildru eða bíða eftir
sönnun á einhverju þá getur
þú sjálfur verið kominn í
leynimakk sem er aldrei gott
í samböndum.
Hvað segir konan þín þeg
ar þú berð áhyggjur þínar
upp við hana? Hvað er hún
tilbúin til að leggja á sig til
þess að auka trúverðugleika
þinn á henni? Getið þið leitað
aðstoðar hjá meðferðaraðila?
Í okkar samfélagi eru til
tæki, tól og aðstoð til þess að
hjálpa ykkur en ég mæli alls
ekki með neinum þvingunar
úrræðum. Einlægt samtal er
yfirleitt betri lykill að far
sælum endi.
Mundu svo að það er heilla
vænlegt að setja súrefnis
grímuna fyrst á sjálfan sig,
hlúðu vel að þér sjálfum og
gangi þér sem allra best. n
MYND/GETTY
26 FÓKUS 7. ÁGÚST 2020 DV
Fylgifiskar fíkn-
arinnar eru lygi
og leynimakk.