Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 15
virk, og að draga úr ítrekun brota „og stuðla að farsælli betrun“. Fangelsismálastofnun sér um fullnustu refsinga á Ís- landi samkvæmt lögunum. Fangelsismálastjóri, sem í dag er Páll Winkel, veitir þeirri stofnun forstöðu og skal hann skipa fangelsisstjóra yfir hverju fangelsi. Fernar buxur og fjórir brjóstahaldarar Afplánunarferlið hjá einstakl- ingi er mismunandi og munar þar mestu um alvarleika glæps. Í alvarlegustu glæp- unum, eða ef um endurtekin brot er að ræða, gæti verið að sakborningur sé í gæsluvarð- haldi við dómsúrskurð og hef- ur hann þá afplánun um leið og dómur fellur. Sé glæpurinn ekki metinn það alvarlegur að hefja þurfi afplánun strax, fer fangi á biðlista eftir afplánun. Fangar geta þó óskað eftir því að hefja afplánun strax og er þá leitast við því eftir fremstu getu að verða við þeirri ósk, að sögn Fangelsismálastofn- unar. Allir sem hefja afplánun mæta í Fangelsið að Hólms- heiði, nema annað sé tilgreint, ekki seinna en klukkan 17.00 á þeim degi sem þeir eru boð- aðir í fangelsið. Fangar mega hafa með sér fernar buxur, sex boli, átta pör af sokkum, átta nærbuxur, fjóra brjósta- haldara, þrjú pör af skóm (þar af eitt par af inniskóm og eitt par af kuldaskóm), eina úlpu, einn jakka, eina húfu og eitt par af vettlingum. Ókeypis aðgangur að þvottavélum stendur föngum til boða. Tannkrem, sjampó, hár- næring, svitalyktareyðir, húð- krem og varasalvi eru til sölu í fangelsinu. Þá má fangi hafa með sér maskara, augnblýant og rakakrem. Þegar fangi hefur hafið afplánun á Hólmsheiði fer flutningsteymi Fangelsis- málastofnunar yfir það hvort viðkomandi afpláni allan tímann þar eða verði fluttur í annað fangelsi. Við slíkar ákvarðanir er litið til aldurs, kynferðis, búsetu, brotaferils og þyngdar refsingar. Kvíabryggja opnuð öllum Ef lengd fangelsisdóms og hegðun fanga gefur tilefni til er fangi fluttur í opið fangelsi. Regla Fangelsismálastofn- unar er að enginn skuli sitja í opnu fangelsi lengur en í þrjú ár. Því þarf fangi að hafa hlotið talsvert langan dóm til þess að „vinna sér inn“ dvöl á Hólmsheiði eða Litla-Hrauni í lengri tíma. Í kjölfar vistunar í opnu fangelsi er næsta skref af- plánunar dvöl á áfangaheim- ilinu Vernd í Reykjavík. Þar stunda fangar ýmist nám eða vinnu og eru frjálsir ferða sinna á daginn en þurfa að koma til baka að kvöldi til. Síðasta skref afplánunar áður en sækja má um reynslulausn er svokallað rafrænt eftirlit. Þar þarf fangi að lúta svipuðu útgöngubanni og á Vernd, nema að hann endar daginn heima hjá sér. Er þá sett upp svokölluð heimastöð á heimili fangans sem nemur nærveru ökklabandsins. Mikil bylting hefur orðið á útfærslu refsivistar á örfáum árum. Í upphafi aldarinnar voru aðeins 14 pláss í opnum fangelsum, öll á Kvíabryggju. Með fjölgun plássa á Kvía- bryggju og opnun fangelsis- ins að Sogni fjölgaði plássum í opnum fangelsum í 44. Það er því þreföldun á örfáum árum. Er þessi breyting sögð hafa opnað á möguleika allra fanga til að komast að í opnu fangelsi og ýtt undir þá menn- ingu innan fangelsanna að góð hegðun skipti máli og sé verðlaunuð. Ímyndin um Kvíabryggju sem hvítflibba- glæpamannafangelsi á því ekki lengur við. Stóraukin þrepaskipting afplánunarleiða Lokuðu og opnu fangelsin eiga það eitt sameiginlegt að þaðan má ekki fara. Refsingin er þannig að vera tekinn úr samfélaginu, burt frá fjöl- skyldu og vinum. Eðli málsins samkvæmt er eftirlit meira í lokuðum fangelsum. Þau eru afgirt og þaðan er erfiðara að strjúka. Raunar hefur enginn strokið úr lokuðu fangelsi á Ís- landi síðan árið 2012. Úr opnu fangelsi getur fangi farið ef og þegar hann vill. Fangarnir vita hins vegar að það er þeim dýrkeypt. Strok úr fangelsi hefur áhrif á afplánunarferlið í heild. Fangar missa þann- ig fríðindi sem þeir kunna að hafa unnið sér inn og það getur haft áhrif á tækifæri fanga til reynslulausnar. Gert er ráð fyrir því að menn sitji hálfan dóm af sér í fangelsi, en tvo þriðju hluta dómsins ef um alvarlegt of- beldis- eða fíkniefnamál er að ræða. Fyrir rúmum ára- tug mátti einstaklingur sem hlaut 12 ára dóm undir „2/3 reglunni“ búast við því að sitja sjö ár í lokuðu fangelsi og svo eitt ár á Vernd. Í dag er staðan allt önnur. Nú má ein- staklingur sem hlýtur 12 ára dóm búast við að sitja 2-3 ár í lokuðu fangelsi, 3 ár í opnu fangelsi, allt að 16 mánuði á Vernd og svo ár í rafrænu eft- irliti á eigin heimili, eftir það má fanginn búast við reynslu- lausn. Þannig færist fanginn í þrepum nær fullri þátttöku í samfélaginu í stað þess að fara beint úr lokuðu fangelsi, í stuttan tíma á Vernd og beint út í samfélagið á ný. Páll Winkel fangelsismála- stjóri segir þessa breytingu ekki tilkomna vegna sparn- aðaraðgerða heldur sé hún úthugsuð og miði að því að lækka endurkomutíðnina. Segir hann að þessi „demp- aða“ endurkoma í samfélagið eftir fangelsisvist mýki högg- ið og geri mönnum auðveldara fyrir að aðlagast samfélaginu á ný. Endur komutíðni í fang- elsin er líkast til eini mæli- kvarðinn á velgengni þessarar nýju stefnu og ljóst að Ísland stendur sig vel. Samanborið við Norðurlöndin stendur Ís- land sig best með um 20% endurkomutíðni innan tveggja ára. Danmörk, Finnland og Svíþjóð mælast öll yfir 33%. Bið eftir afplánun „stóra vandamálið“ Stóra málið í fangelsismálum Íslands í dag, að sögn Páls, eru biðlistarnir. Biðlistar eftir afplánun eru ekki gömul uppfinning. Fyrst fór á þeim að bera upp úr 2005 og hafa þeir vaxið síðan. Ef saman- lögð lengd fangelsisdóma er skoðuð eftir árum má sjá mikla uppsveiflu upp úr 2005 og eðlilegt að draga þá ályktun að samhengi sé á milli lengdar biðlista eftir afplánun og þyngdar dóma. Að sama skapi má greina hraða fjölg- un í meðaltalsfjölda gæslu- varðhaldsfanga per dag. Allt leggst þetta á fangelsiskerfið. Þyngri dómar þýðir að hver afplánun tekur lengri tíma og fleiri gæsluvarðhaldsfangar þýðir að sjálfsögðu færri pláss fyrir „almenna“ afplánun. Að sögn Páls er Fangelsis- málastofnun og fangelsiskerf- ið í stakk búið til að takast á við þessa þyngingu í dómum. Afkastagetan er nokkurn veginn á pari við dæmdar refsingar dómstóla í dag. Hins vegar þýðir það að kerfið nær ekki að höggva á biðlistana. Til þess að ná að saxa þar á þarf aukið fjármagn. Rekstur Fangelsismála- stofnunar er sveiflukenndur og erfitt að spá um framtíðar- horfur. Má rekja það til þess að fjöldi fanga veltur auð- vitað á umfangi brotastarf- semi sem lögreglu tekst að afhjúpa á næstu misserum og lengd dóma sem falla í kjöl- farið. Það er erfitt að sjá slíkt fyrir. Það er jafnframt ljóst að íslenska kerfið er það lítið að aðeins örfá stór fíkniefna- mál geta breytt heildarstöðu kerfisins. Þannig féllu nýverið mjög þungir dómar í tveimur að- skildum amfetamínfram- leiðslumálum. Í því fyrra voru þrír dæmdir til samanlagðrar 16 ára fangelsisvistar. Í því seinna fengu sexmenningar samtals 22 ára fangelsisdóm. Samanlagt gera það 38 ár. Samkvæmt „2/3 reglunni“ eru það 28 ár af vistun í fang- elsi. Það eru 10.220 dagar af fangavörslu, fangaakstri, fangamáltíðum, heimsóknum aðstandenda í fangelsi, dag- peningum fanga og 10.220 nætur á kostnað hins opin- bera. Slíkt er ekki ókeypis. n Jónas frá Hriflu lét kaupa húsið að Litla-Hrauni sem var þá óstarfhæfur spítali. Því var breytt í fangelsi 1928. MYND/FANGELSISMÁLASTOFNUN Stóra málið í fangelsismálum Íslands í dag eru biðlistarnir. Einn fangagangurinn á Hólmsheiði. Þar er pláss fyrir 56 fanga. MYND/FANGELSISMÁLASTOFNUN FRÉTTIR 15DV 7. ÁGÚST 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.