Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Page 15
virk, og að draga úr ítrekun
brota „og stuðla að farsælli
betrun“.
Fangelsismálastofnun sér
um fullnustu refsinga á Ís-
landi samkvæmt lögunum.
Fangelsismálastjóri, sem í
dag er Páll Winkel, veitir
þeirri stofnun forstöðu og skal
hann skipa fangelsisstjóra
yfir hverju fangelsi.
Fernar buxur og fjórir
brjóstahaldarar
Afplánunarferlið hjá einstakl-
ingi er mismunandi og munar
þar mestu um alvarleika
glæps. Í alvarlegustu glæp-
unum, eða ef um endurtekin
brot er að ræða, gæti verið að
sakborningur sé í gæsluvarð-
haldi við dómsúrskurð og hef-
ur hann þá afplánun um leið
og dómur fellur. Sé glæpurinn
ekki metinn það alvarlegur að
hefja þurfi afplánun strax, fer
fangi á biðlista eftir afplánun.
Fangar geta þó óskað eftir því
að hefja afplánun strax og er
þá leitast við því eftir fremstu
getu að verða við þeirri ósk,
að sögn Fangelsismálastofn-
unar.
Allir sem hefja afplánun
mæta í Fangelsið að Hólms-
heiði, nema annað sé tilgreint,
ekki seinna en klukkan 17.00
á þeim degi sem þeir eru boð-
aðir í fangelsið. Fangar mega
hafa með sér fernar buxur,
sex boli, átta pör af sokkum,
átta nærbuxur, fjóra brjósta-
haldara, þrjú pör af skóm (þar
af eitt par af inniskóm og eitt
par af kuldaskóm), eina úlpu,
einn jakka, eina húfu og eitt
par af vettlingum. Ókeypis
aðgangur að þvottavélum
stendur föngum til boða.
Tannkrem, sjampó, hár-
næring, svitalyktareyðir, húð-
krem og varasalvi eru til sölu
í fangelsinu. Þá má fangi hafa
með sér maskara, augnblýant
og rakakrem.
Þegar fangi hefur hafið
afplánun á Hólmsheiði fer
flutningsteymi Fangelsis-
málastofnunar yfir það hvort
viðkomandi afpláni allan
tímann þar eða verði fluttur
í annað fangelsi. Við slíkar
ákvarðanir er litið til aldurs,
kynferðis, búsetu, brotaferils
og þyngdar refsingar.
Kvíabryggja opnuð öllum
Ef lengd fangelsisdóms og
hegðun fanga gefur tilefni til
er fangi fluttur í opið fangelsi.
Regla Fangelsismálastofn-
unar er að enginn skuli sitja
í opnu fangelsi lengur en í
þrjú ár. Því þarf fangi að hafa
hlotið talsvert langan dóm til
þess að „vinna sér inn“ dvöl á
Hólmsheiði eða Litla-Hrauni í
lengri tíma.
Í kjölfar vistunar í opnu
fangelsi er næsta skref af-
plánunar dvöl á áfangaheim-
ilinu Vernd í Reykjavík. Þar
stunda fangar ýmist nám eða
vinnu og eru frjálsir ferða
sinna á daginn en þurfa að
koma til baka að kvöldi til.
Síðasta skref afplánunar áður
en sækja má um reynslulausn
er svokallað rafrænt eftirlit.
Þar þarf fangi að lúta svipuðu
útgöngubanni og á Vernd,
nema að hann endar daginn
heima hjá sér. Er þá sett upp
svokölluð heimastöð á heimili
fangans sem nemur nærveru
ökklabandsins.
Mikil bylting hefur orðið á
útfærslu refsivistar á örfáum
árum. Í upphafi aldarinnar
voru aðeins 14 pláss í opnum
fangelsum, öll á Kvíabryggju.
Með fjölgun plássa á Kvía-
bryggju og opnun fangelsis-
ins að Sogni fjölgaði plássum
í opnum fangelsum í 44. Það
er því þreföldun á örfáum
árum. Er þessi breyting sögð
hafa opnað á möguleika allra
fanga til að komast að í opnu
fangelsi og ýtt undir þá menn-
ingu innan fangelsanna að
góð hegðun skipti máli og
sé verðlaunuð. Ímyndin um
Kvíabryggju sem hvítflibba-
glæpamannafangelsi á því
ekki lengur við.
Stóraukin þrepaskipting
afplánunarleiða
Lokuðu og opnu fangelsin
eiga það eitt sameiginlegt að
þaðan má ekki fara. Refsingin
er þannig að vera tekinn úr
samfélaginu, burt frá fjöl-
skyldu og vinum. Eðli málsins
samkvæmt er eftirlit meira í
lokuðum fangelsum. Þau eru
afgirt og þaðan er erfiðara að
strjúka. Raunar hefur enginn
strokið úr lokuðu fangelsi á Ís-
landi síðan árið 2012. Úr opnu
fangelsi getur fangi farið ef
og þegar hann vill. Fangarnir
vita hins vegar að það er þeim
dýrkeypt. Strok úr fangelsi
hefur áhrif á afplánunarferlið
í heild. Fangar missa þann-
ig fríðindi sem þeir kunna
að hafa unnið sér inn og það
getur haft áhrif á tækifæri
fanga til reynslulausnar.
Gert er ráð fyrir því að
menn sitji hálfan dóm af sér
í fangelsi, en tvo þriðju hluta
dómsins ef um alvarlegt of-
beldis- eða fíkniefnamál er
að ræða. Fyrir rúmum ára-
tug mátti einstaklingur sem
hlaut 12 ára dóm undir „2/3
reglunni“ búast við því að
sitja sjö ár í lokuðu fangelsi og
svo eitt ár á Vernd. Í dag er
staðan allt önnur. Nú má ein-
staklingur sem hlýtur 12 ára
dóm búast við að sitja 2-3 ár
í lokuðu fangelsi, 3 ár í opnu
fangelsi, allt að 16 mánuði á
Vernd og svo ár í rafrænu eft-
irliti á eigin heimili, eftir það
má fanginn búast við reynslu-
lausn. Þannig færist fanginn
í þrepum nær fullri þátttöku
í samfélaginu í stað þess að
fara beint úr lokuðu fangelsi,
í stuttan tíma á Vernd og beint
út í samfélagið á ný.
Páll Winkel fangelsismála-
stjóri segir þessa breytingu
ekki tilkomna vegna sparn-
aðaraðgerða heldur sé hún
úthugsuð og miði að því að
lækka endurkomutíðnina.
Segir hann að þessi „demp-
aða“ endurkoma í samfélagið
eftir fangelsisvist mýki högg-
ið og geri mönnum auðveldara
fyrir að aðlagast samfélaginu
á ný. Endur komutíðni í fang-
elsin er líkast til eini mæli-
kvarðinn á velgengni þessarar
nýju stefnu og ljóst að Ísland
stendur sig vel. Samanborið
við Norðurlöndin stendur Ís-
land sig best með um 20%
endurkomutíðni innan tveggja
ára. Danmörk, Finnland og
Svíþjóð mælast öll yfir 33%.
Bið eftir afplánun
„stóra vandamálið“
Stóra málið í fangelsismálum
Íslands í dag, að sögn Páls,
eru biðlistarnir. Biðlistar
eftir afplánun eru ekki gömul
uppfinning. Fyrst fór á þeim
að bera upp úr 2005 og hafa
þeir vaxið síðan. Ef saman-
lögð lengd fangelsisdóma
er skoðuð eftir árum má
sjá mikla uppsveiflu upp úr
2005 og eðlilegt að draga þá
ályktun að samhengi sé á milli
lengdar biðlista eftir afplánun
og þyngdar dóma. Að sama
skapi má greina hraða fjölg-
un í meðaltalsfjölda gæslu-
varðhaldsfanga per dag. Allt
leggst þetta á fangelsiskerfið.
Þyngri dómar þýðir að hver
afplánun tekur lengri tíma og
fleiri gæsluvarðhaldsfangar
þýðir að sjálfsögðu færri pláss
fyrir „almenna“ afplánun.
Að sögn Páls er Fangelsis-
málastofnun og fangelsiskerf-
ið í stakk búið til að takast á
við þessa þyngingu í dómum.
Afkastagetan er nokkurn
veginn á pari við dæmdar
refsingar dómstóla í dag. Hins
vegar þýðir það að kerfið nær
ekki að höggva á biðlistana.
Til þess að ná að saxa þar á
þarf aukið fjármagn.
Rekstur Fangelsismála-
stofnunar er sveiflukenndur
og erfitt að spá um framtíðar-
horfur. Má rekja það til þess
að fjöldi fanga veltur auð-
vitað á umfangi brotastarf-
semi sem lögreglu tekst að
afhjúpa á næstu misserum og
lengd dóma sem falla í kjöl-
farið. Það er erfitt að sjá slíkt
fyrir. Það er jafnframt ljóst
að íslenska kerfið er það lítið
að aðeins örfá stór fíkniefna-
mál geta breytt heildarstöðu
kerfisins.
Þannig féllu nýverið mjög
þungir dómar í tveimur að-
skildum amfetamínfram-
leiðslumálum. Í því fyrra voru
þrír dæmdir til samanlagðrar
16 ára fangelsisvistar. Í því
seinna fengu sexmenningar
samtals 22 ára fangelsisdóm.
Samanlagt gera það 38 ár.
Samkvæmt „2/3 reglunni“
eru það 28 ár af vistun í fang-
elsi. Það eru 10.220 dagar
af fangavörslu, fangaakstri,
fangamáltíðum, heimsóknum
aðstandenda í fangelsi, dag-
peningum fanga og 10.220
nætur á kostnað hins opin-
bera. Slíkt er ekki ókeypis. n
Jónas frá Hriflu lét kaupa húsið að Litla-Hrauni sem var þá óstarfhæfur spítali. Því var breytt í fangelsi 1928. MYND/FANGELSISMÁLASTOFNUN
Stóra málið í
fangelsismálum
Íslands í dag eru
biðlistarnir.
Einn fangagangurinn á Hólmsheiði. Þar er pláss fyrir 56 fanga. MYND/FANGELSISMÁLASTOFNUN
FRÉTTIR 15DV 7. ÁGÚST 2020