Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Qupperneq 21
FÓKUS 21DV 7. ÁGÚST 2020 Fleiri Íslendingar Það er ekki vitað um marga Íslendinga á miðlinum en það virðist sem svo að ungar, ís­ lenskar konur séu að ryðja sér til rúms hægt og rólega. Nítján ára íslensk kona grein­ ir frá því á samfélagsmiðlin­ um TikTok að hún hafi grætt rúmlega 720 þúsund krónur á þremur vikum á OnlyFans. „Er hægt að græða á Only­ Fans án þess að sýna nekt? „Já!“ segir konan í mynd­ bandinu og sýnir tölfræði yfir tekjur sínar á miðlinum. Á fyrstu vikunni græddi hún rúmlega 430 þúsund krónur. Á OnlyFans­síðu hennar segist hún ekki selja nektar­ myndir af sér, sama hversu hátt boð hún fær. „Hér fáið þið að sjá efni sem ég deili ekki á Insta­ gram. Ég deili nærfata/bik­ inímyndum, æfingamynd­ böndum og hversdagslegum myndum. Ég sýni enga nekt þar sem ég hef ekki áhuga á því og vinsamlegast virðið það, sama hversu mikið þú borgar þá mun ég ekki gera það,“ kemur fram í lýsing­ unni á síðu hennar. Hægt er að kaupa mánaðaráskrift á tæplega tvö þúsund krónur. Það er einnig hægt að kaupa þriggja, sex og tólf mánaða áskrift. Önnur ung, íslensk kona selur efni á OnlyFans og seg­ ist deila myndum sem „Insta­ gram hatar“. Mánaðaráskrift hjá henni kostar tæplega 2.500 krónur. Frægar stjörnur Íslenskir aðdáendur sjón­ varpsþáttanna Desperate Housewives muna kannski eftir því þegar ein persóna þáttanna, Susan Meyers, var fjárþurfi og fór að vinna hjá síðunni Va Va Broom við að þrífa á nærfötunum fyrir framan vefmyndavél. Only­ Fans er þó oft á köflum mun grófara en svo og virðist vera allt frá nokkuð saklausu efni að finna þar upp í klám. Þegar OnlyFans kom fyrst fram á sjónarsviðið gaf mið­ illinn klámstjörnum tækifæri til að vera við stjórnvölinn þegar kemur að því að gefa út eigið efni. Með tímanum fór miðillinn að verða vinsælli meðal erlendra áhrifavalda. Það er auðvelt að finna frítt klámefni á netinu en margir vilja sjá nektarmyndir eða djarfar myndir af áhrifa­ völdunum sem þeir fylgja á Instagram. Fjölmargar stjörnur hafa einnig séð tekjumöguleik­ ana í OnlyFans og stokkið á vagninn. Eins og fyrirsætan Blac Chyna sem rukkar 6.800 krónur fyrir mánaðaráskrift. Hjónin Safaree Samuels og Erica Mena, úr raunveru­ leikaþáttunum Love & Hip Hop, eru hvort með sína On­ lyFans­síðuna. Love Island­ stjarnan Vanessa Sierra og kærasti hennar eru með sameiginlega OnlyFans­síðu. Nokkrar YouTube­stjörnur eru einnig á OnlyFans, eins og Trisha Paytas og Tana Mongeau. n SHELBY Love Island- stjarnan Shelby Mills er á Only- Fans. Mynd: Instagram DESTINY Raunveru- leikastjarnan Destiny Skye er líka á OnlyFans. TEAGAN KAYE Sagði upp hjá Subway og sneri sér alfarið að OnlyFans. BLAC CHYNA Blac Chyna á dóttur með Rob Kard- ashian og rapparanum Tyga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.