Morgunblaðið - 28.01.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.01.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikill meirihluti atvinnuhúsnæðis er skattlagður með lögbundnu há- marki álagningar, 1,65%. Munar þar mestu að Reykjavíkurborg hef- ur ekki hnikað frá lögbundnu há- marki í meira en áratug. Er nú svo komið að helmingur fasteignaskatta á fyrirtæki landsins rennur í borgarsjóð. Kemur þetta fram í skýrslu um greiningu Samtaka iðn- aðarins. Samtökin áætla að fyrirtæki landsins muni greiða rúmlega 28 milljarða í fasteignaskatta í ár, en það er nærri 1% af landsfram- leiðslu. Er þetta mun hærri skatt- byrði en fyrirtæki bera í nágranna- löndunum. Noregur er nefndur sem dæmi en þar samsvöruðu fasteigna- skattarnir 0,25% af landsframleiðslu árið 2018 þegar þeir voru 0,8% hér. Hlutfallið var 0,4% í Svíþjóð. Fasteignaskattarnir hafa hækkað um 50% að raunvirði frá árinu 2015. Ef aðeins er litið á tímabilið frá 2018, þegar niðursveiflan í efna- hagslífinu hófst, sést að hækkunin nemur 20%. Samtök iðnaðarins vekja athygli á því að fasteignaskattar taki sífellt stærri skerf af tekjum fyrirtækja og séu orðnir meira íþyngjandi en áður. Ættu að axla ábyrgð „Sveitarfélög landsins ættu að axla ábyrgð, sinna hagstjórnarhlut- verki sínu og lækka fasteignaskatta á fyrirtæki því með slíkri lækkun er fyrirtækjum og heimilum hjálpað að mæta samdrættinum í efnahagslíf- inu,“ segir í greiningu SI. Meirihluti fyrirtækja greiðir lög- bundið hámark fasteignaskatta. Meðaltalið í ár verður 1,6%. Helm- ingur sveitarfélaga landsins, 36 tals- ins, heldur álagningunni fastri í lög- bundnu hámarki (1,65%) milli ára. Er 65% skattstofns fasteignaskatta af atvinnuhúsnæði innan þessara sveitarfélaga. Tíu sveitarfélög lækka álagningarprósentuna í ár. Dregur þetta úr útgjöldum fyrir- tækjanna um 200 milljónir kr. á landsvísu, sem er þó aðeins lítill hluti skattanna. Borgin ekki hnikað neinu Reykjavíkurborg er eina sveitar- félagið af 10 stærstu sem ekki hefur hnikað til álagningarprósentu fast- eignaskatta á fyrirtæki á síðasta áratug. Prósentan er í lögleyfðu há- marki og fasteignamatið hefur hækkað hratt. Er nú svo komið að önnur hver króna af fasteignagjöld- um fyrirtækja í landinu rennur í borgarsjóð, eins og fram kemur hér að framan. Sveitarstjórnir Hafnarfjarðar og Kópavogs hafa hins vegar lækkað skatta á sín fyrirtæki til muna síð- ustu ár og þannig hjálpað þeim að mæta niðursveiflunni. Helmingur skattsins í borgarsjóð  Fyrirtæki landsins greiða 28 milljarða króna í fasteignaskatta  Hærra hlutfall landsframleiðslu en í nágrannalöndum  Skatturinn hefur hækkað um 20% að raungildi frá 2018 þegar niðursveiflan hófst Skattbyrði fyrirtækja í formi fasteignaskatta 2015-2020 25 20 15 10 5 0 1,0% 0,8% 0,6% 0,4% 0,2% 0,0% Fasteignaskattar á verðlagi 2019 Sem % af VLF 2015 2016 2017 2018 2019 2020 ma.kr. Heimild: Samtök iðnaðarins Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Raforkan sem Rio Tinto hefði keypt en gerir ekki verður ekki seld til annarra.“ Þetta segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, spurður út í þá stöðu sem upp er komin í kjölfar þess að Rio Tinto til- kynnti í liðinni viku að fyrirtækið hygðist aðeins nýta 85% af þeirri raforku sem fyrirtækið hafði samið um kaup á frá Landsvirkjun. Ástæð- una fyrir samdrættinum sagði upp- lýsingafulltrúi Rio Tinto í samtali við Morgunblaðið síðastliðinn laugardag fyrst og fremst vera lágt heimsmarkaðsverð á áli. Hörður segir að Rio Tinto geti hvenær sem er óskað eftir því að auka raforkukaupin að nýju. „Það veldur því að við getum ekki skuldbundið okkur til þess að af- henda þessa orku til annarrar starf- semi.“ Hörður segir að samkvæmt samningi Landsvirkjunar og Rio Tinto hafi síðarnefnda fyrirtækið heimild til þess að draga úr kaup- unum sem nemi 15% af heildar- umfangi samningsins. „Kaupskyldan sem hvílir á stór- notendum er einn helsti styrkleiki Landsvirkjunar. Þeir hafa hins vegar ákveðinn sveigjanleika sem getur birst í að- stæðum sem þessum,“ segir Hörður. Spurður út í hvort sam- bærileg ákvæði séu í öðrum samningum Landsvirkjunar segir Hörður að það sé nokkuð mismunandi en að megin- reglan sé að sveigjanleiki af þessu tagi sé til staðar. Þörfin fyrir hann sé hins vegar mismunandi eftir eðli starfseminnar hjá hverjum og einum. 3,5% samdráttur Rio Tinto er annar stærsti við- skiptavinur Landsvirkjunar á eftir Alcoa á Reyðarfirði. 15% samdrátt- ur í raforkusölu þangað veldur af þeim sökum 3,5% samdrætti í heildarraforkusölu fyrirtækisins. „Raforkusalan í ár verður hins veg- ar að öllum líkindum jafn mikil og í fyrra því þá þurfti Rio Tinto að slökkva á einum kerskála vegna tæknilegra örðugleika sem upp komu.“ Hörður segir að sveigjan- leikinn í samningum við stórnotend- ur gangi í báðar áttir. „Við sérstak- ar aðstæður getum við dregið úr raforkusölunni. Það getur gerst ef við upplifum mjög lélegt vatnsár eða ef alvarlegar bilanir verða í virkj- unum hjá okkur. Það hefur þó ekki gerst nema einu sinni á síðustu tveimur áratugum að við höfum þurft að skerða afhendingu til kaup- enda.“ Hefur ekki áhrif á arðgreiðslur Í viðtali við ViðskiptaMoggann í síðustu viku sagði Hörður að á næsta ári eða því þarnæsta gæti Landsvirkjun aukið arðgreiðslur í Ríkissjóð til muna og að þær gætu þá numið 10 til 20 milljörðum króna á ári. Hann segir að ákvörðun Rio Tinto hafi ekki áhrif á þær fyrirætl- anir. „Við gerum ráð fyrir sveiflum af þessu tagi í áætlunum okkar.“ Spurður út í hvaða áhrif það hefði ef aðrir stórnotendur myndu draga á heimildir sínar til að draga úr orku- kaupum segir Hörður að það myndi hafa meiri áhrif á fyrirtækið en að ólíklegt sé að sú staða komi upp. „Þessi fyrirtæki eru að framleiða mismunandi vörur og markaðsverð á þeim hefur þróast með mismun- andi hætti á síðustu misserum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Álframleiðsla Verksmiðja Rio Tinto í Straumsvík er annar stærsti raforkukaupandi Landsvirkjunar. Raforkan verður ekki nýtt í annað á meðan  Orkusala Landsvirkjunar dregst saman um 3,5% Hörður Arnarson Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti land- læknis vegna kórónaveiru. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við mbl.is í gær að fastlega væri gert ráð fyrir að veiran bærist til Íslands. Óvissustigi er lýst þegar grunur vaknar um að yfirvofandi sé atburð- ur sem hefur áhrif á lýðheilsu. Í kjöl- farið er samstarf stofnana aukið, sem og upplýsingamiðlun. Vöktun er efld, áhættumat endurskoðað og birgðastaða nauðsynlegra bjarga er könnuð og skráð. Farið er yfir við- bragðsáætlanir og verkferla. »13 Staðfest tilfelli sýkingar af völdum 2019 nCoV veirunnar um miðjan dag í gær Meginland Kína yfir 2.700 Taíland 8 Nepal 1 Malasía 4 Singapúr 4 Kambódía 1 Víetnam 2 Japan 4 Hong Kong 8 Makaó 6 Frakkland 3 Suður-Kórea 4 Taívan 5 Ástralía 5 Bandaríkin 5 Útbreiðsla kórónaveirunnar Óvissustigi almannavarna lýst yfir vegna kórónaveiru  Búist við því að veiran berist hingað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.