Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 19
okkar krakkanna á meðan for- eldrarnir fóru til útlanda. Amma vílaði það ekki fyrir sér að halda bekkjarafmæli fyrir mig á meðan mamma og pabbi voru í burtu. Einnig man ég vel eftir því þegar Pétur bróðir var svo lævís að nýta tækifærið og koma með litla hvíta mús heim því amma mátti ekkert aumt sjá varðandi dýr og leyfði Pétri að sjálfsögðu að koma með músina inn og hreiðra um hana í búri. Það var ekki aftur snúið þeg- ar foreldrarnir komu heim og músin flutt inn. Amma var svo stórkostleg, hún tók bílpróf á sjötugsaldri því þá var hún orðin leið á að komast ekki útí Hagkaup ein að versla. Amma var á facebook þar til síð- ustu 2-3 árin. Amma var alltaf skýr í höfðinu þrátt fyrir að ald- urinn færi að gera vart við sig í skrokknum eins og gengur. Amma tók alltaf upp þráðinn í samtalinu frá síðustu heimsókn. Það var alltaf gaman að heim- sækja ömmu og ræða við hana þrátt fyrir háan aldur nú síðustu árin. Ég er þakklát fyrir að hafa átt slíka stund með allri fjölskyld- unni minni og ömmu um nýaf- staðnar jólahátíðir. Ömmur og langömmur gerast ekki glæsilegri en hún amma mín var, alveg fram á tíðræðisaldurinn. Amma var elskuð af fólkinu sínu og hennar verður sárt sakn- að. Ég er sannfærð um að afi Að- alsteinn hafi tekið vel á móti henni og nú séu þau sameinuð á ný. Elsku amma mín, hvíl í friði og takk fyrir allt og allt. Margrét Yrsa Richter. Í dag er til moldar borin og kvödd hinstu kveðju elskuleg amma mín sem hefur verið mér svo náin og kær. Langri ævi er lokið en eftir situr hafsjór minn- inga sem gott er að ylja sér við. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp á heimili hennar og afa fyrstu árin og þaðan á ég mín- ar helstu bernskuminningar. Amma var glæsileg kona, ávallt vel til höfð svo eftir var tekið. Ég man eftir henni sitjandi í hæg- indastólnum, lesandi ástarsögur á dönsku með dísætt kaffi sér við hlið sem ég laumaðist til að smakka. Ég man eftir henni í eld- húsinu að galdra fram kræsingar, allskonar smörrebröd og sveppa- súpa á gamlárskvöld er mér í fersku minni enda stóðu barna- börnin í röð til að smakka. Eft- irminnilegar eru strætóferðir nið- ur í bæ, búðarölt og bókabúðin í Glæsibæ að kíkja á dönsku blöðin. Síðar flutti ég aftur til ömmu og afa og var hún þá komin með bíl- próf sem hún tók um sextugt. Hún naut þess að eiga bíl og keyrði þar til hún var 95 ára. Amma og afi ferðuðust alltaf mik- ið bæði innanlands og utan og fóru nokkrar heimsreisur. Við fórum til Marokkó 1995 sem var mikið ævintýri. Síðar hittumst við í Kan- ada þar sem ég var við nám og ferðuðumst um Klettafjöllin. Minnisstæðust er þó fjölskyldu- ferðin með henni á æskuslóðirnar í Danmörku. Þá var afi fallinn frá og hún að flytja í þjónustuíbúð aldraða. Þar átti hún góðar stund- ir með öðrum íbúum við handa- vinnu og postulínsmálun. Við átt- um með henni margar gæðastundir, búðarferðir, leik- hús, út að borða og varð Nauthóll og sjávarréttasúpan okkar uppá- hald. Ég minnist ekki að hún hafi nokkurn tíma skipt skapi, hafði gott jafnaðargeð og mikla hlýju. Ég kveð ömmu með miklu þakk- læti, hún var mér mikil fyrirmynd og ávallt til staðar. Hennar verður sárt saknað. Elísabet Richter Arnardóttir. Nú þegar ég kveð ömmu mína eru margar hlýjar minningar sem rifjast upp. Amma var fædd og uppalin í Danmörku. Hún kynnt- ist afa þegar hann lærði í Dan- mörku og flutti síðan með honum til Íslands eftir heimsstyrjöldina seinni. Ég man vel eftir sem barn þegar við fjölskyldan gistum hjá ömmu og afa í kjallaranum á Nökkvavogi. Yfirleitt vöknuðum við systkinin við dynki úr stofunni en þá var afi búinn að færa til hús- gögn og var að gera morgunleik- fimi. Amma var þá iðulega að gera morgunverð á meðan. Stundum var amma þó að vinna en hún vann sem sjálfboðaliði í sjoppunni á Landspítalanum. Amma og afi voru mjög dugleg að ferðast til út- landa og oftar en ekki komu þau með spennandi og framandi gjafir. Hvaða drengur yrði ekki ánægður með að fá uppstoppaða kóbraslöngu frá Asíu eða bjúg- sverð frá Marokkó. Þegar aldur- inn færðist yfir fóru þau að ferðast meira innanlands. Þau voru dugleg að nýta sér bústaði BSRB í Munaðarnesi og á Eiðum. Amma sagði mér ósjaldan söguna þegar þau voru í bústað í Mun- aðarnesi og Þórður umsjónar- maður kom með þær fréttir að ég væri kominn í heiminn. Ég var svo lánsamur að hafa átt margar gæðastundir með þeim þar. Eitt skiptið kom það fyrir að búið var að naga gat á allar mjólkurfernur ferðarinnar en þær voru geymdar úti á palli bústaðarins. Ekki var hægt að una við þetta og við tóku bollaleggingar hvernig ná átti músinni. Ég fékk ömmu til liðs við mig. Hún átti svefntöflu sem hún muldi með ömmudrengnum sín- um og síðan var hnoðuð girnileg ostakúla með svefntöflukryddi. Í stuttu máli náðist músin og var hún í góðu yfirlæti meðan á dvöl- inni stóð. Eftir það var henni sleppt aftur undir pallinn. Elsku amma mín. Við eigum eftir að sakna þín. Takk fyrir allt. Árni, Hildur og börn. Árni Þór Arnarson. Í dag kveð ég með söknuði elskulegu ömmu mína, Elisabeth Richter. Amma Lisbeth var ekki eins og flestar ömmur. Hún var glæsileg kona, alltaf vel tilhöfð og tignarleg í útliti og fasi. Og svo talaði hún líka íslensku með dönskum hreim, eitthvað sem vinkonum mínum þótti alltaf svolítið skrýtið en þó mjög áhugavert og spennandi. Amma kom til Íslands á mikl- um umbrotatímum, rétt eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar, og hefur það verið mikið menningar- sjokk fyrir hana þó að fjarlægðin við fjölskylduna hafi eflaust verið henni þungbærari. Samt sem áð- ur tók hún nýju heimkynnunum, sem ástin hafði fært henni, opnum örmum og gerðu þau afi sér fal- legt heimili í Reykjavík. Í Nökkvavoginum vorum við barnabörnin ávallt velkomin og var yndislegt að taka sér stund frá amstri dagsins og heimsækja ömmu og afa. Þar var manni alltaf tekið með mikilli hlýju, athugað hvort maður væri ekki örugglega sársvangur og svo var maður spurður spjörunum úr hvað á daga manns hefði drifið. Fyrir jól- in var amma einstaklega dugleg við framleiðslu alls kyns rétta sem áttu rætur sínar að rekja til danskrar jólahefðar. Hún var dugleg að útdeila þeim til okkar afkomendanna og eru þessir rétt- ir nú orðnir ómissandi hluti af jól- unum okkar. Minnisstæðar eru heimsókn- irnar í Munaðarnes, þar sem amma og afi dvöldu mörg sumur. Þá máluðum við gjarnan saman vatnslitamyndir, en amma málaði einstaklega fallegar blómamynd- ir, eða við prjónuðum og bárum saman bækur okkar um hand- verkið. Amma elskaði afa, sem hún kallaði Steina sinn, afar heitt og var ást þeirra einstök. Þau nutu þess að ferðast og voru ófáar ferð- irnar sem við fórum með þeim innanlands. Þegar þau komu frá framandi löndum nutum við barnabörnin þess þegar þau hlóðu á okkur gjöfum og glaðningum. Elsku amma, takk fyrir allt, minning þín lifir. Þín Helga Björk, Frank og börn. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR UNNUR BJÖRNSDÓTTIR, Didda, áður til heimilis í Stóragerði 15, lést í faðmi fjölskyldunnar 13. janúar á hjúkrunarheimilinu Mörk. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til starfsfólks 2. hæðar miðju í Mörkinni fyrir alúð og hlýju. Haki Antonsson Birna Antonsdóttir Sveinbjörn Brandsson Andri Þór Sveinbjörnsson Viktoría Bergmann Halldórsd. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur okkar, GUÐBJARGAR BERGS. Viðar Gunnarsson Gunnar Bjarni Viðarsson Inga Lára Ólafsdóttir Kolbrún Lís Viðarsdóttir Baldur Þór Jack barnabörn Sólveig Bergs Elín Bergs Elskulega eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund 19. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir góða umönnun. Kristján Reinhardtsson Guðmundur Kristjánsson Ragnheiður Edda Jónsdóttir Anna Marín Kristjánsdóttir Helgi Sigurðsson Ólöf Kristjánsdóttir Hafsteinn Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir mín, ÞÓREY SIGURRÓS EIRÍKSDÓTTIR, Grýtubakka 30, Reykjavík, lést á Landspítalanum 22. janúar. Útför fer fram í Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. janúar klukkan 15. Edda Hrönn Eiríksdóttir ✝ ÞorbjörgÓlafsdóttir Morthens fæddist í Hafnarfirði 13. desember 1926 og bjó þar á Vestur- braut 23. Hún lést á Sóltúni 15. jan- úar 2020. For- eldrar hennar voru Pálína Magdalena Páls- dóttir frá Grinda- vík, f. 29. maí 1898, d. 3. jan- úar 1977, og Ólafur Ragnar Björnsson úr Húnavatnssýslu, f. 22. apríl 1899, d. 27 ágúst 1961. Bróðir Þorbjargar Páll R. Ólafsson, f. 22. febrúar 1925, d. 2. júní 1997. Eigin- kona hans var Emilía Þórðar- dóttir, f. 9. mars 1927, d. 5. desember 2010. Eiginmaður Þorbjargar var Emanúel Morthens, f. 14. jan- úar 1921, d. 17. desember 2016. Foreldrar hans voru Rósa Guðbrandsdóttir, f. 28. október 1892, d. 10. júní 1980, og Edward W. Morthens, f. 15. maí 1882, d. 20. maí 1963. Börn þeirra: 1) Þórey Morth- ens, f. 25. október 1947, gift Jónasi Þór Steinarssyni, f. 2. október 1946. Synir a) Guðjón Ragnar, f. 25. maí 1974. Sonur janúar 1984, kvæntur Önnu Birgit Ómarsdóttur, f. 24. ágúst 1986. Synir Kolbeinn Páll, f. 13. janúar 2015, og Kristján Flóki, f. 21. sept- ember 2017. 3) Hörður T. Morthens, f. 31. desember 1954, d. 7. október 1985. Dótt- ir hans og Öldu Norðfjörð, f. 8. september 1955, er Manúela Ósk, f. 29. ágúst 1983. Börn Manúelu Jóhann Grétar, f. 15. janúar 2005, og Elma Rós, f. 28. apríl 2010. 4) Björn R. Morthens, f. 20. desember 1956, í sambúð með Katrínu Franke, f. 13. maí 1971. Sonur Jón Tjörvi, f. 31. janúar 2010. Dætur með Olgu D. Erlends- dóttur, f. 7. maí 1957, a) Birna Sif, f. 11. febrúar 1981, gift Benjamín Böðvarssyni, f. 16. janúar 1986. Synir Daníel Elí, f. 14. október 2015, og dreng- ur, f. 30. október 2019. b) Edda Hlíf, f. 9. febrúar 1983. c) Thelma Rut, f. 18. ágúst 1986, gift Þorsteini Ólafssyni, f. 14. júlí 1984. Börn Birta Dís, f. 27. september 2016, og Björn Óli, f. 3. febrúar 2019. Þorbjörg og Emanúel bjuggu í Reykjavík. Þorbjörg starfaði lengi hjá Kvennadeild Rauða krossins í Reykjavík. Þorbjörg ferðaðist mikið innan lands og utan og fór seinni árin reglulega til Kan- aríeyja. Útför Þorbjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 28. janúar 2020, klukkan 15. Ágúst, f. 24. júlí 2000. b) Jónas Páll, f. 14. ágúst 1976, kvæntur Sól- veigu G. Hann- esdóttur, f. 18. apríl 1973. Synir Þorlákur Ingi, f. 2. mars 2013, og Finnur Júlían, f. 9. júní 2015. Sonur Jónasar Páls er Ís- ar Freyr, f. 18. júlí 2002. Börn Sólveigar eru Þorgerður Katla, f. 22. júlí 2002, og Pétur Þór, f. 20. febrúar 2006. 2) Ólafur E. Morthens, f. 24. júní 1950, kvæntur Unni Hauksdóttur, f. 16. febrúar 1949. Börn a) Guð- rún María, f. 21. október 1968, gift Kára Pálssyni, f. 25. des- ember 1964. Börn Ólafur Axel, f. 11. október 1991, kvæntur Oddnýju Ómarsdóttur, f. 18. apríl 1992, sonur Kjartan Ax- el, f. 25. janúar 2019, Katrín Unnur, f. 11. júní 1997, Anna María, f. 7. janúar 2002. b) Þorbjörg Helga, f. 18. febrúar 1977, gift Sæþóri Ásmunds- syni, f. 9. nóvember 1978. Börn Saga María, f. 10. janúar 2005, Salka Elín, f. 17. júlí 2008, Baldur Páll, f. 13. febr- úar 2013. c) Ólafur Páll, f. 16. Hún amma mín, Guðjónína Þorbjörg Ólafsdóttir, var aldrei kölluð annað en Gauja. Senni- lega er hún sterkasta kennileit- ið á slóð æskuminninga minna. Móðir mín var einkadóttir hennar og þær mæðgur um- gengust mikið enda kært með þeim. Ég minnist ömmu sem góðs vinar og margar góðar minningar æskunnar tengjast henni með einum eða öðrum hætti. Amma giftist ung Emanúel Morthens. Þau hófu búskap á árunum eftir styrjöldina og varð fjögurra barna auðið. Hlutskipti ömmu varð, líkt og margra annarra kvenna af hennar kynslóð, að annast bú og börn. Hún bjó fjölskyldu sinni fallegt heimili og minnist ég margra góðra stunda í Stiga- hlíðinni þar sem ég fékk að leggja ömmu lið þegar hún ræktaði garðinn sinn. Síðdegis þótti mér ætíð jafn gaman að skottast með henni í búðir og var stoltur af henni þar sem hún ók um borgina á eigin bíl enda var slíkt heldur sjaldgæf sjón á þeim árum. Ég varð því snemma hreykinn af ömmu Gauju, svo glæsilegri í fasi og framkomu, og hef því ætíð borið Guðjónsnafnið með stolti. Ég gisti oft hjá ömmu í æsku. Hún innrætti mér einlæga barnstrú sem ég mun ætíð búa að. Hún leið það ekki að trúin á æðri mátt væri í flimtingum höfð og trúarþelið var sterkt. Heilræðavísur Hallgríms Pét- urssonar kenndi hún mér og þegar óminnið sótti á og sneyð- ast fór um umræðuefni okkar á milli og fjarlægðin sára tók völdin fór ég með vísurnar þar sem ég sat hjá henni. Þá var hún með á nótunum, yfir andlit- ið færðist bros og við tengd- umst hvort öðru líkt og í gamla daga. Það styrkir strenginn á milli okkar ömmu Gauju hversu hlý- leg hún var við son minn. Við feðgar heimsóttum hana í síð- asta sinn í byrjun þessa árs. Þá sat hún uppi, glæsileg að vanda og augun skýr og tær. Stundum er sagt að augun séu spegill sál- arinnar; augun mín og sonar míns eru frá henni komin og fyrir þá gjöf erum við þakklátir. Augun mín og augun þín, ó þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. Þetta ástarljóð Vatnsenda- Rósu á víða vel við. Ólafur Björnsson, faðir ömmu, var Húnvetningur og hún þess vegna mín eina ættartenging við Norðurland. Ástin til hennar var ósvikin og fölskvalaus og minning hennar mun lifa í hjörtum okkar feðga. Guðjón Ragnar Jónasson. Allt hefur sinn tíma og nú er kominn tími til að kveðja föð- urömmu okkar, hana ömmu Gauju. Eftir að amma kvaddi 15. janúar sl. höfum við yfirfarið gömul myndasöfn og rótað í minningabankanum. Hefur þá margt skemmtilegt rifjast upp, t.d. þegar amma keyrði með aldursforseta okkar systkin- anna í Bronco-jeppanum í bú- staðinn á Þingvöllum, en þar áttu þær dýrmætar stundir í göngutúrum eða í notalegheit- um við arininn með appelsín í flösku og lakkrísrör. Í þessum samtölum þeirra var amma dugleg að hvetja hana til dáða og til að elta drauma sína en ekki bíða eftir því að einhver annar tæki af skarið. Það væri algjörlega undir manni sjálfum komið hvert maður færi og þá hvernig. Glæsileiki er það orð sem kemur fyrst upp í huga manns þegar hugsað er um ömmu Gauju og þá var glæsileikinn ekki einungis útlitstengdur þó að hún amma hafi verið flestum frúm fínni. Heldur hélt hún fal- legt heimili, bar á borð girnileg- an og sérstaklega bragðgóðan mat og svo var hún hrókur alls fagnaðar og bar af á mannamót- um. Þennan glæsileika bar hún allt fram á síðustu stund. Að koma í Stigahlíðina og síðar Efstaleitið í gamla daga þótti okkur sem börnum vera ævin- týri líkast því maður var borinn á höndum sér af ömmu sem bauð upp á hluti sem ekki voru endilega sjálfsagðir í þá daga. Að sitja í eldhúsinu hennar, drekka ískalt Fresca úr flösku og fá að dýfa sér í smákök- ustampanna hennar eða maula á fríhafnarnammi var eðlilega toppurinn á tilverunni í augum barna. Veislur í Stigahlíðinni voru svo kapítuli út af fyrir sig, en amma Gauja hafði þann eig- inleika að allt sem hún bar á borð fyrir gesti sína, hvort sem það var soðinn fiskur eða veislu- matur, var einstaklega fallega fram sett auk þess að vera gott. Síðustu æviárin dvaldi amma Gauja á Sóltúni í góðu yfirlæti en nú hefur hún fengið hvíldina. Í anda ömmu Gauju munum við kaupa fallegan blómvönd og setja í vasa, en amma sagði eitt sinn að smáræði eins og að blómvöndur gæti glatt hjarta manns og maður ætti ekki að bíða eftir því að aðrir gæfu manni blóm heldur einfaldlega ganga í málið sjálfur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín Guðrún María, Þorbjörg Helga og Ólafur Páll Ólafsbörn. Þorbjörg Ó. Morthens

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.