Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 32
Ítalski hljóðfæraleikarinn Marco
Fusi kemur fram á tónleikum í Iðnó
í kvöld kl. 20 og eru þeir á dagskrá
Myrkra músíkdaga. Fusi er kunnur
fiðlu- og víóluleikari en í kvöld mun
hann rannsaka möguleika barokk-
strengjahljóðfærisins viola d’am-
ore. Með því að nota lifandi rafhljóð
eykst hljóðheimur hljóðfærisins og
upp magnast óendanlegir mögu-
leikar litadýrðar þess.
Leikur með möguleika
barokkhljóðfæris
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Nýliðar Þórs frá Akureyri gerðu sér
lítið fyrir og höfðu betur gegn Ís-
landsmeisturum KR á heimavelli í
Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöld, 102:100. KR fékk tæki-
færi til að tryggja sér sigurinn en
lokaskot Brynjars Þórs Björnssonar
geigaði. Með sigrinum fóru Þórs-
arar upp úr fallsæti. »26
Nýliðarnir unnu meist-
arana eftir æsispennu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir varð um helgina
fjórða íslenska konan til þess að
vinna sér inn þátttökurétt á
Evrópumótaröðinni í golfi,
þeirri næststerkustu í
heimi. Þetta var í
þriðja sinn sem Guð-
rún Brá, sem er
ríkjandi Íslands-
meistari í golfi, reyn-
ir við lokaúrtöku-
mótið fyrir Evrópu-
mótaröðina, en hún
hafnaði í 10.-17.
sæti af 120 kepp-
endum á loka-
úrtökumótinu sem
fram fór á La
Manga-golfsvæðinu
á Spáni. »27
Sú fjórða til að vinna
sér inn þátttökurétt
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Starfsmaður á plani er ekki lengur á
hverju strái en Ari Bragason hefur
staðið vaktina hjá N1 á Bíldshöfða í
um sex ár og tekur á móti öllum við-
skiptamönnum með bros á vör. „Ég
kann mjög vel við þessa vinnu og það
er gott að vinna hjá N1 enda hef ég
verið hjá fyrirtækinu í yfir átta ár,
fyrst í Skógarseli og síðan hérna,“
segir hann.
Sumir kannast eflaust við Ara úr
auglýsingum og haft hefur verið á
orði að hann sé andlit fyrirtækisins.
„Það segja það margir, en ég var
bara beðinn að leika í þremur aug-
lýsingum,“ segir hann.
Jákvæða viðmótið rekur Ari til
tveggja alvarlegra slysa sem hann
lenti í þegar hann vann hjá Sam-
skipum. Í fyrra skiptið fékk hann
stórt rör í höfuðið og höfuðkúpu-
brotnaði. „Ég fór eiginlega yfir um,“
rifjar hann upp. „Allt varð svart og
svo sá ég skært ljós og sveif upp
göng í áttina að því. Þessi reynsla
gjörbreytti öllu og mér varð ljóst að
lífið er hverfult.“ Seinna slysið varð
um fjórum árum síðar, árið 2003. Þá
varð hann fyrir stórum lyftara og
klemmdist upp við gámahorn. „Vitni
sögðu mér að ég hefði verið fastur
þarna í um tvær mínútur. Bakvöðvar
slitnuðu, brjóstkassinn brotnaði og
ég var nær kafnaður. Ég reyndi að
halda áfram að vinna en var lengi frá
vegna bakverkja, stöðugt hjá
sjúkraþjálfurum og svo fór að ég
varð að játa mig sigraðan eftir um 15
ár hjá Samskipum. Ég var öryrki í
fimm ár en fór þá aftur út á vinnu-
markaðinn og hef verið hjá N1
síðan.“
Brosandi í öll störf
Eftir fyrra slysið segist Ari hafa
byrjað að velta því fyrir sér hvað biði
eftir jarðvistina. „Síðan þá hefur mig
oft dreymt góða drauma og ég veit
að mín bíður góð vist. Ég sveif svo
vel í rörinu á móti skæru, skæru ljósi
og tala við Jesú þegar verkirnir, sem
eru til staðar alla daga, eru sem
verstir.“
Dagurinn byrjar snemma hjá Ara.
Hann mætir um klukkan hálfsjö alla
virka morgna, dælir eldsneyti á bíla
fyrir viðskiptavini, hellir á rúðu-
vökva, bætir á olíu, bremsuvökva
eða stýrivökva ef með þarf, hreinsar
framrúðurnar og skiptir um rúðu-
þurrkur ef vill. „Ég er alltaf til taks
þegar á þarf að halda,“ segir hann og
brosir sínu breiðasta. „Mér finnst
svo gott og gaman að gleðja aðra og
gefa af mér. Ég kem fram við aðra
eins og ég vil að aðrir komi fram við
mig. Vonandi smitar það út frá sér.“
Frá 1976 til 1982 bjó Ari í Dan-
mörku, flutti þangað með foreldrum
sínum, tók þar gagnfræðaskólapróf
og var meðal annars í siglingum í
nokkur ár auk þess sem hann vann í
fiski. Hann starfaði sem vinnumaður
í sveit og var ráðsmaður í fiskeldis-
stöðinni Nauteyri áður en hann
réðst til Samskipa, þar sem hann var
í um 15 ár. Frítímann notar Ari til
þess að fara í gönguferðir, gjarnan á
fjöll og firnindi á sumrin, og spá í
stjörnufræði. „Ég hugsa mikið um
lífið og tilveruna.“
Morgunblaðið/RAX
Brosmildur Ari Bragason er alltaf til reiðu með bros á vör og aðstoðar viðskiptavini N1 á Bíldshöfða af alúð.
Gaman að gleðja aðra
Ari Bragason er andlit N1 á planinu á Bíldshöfða
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Misty
ÚRVAL AF NÁTT- OG
HEIMAFATNAÐI Á
40-50%
AFSLÆTTI
ÚTSALA